Þjóðmál - 01.06.2011, Side 75

Þjóðmál - 01.06.2011, Side 75
 Þjóðmál SUmAR 2011 73 jafnvægi“ . Þessu jafnvægi mætti haga svo, að efnislegum frumþörfum hvers einstaklings væri fullnægt og allir ættu sama kost á að nýta hæfileika sína . En til þess yrðu menn að stöðva hagvöxtinn og hætta að sækjast eftir ýmsum þeim gæðum, sem þeir teldu sjálfsögð . Hjörleifur Guttormsson líffræðingur var einn þeirra, sem tóku boðskapnum í Endimörkum vaxtarins vel . Í greinasafni hans, Vistkreppu eða náttúruvernd, sem kom út 1974, er kafli um bókina og þær ályktanir, sem henni mætti draga: „Von okkar hlýtur því að vera bundin því, að okkur takist að sveigja af og forðast árekstur í tæka tíð . Eigi það að heppnast, þýðir ekki að einblína á tæknilausnir, heldur verður að koma til gerbreyttur hugsunarháttur og verðmætamat .“15 Margir voru sammála Hjörleifi, enda vildu þeir ekki, að fyrir sér færi eins og persneska konunginum, sem horfði upp á hrísgrjónabirgðir sínar þrjóta skyndilega, eða eins og lífverunum í tjörninni, sem vatnaliljan kæfði allt í einu á þrítugasta degi . Gamlar fréttir: Frá Malthusi til Myrdals Það eru hins vegar ekki nýjar fréttir, að mannkyn sé komið að einhverjum endimörkum . Breski hagfræðingurinn William Stanley Jevons sendi árið 1865 frá sér bókina Kolavandann . Þar hélt hann því fram, að Bretar gætu ekki gert ráð fyrir sömu framförum á næstunni og þeir hefðu búið við áratugina og jafnvel aldirnar á undan . Kolaskortur vofði yfir . Eftir að Bretar hefðu tæmt hinar takmörkuðu kolabirgðir sínar, og þess væri skammt að bíða, myndu þeir missa forystusess sinn meðal iðnaðarþjóða .16 Spá Jevons rættist ekki . Hann reyndist vanmeta kolabirgðir Breta og einnig nýja orkugjafa eins og jarðolíu og vatnsföll . Sænski hagfræðingurinn Gunnar Myrdal, sem átti eftir að fá Nóbelsverðlaunin í grein sinni, gaf ásamt konu sinni, Ölvu, út bókina Fólksfjöldakreppuna árið 1934 . Þar lýsti þau hjón yfir þungum áhyggjum af því, að fólki myndi fækka í Svíþjóð . Þess vegna yrði ríkið að styrkja barneignir fjárhagslega og auðvelda barnauppeldi, meðal annars með rekstri dagheimila og leikskóla . Jafnframt yrði með valdboðnum ófrjósemisaðgerðum að sjá um, að vangefið fólk og ábyrgðarlaust fjölgaði sér ekki .17 Áhyggjur Myrdal­hjónanna af fólksfækkun reyndust ástæðulausar . Næstu áratugi fjölgaði Svíum nokkuð eins og grannþjóðum þeirra . Eftir það höfðu vest­ rænar þjóðir áhyggjuskipti: Hættan var af fólks fjölgun, ekki fólksfækkun . En Myrdal var ekki af baki dottinn . Árið 1965 kvað hann matvælaskort vofa yfir í heiminum . Ind verjar væru þegar orðnir háðir gjafakorni frá Bandaríkjunum .18 Hafði Myrdal með tali sínu veruleg áhrif á íslenska bændur, sem stór juku matvælaframleiðslu sína næstu árin í krafti opinberra styrkja .19 Reyndist Myrdal ekki sannspár um þetta frekar en þróun fólksfjölda . Löngu á undan þeim Jevons og Myrdal hafði breski klerkurinn og hagfræðingurinn Thomas Malthus sett fram sömu röksemd og gengur eins og rauður þráður í gegnum Endimörk vaxtarins og tæpt er á í ritunum Heimi á helvegi og Óbyggðum og allsnægtum . Hún var, að sumar þróunarlínur risu eftir veldislögmáli, á meðan aðrar væru jafn­ skrefa . Fólki fjölgaði eftir veldislögmáli, sagði Malthus, ef sjúkdómar, hungur og aðrar hamfarir héldu fólksfjölguninni ekki í skefjum eins og gerst hefði á fyrri tíð . En þetta viðbótar fólk þyrfti á ýmsum gæðum að halda, aðallega matvælum, og framleiðsla þeirra gæti ekki vaxið eftir veldislögmáli, heldur aðeins jafnskrefa, er best læti . Þegar þróunarlínan, sem lyti veldislögmáli, sveiflaðist upp yfir jafnskrefa þróunarlínuna, yrði óhjákvæmilega skortur á matvælum, stórfelld hungursneyð . Breski klerkurinn hafði engin sérstök ráð

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.