Þjóðmál - 01.06.2011, Page 81

Þjóðmál - 01.06.2011, Page 81
 Þjóðmál SUmAR 2011 79 Hvers vegna er nóg til af hráefnum? Einstök ártöl eru auðvitað aukaatriði í þessu sambandi . Aðalatriðið er, að í lík­ aninu í Endimörkum vaxtarins var gert ráð fyrir því, að neysla jarðefna yxi eftir veldislögmáli, þar eð hún væri háð fólksfjölda, en birgðir af þessum efnum væru endanlegar . Þess vegna hlyti fyrr eða síðar að koma að endimörkum . En eins og Thomas Malthus rak sig á löngu áður, getur verið varhugavert að framreikna þróunarlínur . Þótt einhver þróun virðist lúta veldisvexti eitt tímabil, kann hún að taka á sig aðra mynd eitthvert annað tímabil; þróun, sem virðist jafnskrefa, getur líka allt í einu breyst . Fleira veldur því, að hrakspárnar í Endimörkum vaxtarins hafa ekki ræst . Eitt er það, að hugtakið þekktar birgðir er ekki fastskorðað, heldur breytanlegt . Menn eru sífellt að finna nýjar birgðir af ýmsum efnum . Birgðirnar eru háðar kostnaði við að leita efnanna og nýta þau . Í annan stað getur nýting einstakra efna eða auðlinda batnað óháð hinum þekktu birgðum . Vegna nýrrar tækni þurfa menn nú til dæmis miklu minna af málmi til að smíða bíla og miklu minna af eldsneyti til að knýja þá áfram en fyrir fjörutíu árum . Annað dæmi er pappír: Hans er miklu síður þörf nú en fyrir daga Netsins . Margvísleg viðskipti eru pappírslaus . Í þriðja lagi geta menn, einnig vegna nýrrar tækni, endurunnið málma og önnur efni . Ólíkt orku eyðast málmar ekki við notkun, þótt endurvinnslu sumra þeirra sé vissulega takmörk sett . Í fjórða lagi getur ein vara oft komið í stað annarrar: Þegar kóbolt hækkaði til dæmis árið 1978 í verði um 30%, gripu menn til annarra efna til að framleiða járnsegul og málningu, og þá lækkaði verðið aftur .44 Þótt ýmsar hrakspár um afleiðingar umhverfisspjalla hafi ekki ræst, vegna þess að forsendur sjálfra spámannanna voru hæpnar og greiningunni ábóta vant, kjósa auðvitað allir heilbrigðir menn eins hreint og gott umhverfi og kostur er á . Þeir stefna að því að stöðva sóun olíulinda, fiskistofna og annarra náttúruauðlinda, minnka eftir föngum mengun í andrúmsloftinu, vötnum, ám og á rúmsjó, tryggja aðgang almennings að víðlendum og fögrum útivistarsvæðum og vernda þokkafull dýr í útrýmingarhættu . Lýsingar Rachel Carson, Sir Franks Frasers Darlings og höfunda Heims á helvegi og Endimarka vaxtarins á umhverfisspjöllum vekja hugboð um lausnirnar . Hvað veldur ofveiði, ofbeit og annarri ofnýtingu náttúruauðlinda? Að enginn hefur hag af því, að þær beri sem mestan arð til langs tíma litið, og það stafar af því, að enginn á þessar auðlindir . Hvers vegna úða bændur eitri á akra með þeim afleiðingum, að fuglar á nálægum svæðum hætta að fjölga sér? Vegna þess að þeir taka ekki með í reikninginn kostnaðinn, sem þeir leggja á fuglaskoðarana . Hver er ástæðan til þess, að menn veita úrgangi í ár og stöðuvötn? Hún er, að það borgar sig, því að enginn gætir þessara vatna og girðir fyrir, að aðrir mengi þau . Enginn hefur nýtingarrétt á vötnunum . Af hverju spilla menn útivistarsvæðum, hvort sem þau eru á fjöllum Íslands, í regnskógum Brasilíu eða á gresjum Afríku? Af því að enginn verndar þessi svæði . Verndun krefst verndara . Hver er skýringin á því, að haförninn íslenski, hvalur undan ströndum, fíll og nashyrningur í Afríku og ýmis önnur dýr eru í útrýmingarhættu? Hún er ekki, að menn séu illa innrættir, heldur að ávinningurinn fyrir þá, sem næstir eru dýrunum og mestu geta breytt um umhverfi þeirra, er minni af því að vernda þau en veiða . Spámenn hafa prédikað gegn græðginni árþúsundum saman . Það hefur engu breytt . Hitt er miklu skynsamlegra að taka græðgina í þjónustu umhverfisins . Hreint og gott umhverfi þarf að borga sig . Þeir, sem ganga

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.