Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 83
Þjóðmál SUmAR 2011 81
Í nöp við þjóðríkið
Eiríkur Bergmann: Sjálfstæð þjóð, trylltur skríll
og landráðalýður, Veröld, Reykjavík 2011, 364
bls .
Eftir Gústaf Níelsson
Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann er mikilvirkur í skrifum sínum,
en að sama skapi ekki sérlega vandvirkur .
Hann ber reyndar höfuð og herðar yfir aðra
íslenska stjórnmálafræðinga hvað afköstin
varðar, en er á svipuðu róli um vandvirkni
og úrvinnslu sögulegra heimilda . Höfundur
getur þess í formála að megintilgangur
bókarinnar sé „að greina áhrif þjóð ernis
hug mynda á strauma og stefnur í íslenskum
stjórnmálum á lýðveldistímanum – sér í
lagi þann grunn sem utanríkisstefna ís
lenskra stjórnvalda hvílir á“ . Segja má
að aðferðafræðin, sem höfundur segist
styðjast við í vinnu sinni, hafi orðið til þess
að heimildirnar hafi öðrum þræði borið
hann ofurliði, sem gjarnan hendir þegar
úrvinnsla þeirra er ófullnægjandi . En ekki
verður annað sagt en að heimildaakurinn
hafi verið ágætlega plægður, en sáningin
eitt hvað misfarist og uppskeran eftir því .
Aug ljóslega hafa höfundi verið mislagðar
hendur í heimildaöflun sinni og honum
yfir sést ýmislegt í því efni . Verður vikið að
því síðar .
Kenningasmíð er stjórnmálafræðinni afar
mikilvæg, en getur stundum orðið höfundi
sínum að fótakefli, ef of langt er seilst . Þetta
hendir Eirík í viðleitni hans til að sýna
fram á að rótgrónar þjóðernishugmyndir
Íslendinga frá því á 19 . öld hafi mótað að
mestu íhaldssama afstöðu stjórnmálamanna
og almennings til utanríkismála allt fram á
okkar daga, og ekki hvað síst afstöðuna til
Evrópusambandsins . Eðlilega á sjálf stæðis
barátta Íslands, sem tók um eitthundrað ár,
sér arfleifð . Skárra væri það nú . En sú arfleifð
er ekkert öðru vísi en annarra þjóða, sem
brutust undan einveldi konunga og keisara
og síðar undan erlendum yfirráðum, þótt
Eiríkur haldi það . Og allar þjóðir eiga sér
djúpar rætur í samspili tungunnar, sögunnar,
trúarinnar og menningarinnar . Aftur á
móti meta sjálfstæðar þjóðir hagsmuni
sína með ólíkum hætti, þegar að því kemur
að gerast aðilar að samtökum á borð við
ESB, alveg óháð arfleifð sjálfstæðisbaráttu
sinnar . Það er því beinlínis rangt, eða að
minnsta kosti afar hæpið, hjá Eiríki, að
arfleifð íslensku sjálfstæðisbaráttunnar
standi í vegi fyrir aðild Íslands að ESB .
Hér koma margvísleg önnur sjónarmið
ríkja til álita . Við þurfum ekki annað en
að líta á landakort Evrópu nútímans og
bera það saman við kortið frá 1871 og
síðan 1918, til að skilja að hugmyndin um
hið fullvalda og sjálfstæða þjóðríki hefur
farið sigurför um álfuna, hvað sem líður
svokölluðum Evrópusamruna og þróun á
þeim vettvangi . Ýmis teikn eru á lofti um
Bókadómar
_____________