Þjóðmál - 01.06.2011, Page 86

Þjóðmál - 01.06.2011, Page 86
84 Þjóðmál SUmAR 2011 ekki þróun mála og var friðelskur maður, en hann yfirgaf ekki Sjálfstæðisflokkinn . Sat sem bæjarfulltrúi til 1950 og var síðar varaþingmaður flokksins 1959–1963 . Þetta er auðvitað dæmi um margvíslega ónákvæmni Eiríks í ritinu og hefði verið nær að hann útskýrði hjásetu Hermanns Jónassonar, formanns Framsóknarflokksins, í málinu . Og ýmislegt fleira mætti Eiríkur skýra út fyrir lesendum . Tökum dæmi: „En þegar umræðan um Keflavíkursamninginn hófst árið 1946 og allt fram að undirritun varnarsamningsins við Bandaríkin fimm árum síðar var þó þverpólitísk samstaða um það á Íslandi að erlendur her ætti ekki að vera í landinu á friðartímum . Bandaríski herinn fór þó ekki af landi brott fyrr en í september 2006 .” Hér er lesandinn skilinn eftir í einskonar tómarúmi . Hvers vegna fór ekki herinn? Hvað var hann eiginlega að gera hér í öll þessi ár? Og hvernig útskýrir Eiríkur að bandarískur her var á Íslandi í fimmtán ár eftir að kaldastríðinu lauk? Hann lætur það ógert . Þetta efnismikla rit er til marks um lús iðni höfundar við öflun heimilda um hvernig umræður og átök stjórnmálanna hafa sett mark sitt á deilur um íslensk utanríkis ­ mál og hvernig Ísland nálgast umheim inn . Þetta kallar höfundur „orð ræð[u] sjálf­ stæðisbaráttunnar [sem] hefur með skýrum hætti skilað sér inn í umræður um flestöll utanríkismál á Íslandi“ . En hvað hefur hann fyrir sér um þetta? Er þessi „orðræða sjálfstæðisbaráttunnar“ ein hver óþörf hallærisumræða? Þarf það að vekja undrun að smáríki gefi gaum að full veldi sínu og sjálfstæði, sem það þurfti að berjast fyrir í heila öld, í samskiptum sínum við miklu stærri ríki? Auðvitað ekki . Það þarf ekki að spyrja að leikslokum fram selji smáríki hluta af fullveldi sínu, svo ekki sé nú talað um stjórn yfir auðlindum sínum, til ríkjasambands sem stjórnað er af ríkari hagsmunum, en þeim sem smáríkið hefur í forgangi . Í þessu samhengi er ekkert óeðlilegt þótt vísað sé til Gamla sáttmála „til að vara við samkrulli við stærri þjóðir“ . Eiríkur Bergmann mætti hafa í huga að missi smáþjóðin eðlilegt sjálfstraust, og þá er ekki átt við útblásið Bessa staðasjálfstraust útrásaráranna, er hún í hættu . Íslendingar hafa ósmeykir tekið þátt í umfangsmiklu alþjóðlegu samstarfi, allt frá lýðveldisstofnun, og því er óþarfi að gera lítið úr varfærni smáríkisins, þegar kemur að umfangsmiklu framsali ríkisvalds til ríkjabandalags á borð við ESB . Bókin ber öll merki þess að vera ætlað að styðja pólitísk markmið, fremur er fræðileg . Andúð höfundar á þjóðríkinu og þjóðernishyggju leynir sér ekki, en sú tilfinning er mjög rík hjá áköfustu stuðningsmönnum ESB og þeirra sem líta svo á að þjóðríkið sé upphaf og endir alls hins illa í samskiptum fólks . Ljósin í norðri Barbara Demick: Engan þarf að öfunda, Bóka­ félagið Ugla, Reykjavík 2011, 336 bls . Eftir Láru Björg Björnsdóttur Engan þarf að öfunda er önnur bók bandarísku blaðakonunnar Barböru Demick, sem var blaðafulltrúi Los Angeles Times í Suður­Kóreu á árunum 2001 til 2007 . Bókin fjallar um daglegt líf fólks í Norður­Kóreu og byggir á viðtölum sem höfundur tók við flóttafólk þaðan sem hafði tekist að komast til Suður­Kóreu . Sögurnar í bókinni eru sex talsins og nær höfundur að flétta þeim saman í ógleymanlega bók . Sögurnar fjalla um lífsbaráttu fólks sem býr við gífurlegt harðræði en þær eru ólíkar innbyrðis og hver saga hefur sinn blæ .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.