Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 88
86 Þjóðmál SUmAR 2011
kúgunin og hræðsla þeirra við yfirvaldið
var slík að þau þorðu aldrei að nefna hvort
við annað að þau efuðust um Kil IlSung
eða þær hugmyndir um umheiminn sem
NorðurKóreubúum var skipað að trúa . Þau
treystu hvort öðru samt betur en nokkrum
öðrum en harðstjórnin var svo yfirþyrmandi
að ekki var óhætt að segja skoðanir sínar
upphátt við nokkurn mann .
Í öllum sögunum, eins ólíkar og þær
eru, hreyfir dugnaður og áræðni íbúanna
sterkt við lesandanum . NorðurKórea
taldist til þróaðra ríkja á sjötta og sjöunda
áratugnum og eldri NorðurKóreubúar
muna hvernig það var að eiga sjónvarp,
mat í búrinu og föt til skiptanna . En eftir
fall Sovétríkjanna urðu íbúarnir að leita
sér matar þar sem þeir gátu . Mæður, með
börnin bundin á bakinu, gengu ofar og
ofar í fjöllin í leit að ætu grasi sem þær
máttu svo sjóða í margar klukkustundir
til að börnin gætu borðað og melt grasið .
Fólk klifraði upp í rafmagnsstaura, klippti
niður koparvír og seldi á svörtum markaði
til að eiga fyrir mat . Fólk hirti ómelt
korn úr húsdýraskít . Hafnarverkamenn
skröpuðu botninn á lestum skipa sem
fluttu mat, breiddu leðjuna á gangstéttir,
þurrkuðu hana í sólinni og tíndu hrá
hrísgrjón og annað matarkyns upp úr
henni . Hæðartakmark í herinn var lækkað
úr 160 cm í 150 cm þegar þjóðin tók að
minnka vegna vannæringar .
Þýðing Elínar Guðmundsdóttur er góð,
lát laus og þægileg og kemur beinskeyttum
stíl höfundar vel til skila .
Engan þarf að öfunda er bók sem fyrst og
fremst segir sögur af fólki . Sögur af erfið
leikum og lífi sem er svo fjarri okkur hér í
okkar veruleika að lesandanum líður jafnvel
eins og hann sé að lesa um eitthvað sem
gerðist fyrir hundrað árum .
En þrátt fyrir erfiðleikana og vonleysið
sem virðist alltumlykjandi í sögunum verður
lesandinn ávallt var við vonarglætu, ljós sem
lýsir fólkinu leiðina út úr eymdinni . Drif
kraftur allra er viljinn til að lifa . Og sá vilji
verður að lokum sterkari en allt, sterkari
en óttinn við stjórnvöld, sterkari en óttinn
við hið óþekkta í suðri, sterkari en óttinn
sjálfur .
Eftir að bókinni er lokað er erfitt að
gleyma fólkinu í NorðurKóreu . Enda
megum við ekki gleyma þeim . Ljósunum
öllum í norðri .
Vel heppnuð handbók
um íslensku
Handbók um íslensku . Ritstjóri: Jóhannes
B . Sigtryggsson, Forlagið og Stofnun Árna
Magnússonar, Reykjavík 2011, 401 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Allir sem vinna við ritstörf reka sig fyrr eða síðar á eitthvað sem þeim
er óljóst við frágang eða ritun texta . Nú
hefur Stofnun Árna Magnússonar í ís
lensk um fræðum sent frá sér Handbók um
íslensku undir ritstjórn Jóhannesar B . Sig
tryggssonar . Þar geta textasmiðir fengið
svör við spurningum sem vakna við störf
þeirra og lúta að handbragðinu .
Þegar ég starfaði við blaðamennsku á
Morgunblaðinu á níunda áratugnum hitt
umst við blaðamenn á erlendri fréttadeild
blaðsins reglulega á svonefndum gæða
fundum . Þar ræddum við efnistök í blaðinu .
Þá hefði oft verið gott að hafa handbók við
hönd ina með reglum sem auðvelduðu mönn
um að komast að niðurstöðu um hvernig
taka ætti á álitamálum . Morgunblaðið bjó
ekki, svo ég vissi, að neinum slíkum reglum
um málnotkun .