Þjóðmál - 01.06.2011, Page 89

Þjóðmál - 01.06.2011, Page 89
 Þjóðmál SUmAR 2011 87 Reynslan af þessum fundum varð til þess að ég beitti mér fyrir því árið 1988 að stofnað var til samstarfs Morgunblaðsins við Árna Böðvarsson, málfarsráðunaut ríkis­ útvarpsins, um gerð ritreglna . Komu þær út á vegum Morgunblaðsins og RÚV undir heitinu Málfar í fjölmiðlum og var kverið ætlað starfsmönnum þessara fjölmiðla en ekki til almennrar útgáfu . Árni vildi láta reyna á efnið áður en hann sendi það frá sér í bók . Hún kom út hjá Almenna bóka félaginu árið 1992 og heitir Íslenskt málfar . Í formála bókarinnar segir Árni frá því að árið 1955 hafi hann tekið saman 39 blað­ síðna fjölritaðan bækling handa Morgunblaðinu sem hét Leið beiningar um málfar . Las Árni blaðið daglega í nokkur missiri vegna málfarsins og sendi blaða mönn unum athugasemdir sínar . Stóð Sigurður Nordal prófessor fyrir sam komu lagi um þetta við Valtý Stefánsson ritstjóra . Ég þekkti ekki reglurnar frá 1955 þegar ég starfaði á Morgunblaðinu um 30 árum síðar og vafalaust hefðu þær að ýmsu leyti þótt úr sér gengnar þegar við blaða­ mennirnir ræddum frágang blaðsins á níunda áratugnum . Margt í reglum af þessu tagi breytist í tímans rás . Það vitum við sem höfum hætt að skrifa z og búum við allt aðrar reglur til dæmis um kommur en við lærðum í skóla . Þá hefur tölvutæknin haft mikil áhrif á útlit og gerð texta . Að hinni nýju Handbók um íslensku hefur verið unnið undir stjórn ritnefndar innan Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (Árnastofnunar) frá sumri 2007 . Í ritnefndinni sátu Ari Páll Kristinsson rannsóknardósent, Guð rún Kvaran prófessor og Gunnlaugur Ingólfs­ son rannsóknardósent . Jóhannes B . Sig­ tryggsson, verkefnisstjóri á Árnastofnun og MA í íslenskri málfræði, ritstýrði bókinni . Mark mið stofnunarinnar er að handbókin verði endurnýjuð reglulega . Handbókin skiptist í tvo aðalhluta: I. Málnotkun, stafsetning og ritun og II. Um íslenskt mál. Fyrri kaflinn er stærri og þar er að finna hagnýta kafla í stafrófsröð . Til að auðvelda notkun bókarinnar er yfirlit yfir kaflaheiti á saurblöðum hennar fremst og aftast . Í lok bókarinnar er einnig ítarleg atriðisorðaskrá . Ber allur frágangur með sér að vel hefur verið hugað að því að auðvelda lesanda sem mest notkun bókarinnar . Hinir hagnýtu kaflar í stafrófsröð í fyrri hluta bókarinnar eru misjafnlega langir . Kaflinn um stóran staf og lítinn er með hinum lengri enda eru álitamálin mörg . Þar segir á einum stað: „Í styttu eða breyttu sérnafni getur verið val um lítinn eða stóran upphafsstaf .“ Nefnd eru nokkur dæmi: Háskóli Íslands = háskólinn eða Háskólinn; Hellisheiði = heiðin eða Heiðin; Hæstiréttur Íslands = hæstiréttur eða Hæstiréttur . Hér mætti einnig nefna Alþingi Íslendinga = alþingi eða Alþingi . Þá segir: „Í tilvikum sem þessum verður að gæta vel að hefð og samræmi . Sú hefð hefur myndast í opinberum skjölum að yfirstofnanir hafi stóran staf en undirstofnanir lítinn .“ Þessu til skýringingar er nefnt dæmið: Stjórnarráð, það er með stóru S og síðan fjármálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið með litlum upphafsstöfum . Ég vissi ekki um þessa hefð fyrr en ég las um hana í handbókinni, enda er ég „vinur litla stafsins“ og forðast stóran staf . Kaflanum um stóran og lítinn staf lýkur á þessum orðum: „Þegar óvissa eða valfrelsi ríkir um stóran eða lítinn upphafsstaf skal

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.