Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 92

Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 92
90 Þjóðmál HAUST 2010 Líkt og Sveinbjörn beinir Pär Gustafsson (sem ritar 3 . kaflann) spjótum sínum að einföldum hagfræðilegum skilningi á mann- lífinu og jafnframt að hagfræðideildum háskóla sem hann telur helst til kreddufast- ar . Hann tekur dæmi af Rússlandi eftir fall kommúnismans og segir m .a .: Forskriftin var sú að ef stjórnvöld kæmu upp markaðshagkerfi myndi lýðræði sjálfkrafa fylgja í kjölfarið . Þá myndi réttlátt og skilvirkt dómskerfi einnig þróast í fyllingu tímans . Þar af leiðandi skipti höfuðmáli að innleiða markaðshætti eins hratt og mögulegt væri enda myndi það leiða sjálfkrafa til betra samfélags . (Bls . 83) Reyndin segir hann að hafi orðið önnur: Og í staðinn fyrir að markaðsöflin færðu Rússland í átt til aukins lýðræðis og sterkara réttarkerfis, eins og nýfrjálshyggjuhagfræðingarnir höfðu gert ráð fyrir, urðu þau til þess að skipulagðri glæpastarfsemi óx fiskur um hrygg . Þessi þróun átti sér ekki síst stað vegna þess að markaðsöflunum var gefinn laus taumur án þess að lagaramminn, löggæslan og réttar- kerfið væru í stakk búin til að veita þeim aðhald . (Bls . 84) Grein Salvarar Nordal (sem er 4 . kafli) fjallar um samfélagslega ábyrgð í viðskiptalífinu . Hún gagnrýnir kenningu sem Milton Friedman hélt fram fyrir 40 árum síðan og er þess efnis að helsta skylda stjórnenda í fyrirtæki sé að hámarka hagnað þess . Spurningarnar sem Salvör veltir upp eru áhugaverðar til dæmis þar sem hún ræðir hvort stjórnendur banka hafi ríkari skyldur við eigendur bankans en við þá sem eiga sparifé í bankanum; hvort það stuðli ekki að auknu regluverki og opinberu eftirliti ef stjórnendur fyrirtækja gera almennt hvaðeina sem lög leyfa til að græða sem mest, jafnvel þótt það sé andstætt öllu siðferði; og hvort þeir sem hafna samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja kalli ekki þar með eftir sterkara ríkisvaldi sem sinni fleiri hlutverkum, öfugt við það sem Friedman kvaðst vilja . Mér sýnist margt sem Salvör segir styðja þá niðurstöðu að hagkerfi geti ekki dafnað án siðmenningar og illa fari ef forkólfar atvinnulífsins virða engin mörk nema lögin og hirða ekki um nein markmið önnur en að hámarka gróða sinn . Í köflunum eftir Sveinbjörn, Pär og Sal- vöru er gagnrýni á nýfrjálshyggju fyrst og fremst gagnrýni á oftrú á hagfræðileg líkön eða einhvern vísindalegan stórasannleik (sem sagt á 5 . lið í upptalningunni hér að framan) . Þau virðast öll skilja ný frjáls- hyggju sem slíka oftrú eða einhvers konar hagfræðilega rörsýn . Svipaða sögu er að segja um 8 . kaflann sem er eftir Giorgio Baruchello . Hann fjallar um kenningar kanadíska heimspekingsins McMurtrys sem hefur gert tilraun til að skilgreina verðmæti út frá mannlegum þörfum og gagnrýnt hagfræðikenningar m .a . fyrir að gera engan greinarmun á þörfum manna og löngunum . Mér sýnist að Giorgio takist ágætlega að útskýra fyrir lesendum að gegnum gleraugu hagfræðinnar sjáist aðeins hluti af því sem máli skiptir í mannlífinu . Nýskipan í opinberum rekstri, norræn velferð og kynjamyndir Þær þrjár greinar sem ótaldar eru fjalla um ólík efni . Mia Vabø, sem ritar 5 . kaflann, fjallar um nýskipan í opinberum rekstri, þ .e . tilraunir til að skapa einhvers konar markaðsaðstæður innan opinbera geirans (sbr . 4 . lið) . Hún segir frá því hvernig tilraunir til að auka hagkvæmni í heimaþjónustu fyrir aldraða í Noregi, með því að innleiða einhvers konar markaðs- og samkeppnishugsun, leiddu í raun til aukins kostnaðar og skriffinnsku .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.