Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 7

Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 7
6 Þjóðmál VETUR 2011 fólk á auðvelt með að syngja með englunum, og hrópa síðan með múgnum: „Krossfestu!“ og formæla með böðlunum . Það virðist svo auðvelt að hrífast með bylgju tilfinninganna og taka undir með fjöldanum . Trú er vissu- lega oft og iðulega notuð sem handbendi ofstækis, haturs og hefnda . Það á líka við um van-trú og guðleysi, sem einatt kemur fram af engu minna ofstæki en trúarlegir bók- stafshyggjumenn auðsýna . Allt sem mann- eskjunni er mikils virði, allt sem snertir dýpstu sálarstrengi er auðvelt að misnota og afvegaleiða . Eru ekki ótal illvirki unnin í nafni göfugustu tilfinninga svo sem ástar og trúar? En það merkir ekki að nauðsynlegt sé að útrýma því eða ýta út úr almanna rým- inu . Öðru nær . Þetta snýst öllu heldur um að varðveita dómgreind og skynsemi, og leita þess og rækta það sem stuðlar að visku, virðingu, mannúð og náungakærleika . Það er verkefni safnaðanna, kirkjunnar sem miðlar því með sögu og hefðum, táknum og söngvum, list og iðkun sem setur fram hin háleitu markmið og skýru sýn sem við leitum og þiggjum í samfélagi þvert á allt sem aðskilur . Jólin og páskarnir, hin kristna saga um jötuna og krossinn og upprisuna, gefur viðmið og fótfestu sem ómetanleg eru . Jólin grípa til strengjanna sem innst og dýpst liggja . Þau segja sögu sem öðrum þræði er sagan um þig og það sem mestu varðar, Guð, áhrif hans, vald og mátt . Ef þú útilokar það frá sjálfum þér, ef þú lokar á þá vídd trúar sem hvetur þig að líta gagnrýnum augum á sjálfan þig, sjálfselsku, stolt og þröngsýni, og útilokar þig frá þeim áhrifum og farvegum sem greiða fyrirgefningunni veg og þeim friði sem eng- inn mannlegur máttur megnar að höndla af eigin hvötum og mætti, þá ertu illa staddur . Jólasagan segir söguna um Guð og mann, um þig og mig og hinn æðsta mátt . Hún er hugljúf og látlaus saga, barnslega einföld en jafnframt svo djúp að ævin endist manni seint til að kafa dýpt hennar . Við fáum enn á ný að heyra þá sögu um þessi jól, njóta hennar með söng og list og ljóði, hefðum og venjum sem beina sjónum okkar til birtu, gleði, vonar og friðar Guðs, hans sem var í jötu lagður lágt og er frelsarinn, Kristur Drottinn . Og það eru verðmæti dýrmætari en allt . Gleðileg jól . Gullnáma af ævintýrum í einnar mílu hæð í Villta vestrinu Denver í Colorado, við rætur Klettafjalla, er lifandi og öflug verslunar-, menningar,- íþrótta- og útivistarborg – heillandi staður undir bláum himni þar sem sólin skín 300 daga á ári. 200 útivistarsvæði og garðar, 90 golfvellir. Stutt til frábærra skíða- og útivistarsvæða eins og Aspen og Vail. Ein af öflugustu íþróttaborgum Bandaríkjanna, heimabær Denver Nuggets (NBA) og Denver Broncos (NFL). Icelandair kynnir nýjan áfangastað: DenVer, ColoraDo Nýr áfangastaður Icelandair í Banda ríkj unum. Segul mögnuð heims borg fyrir sæl kera og fagu rkera, náttúru skoð ara, útivi star fólk, skíða menn, fjalla menn, kylf inga og alla hina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.