Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 30
Þjóðmál VETUR 2011 29
miklar bílaverksmiðjur og þar voru m .a .
framleiddir Lada Samara-bílar, sem voru
algengir hér á landi um skeið .
Árið 1935 var nafni borgarinnar breytt og
hún nefnd Kúbisjev, til heiðurs bylt ingar-
hetjunni Valerian Kúbisjev . Borgin stendur
á eystri bakka Volgu og þótti fyrir þá sök
öruggari fyrir árásum úr vestri en borgir á
vesturbakkanum . Það mun hafa ráðið mestu
um að árið 1941, eftir innrás Þjóðverja í
Sovétríkin, var hún útnefnd varahöfuðborg
Sovétríkjanna og til Kúbisjev átti að flytja
æðstu stjórn ríkisins og erlend sendiráð,
ef svo færi að Moskva félli í hendur þýska
innrásarliðsins . Til öryggis voru jarðneskar
leifar Vladimírs Leníns fluttar frá Moskvu
til Kúbisjev og sömuleiðis miðstöðvar
olíuvinnslu í Sovétríkjunum, sem áður höfðu
verið austur í Kákasus . Af þeim sökum gekk
Kúbisjev um skeið undir nafninu Bakú 2 .
Margvíslegar ráðstafanir voru gerðar til að
taka á móti stjórnarherrunum og meðal
annars reist bygging fyrir þá . Þar voru eftir
stríðið höfuðstöðvar kommúnistaflokksins
og verkalýðshreyfingarinnar á þessu svæði .
En Moskva féll ekki og aldrei kom til
þess að flytja þyrfti æðstu stjórn Sovét-
ríkj anna suður til Kúbisjev . Að vísu munu
nokkrir ráðherrar og erlendir sendiherrar
hafa dvalist þar um skeið, en fáir úr
æðsta valdakjarnanum þótt sumir þeirra
kæmu í stuttar heimsóknir . Allt var hins
vegar tilbúið og mikil leynd hvíldi yfir
húsinu sem átti að hýsa ráðamennina,
fyrirkomulagi þess, gerð og vistarverum .
Vitneskja um það mál var aðeins á vitorði
örfárra háttsettra flokksfélaga, sem treysta
mátti til þagmælsku, og séð var til þess að
verkamenn sem unnu við bygginguna yrðu
ekki til frásagnar .
Fundaherbergið í byrginu í Samara . Stalín átti að sitja fyrir enda borðsins en stólarnir tveir til hægri voru fyrir
fundarritara . Þeir áttu að snúa baki í aðra viðstadda svo þeir vissu ekki hver segði hvað!