Þjóðmál - 01.12.2011, Page 64

Þjóðmál - 01.12.2011, Page 64
 Þjóðmál VETUR 2011 63 Gunnar Þórðarson Indriði Indriðason Um John Maynard Keynes og Almennu kenninguna Það er athyglisvert að rifja upp rúmlega sjötíu ára meistaraverk Keynes, Al mennu kenninguna um atvinnu, vexti og pen inga (The General Theory Of Employ ment, Interest and Money, útg . 1936) í ljósi um ræðu um skuldasöfnun vestrænna ríkja í dag . Bókin hafði mikil áhrif á sínum tíma og höf undurinn, hagfræðingurinn John Mayn- ard Keynes, hefur verið talinn einn af áhrifa- mestu einstaklingum síðustu aldar og bók hans talin það rit sem mest áhrif hefur haft á þróun þjóðfélaga í Evrópu á síðustu öld . John Maynard Keynes fæddist í Cam- bridge á Englandi 1883, sonur hagfræðings og prófessors við Cambridge-háskóla, John Neville Keynes . Hann fékk fyrsta flokks menntun í Eton og Cambridge en áhugamálin lágu víða . Hann féll illa að staðl aðri fyrirmynd hagfræðinga samtímans enda margt sem fangaði hug hans, t .d . listir, en hann gekk undir gælunafninu „listvinurinn“ meðal samnemenda sinna í Eton og Cambridge . Að loknu námi tók hann mikinn þátt í listalífi Lundúna og var í vinfengi við marga þekktustu listamenn landsins í gegnum svokallaðan Bloomsbury- hóp . Þar kynntist hann meðal annars Virginíu Woolf, George Bernhard Shaw og listmálaranum Duncan Grant, en við hann átti Keynes í ástarsambandi framan af ævi . Keynes gekk ungur í þjónustu breska ríkisins . Hann var m .a . sendur til starfa hjá breska landstjóranum á Indlandi . Þegar heimsstyrjöldin fyrri skall á réðst hann til breska fjármálaráðuneytisins . Við lok styrjaldarinnar var hann skipaður í nefnd sem fór til Parísar til að ganga frá Versala- s amningunum við uppgjöf Þjóðverja . Eftir heimkomu þaðan gagnrýndi hann ein strengingslegar kröfur sigurvegaranna, Frakka, Breta og Bandaríkjamanna, og var- aði við gríðarlegum stríðsskaðabótum sem Þjóðverjum var gert að greiða . Hann taldi að þær myndu einungis ýta undir ofstæki og skapa jarðveg fyrir öfgahópa . Friðar- samn ingunum gerði hann skil í frægri bók, Hinar hagrænu afleiðingar friðarins (The Economic Consequences of the Peace, útg . 1919) og eftir seinni heimsstyrjöldina voru viðvaranir Keynes hafðar að leiðarljósi við uppgjöf Þjóðverja . Eftir seinni heims styrjöldina fór hann fyrir bresku sendinefndinni á ráð-

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.