Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 31

Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 31
30 Þjóðmál VETUR 2011 Eftir fall Sovétríkjanna tóku nýir hús-ráðendur við byggingunni . Þeir veittu fljótlega athygli heldur óhrjálegri hurð á vegg, sem sneri út í húsagarð og lítið bar á . Þegar þeir spurðu að hverju hún væri, fengu þeir þau svör að hurðin hefði aldrei verið opnuð svo menn myndu til en talið væri að hún væri að sorpgeymslu . Nýju mennirnir voru forvitnir og reyndu að opna hurðina . Það gekk treglega, enda hurðin rammlæst og hjarir allar kolryðgaðar . Að lokum tókst þó að brjótast inn og það sem þá blasti við var allt annað en sorpgeymsla . Fyrst komu menn inn á langan gang og síðan tóku við stigar niður í jörðina, alls sjö hæðir, og var sú neðsta 38 metra undir yfirborði jarðar . Á hverri hæð voru herbergi búin húsgögnum og ýmsum þægindum frá því um 1940 og á þeirri neðstu var fullbúin skrifstofa með skrifborði, síma og ýmsum fleiri tækjum . Þar var einnig sófi og hægindastóll og á veggjum voru falskir gluggar, svo þeir sem inni voru fyndu sem minnst fyrir því að þeir voru djúpt í iðrum jarðar . Inn af skrifstofunni, sem augljóslega hafði verið ætluð Jósef Stalín, var stórt herbergi með fundarborði og stólum fyrir tíu til tuttugu manns, og á veggjum herráðskort sem sýndu stöðu herja, þýskra og sovéskra, í Sovétríkjunum nálægt áramótunum 1941– 1942 . Ljóst var af öllu, að þarna gátu Stalín og nánustu samstarfsmenn hans hafst við svo vikum og jafnvel mánuðum skipti . Þá sem fyrstir komu þarna niður árið 1991 rak í rogastans . Smám saman náðu menn áttum og tóku að leita upplýsinga . Þá tókst að finna gamla og fróða konu sem rámaði til þess að hafa heyrt hvíslað um það á árinu 1941, að verið væri að útbúa neðanjarðarbyrgi fyrir félaga Stalín og aðra æðstu menn ríkisins, þar sem þeir gætu hafst við og stjórnað stríðsrekstrinum, ef þeir neyddust til að yfirgefa Moskvu . Til þess kom þó aldrei og engar öruggar heimildir eru fyrir því að Stalín hafi nokkru sinni komið í byrgið í Kúbisjev . Einhverjar sögur gengu að vísu um að til hans hefði sést á þessum slóðum á árunum 1941–1942, en þær hafa aldrei verið staðfestar . Hálf öld leið frá því byrgi Stalíns var gert og þar til tilvist þess varð kunn . Nú er það safn og þangað kemur fjöldi ferðamanna á ári hverju . Samara fékk aftur sitt fyrra nafn á síðasta áratug 20 . aldar, eftir fall Sovét- ríkjanna, og nú geta allir sem vilja heimsótt þessa fallegu borg . Greinarhöfundur við skrifborð Stalíns í byrginu í Samara . Að baki honum má sjá annan falska gluggann í herberginu .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.