Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 94

Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 94
 Þjóðmál VETUR 2011 93 um sjósókn og útgerðarhætti . Þriðji kafli rekur þróun byggðar og mannlífs . Fjórði kafli er um verslun og samgöngur . Fimmti kafl inn fjallar um kristnihald og kirkjur í sókn um svæðisins . Í bókarlok er síðan at burða annáll 1701 til 1800 . Í þessu bindi er Ólaf ur Stefáns- son, síðar stiftamtmaður, mjög áber andi, en hann var um langt árabil stærsti jarð eigandi á svæðinu og umsvifamikill í út gerð . Eins og þessi lýsing á uppbyggingu og efnisinnihaldi Sögu Akraness ber með sér er feiknarlegt efni til umfjöllunar, en það er tekið mjög skipulegum tökum og samræmi er á milli beggja bindanna hvað varðar framsetningu . Auk megintextans hefur höfundur víða skotið inn stuttum greinum um menn og atburði, stundum í fréttastíl, og er það oft ágætlega heppnað . Þá eru bindin bæði ríkulega myndskreytt og höfundur hefur að auki unnið mikinn fjölda myndrita sem sýna skiptingu, hlutföll og þróun margra efnisþátta sem um er fjallað . Höfundur virðist hafa þaulkannað allar frumheimildir um efnið . Margt er hér dregið fram úr skjalasöfnum sem aldrei áður hefur verið birt eða út af lagt . Þótt skoðanir verði skiptar um ályktanir höfundar og túlkanir á mörgum sviðum eins og gengur, er ljóst að með þessu riti sem nú er komið út hefur verið unnið þrekvirki í sagnfræðilegri rannsókn . Akurnesingar hafa eignast veg- lega byggðarsögu . Gagnleg umfjöllun Tómas Ingi Olrich: Ísland og ESB. Bókafélagið Ugla, Reykjavík 2011, 96 bls . Eftir Ólaf Egilsson Það var hið þarfasta framtak hjá Tómasi Inga Olrich (TIO), að rita flokk 15 greina um ESB í Morgunblaðið sl . sumar . Ekki er síður gagnlegt að umfjöllun hans skuli vera komin út í handhægu riti hjá forlaginu Uglu . TIO lýsir að miklu leyti þróun sem hann hefur fylgst með jafnharðan og hún gerðist . Þá hefur hann í störfum sínum síðari árin átt náinn aðgang að mönnum og meðferð mála, sem dýpkað hafa innsýn hans og skilning á kjarnaatriðum . Loks setur skýr framsetning hins reynda menntaskólakennara ánægjulegt mark á bókina . Þegar ríkisstjórnin — að þjóðinni for- spurðri — leitar fyrir sér um að skila í hendur útlendinga forræði sumra mikilsverðustu mála hennar, sem kynslóðir börðust fyrir að ná inn í landið, er mikils virði að eiga aðgang að staðgóðum fróðleik um efnið . Nóg er á kreiki af óskhyggju og óraunsæi . Óháð því hvort Ísland hefði hag af aðild að ESB stendur það, að evrópska samruna ferlið hefur skilað ríkulegum árangri . Framsýn- um hugsjónamönnum og þjóðaleiðtogum lánaðist skref fyrir skref að flétta svo saman efnahagslega hagsmuni fyrrum stríðsríkja álfunnar, að ekki hefur komið til vopnaðra átaka þeirra í milli . Þessu ferli er mjög vel lýst og því hvernig Þýskaland og Frakkland hafa verið og eru þungamiðja ESB, en síðan Ítalía og Bretland, þótt sérstaða þess síðarnefnda sé töluverð (m .a . utan bæði evru- og Schengen-samstarfs) . Ástæður fyrir aðild annarra ríkja álfunnar að ESB koma skýrt fram . Þær eru af mismunandi toga, einkum þó nálægð við höfuðríkin (t .d . Benelux-löndin — „[Luxemborg] dæmist til að vera í ESB vegna legu, sögu og menningar“ (bls . 27)) eða rótgróinn uggur ríkjanna í austurhluta álfunnar við stóran nágranna sinn . „Skrefið stigu Finnar þegar stórveldið í austri var í upplausn og framtíðin óljósari en nokkru sinni fyrr“ (bls . 50–51) . Allar þjóðirnar hafa gengið í ESB með væntingar um aukna velferð . — En Sviss, Noregi og Íslandi hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.