Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 48

Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 48
 Þjóðmál VETUR 2011 47 var því varðveitt . Hér á landi hefur því verið haldið fram að innganga Svíþjóðar í Evrópusambandið árið 1994 hafi bjargað efnahag Svíþjóðar . Það er ekki rétt . Til samanburðar er hægt að nefna það hér, að í aðdraganda og í kjölfar bankahrunsins á Íslandi féll íslenska krónan um tæplega 48 prósent gagnvart evru og er fallið í dag í kringum 40 prósent . Við höfum nú í tímarúmi fengið svipað ráðrúm og Svíþjóð fékk . Finnska markið: bjargvættur ÍFinnlandi hafði á sama tíma gengið mikið á vegna bankabólu á fyrirtækja markaði sem leiddi til ofurskuldsetningar fyrirtækja, of mikilla launahækkana og of hás gengis finnska marksins sem meðal annars var afleiðing bindingar þess við ERM . Ofan í þetta kom upplausn Sovétríkjanna sem leiddi til hruns útflutningstekna . Áföllin voru margþætt og komu hvert ofan í annað . Finnland gafst upp á einhliða bindingu finnska marksins gagnvart ERM þann 8 . september 1992, eftir að hafa fyrst fellt gengið um rúmlega 12 prósent þann 14 . nóvember árið áður . Finnska markið var sett á flot í september 1992 og verð- bólgu markmið tekin upp . Finnska markið féll þá rúmlega 35 prósent gagnvart þýska markinu og botnaði fyrri hluta ársins 1993 . Finnland gekk í Evrópusambandið árið 1995 . Hið frjálsa flot finnska marksins endaði í október 1996 þegar landið rann inn í myntbandalag Evrópusambandsins . Síðustu fréttir af upptöku evru í Finnlandi eru meðal annars þær að árið 2009 féll landsframleiðsla Finnlands um 8,2 prósent, sem er mesta hrun hennar á einu ári frá upphafi mælinga árið 1918 og útflutningur dróst saman um fjórðung . Til samanburðar féll landsframleiðsla á Íslandi um 6,7 prósent árið 2009 og útflutningur jókst . Í dag þarf finnska ríkið að greiða tvöfalt hærri vexti en sænska ríkið fyrir lán til 10 ára á alþjóðlegum fjármálamörkuðum . Þetta er m .a . verðið fyrir að kasta sjálfstæðri mynt Finnlands fyrir róða . Dönsk króna bundin í hafti Frá árinu 1985 hefur dönsk króna verið bundin við gengisskráningu þýska marksins og síðar evru . Danska krónan fylgir því verðlagi evru á mörkuðum . Gagnvart öllum öðrum gjaldmiðlum heimsins hoppar og skoppar danska krónan á degi hverjum . Þá útflutningsmarkaði Dan- merkur sem eru í vexti er ekki endi l ega að finna í Evrópu lengur . Mark de Broeck, fulltrúi sendinefndar Al þjóðagjaldeyris- sjóðsins í Danmörku, sagði í viðtali við fréttaveitu Bloombergs í nóvember 2010, að þessi binding dönsku krónunnar við evru hefði ekki skilað neinum árangri, væri kostnaðarsöm, krefð ist sífelldra breytinga og oft óþægilegra hækk ana á stýrivöxtum umfram þær sem gerast hjá öðrum seðlabönkum . Bindingin krefst einnig daglegra aðgerða af hálfu danska seðlabankans og de Broeck sagði enn fremur að bindingin hefði ekki verndað Danmörku gegn áföllum fjármála- krepp unnar . Þetta var auðvitað sagt þá til þess að reyna að þrýsta Danmörku inn á evru svæðið . Staðan er hins vegar öll önnur í dag því að þökk sé sjálfstæðri mynt verð- launa nú fjár mála markaðir Danmörku fyrir að hafa eigin mynt — sem þó getur rifið sig lausa frá evrunni — með lægri vöxtum en ríkissjóður Þýskalands nýtur nú á mörk- uðum . Þó ekki eins lágra vaxta og sænska ríkið nýtur með sænsku flotkrónuna . Rök- semda færsla AGS gildir þó enn, en bara á hinn veginn . Árið áður gaf danski hagfræði prófess- or inn Jesper Jespersen við há skóla-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.