Þjóðmál - 01.12.2011, Page 49

Þjóðmál - 01.12.2011, Page 49
48 Þjóðmál VETUR 2011 miðstöðina í Hróarskeldu út rit dönsku hugveitunnar „Ny Agenda“, sem bar yfir- skriftina: „Dönsk peningamálastefna síð ustu 10 árin í ljósi efnahagsmála mynt banda- lags Evrópusambandsins“ . Mikilvæg ustu nið ur stöður skýrslunnar eru þær að séu efna- hags mál myntbandalags Evrópu sam bands- ins skoðuð í ljósi síðustu 10 ára hafa þau lönd sambandsins, sem tekið hafa í notkun sam eigin lega mynt Evrópusambandsins, notið minni hagvaxtar og efnahagslegra fram fara en þau lönd sem haldið hafa sinni eigin mynt . Skýrslan bendir sérstaklega á þann æskilega möguleika að Danmörk taki upp sömu peningastefnu og Svíþjóð og Bret- land, þ .e .a .s . að Danmörk rjúfi bind ingu dönsku krónunnar við evru og láti mynt sína fljóta frjálsa á gjaldeyrismörkuðum . Höfundurinn kemur inn á ýmsar teg- undir peningamálastefnu og nefnir m .a . að myntir, sem fljóta frjálsar, séu stundum gerðar að skotmarki spákaupmennsku ef það eru fyrst og fremst færslur alþjóðlegrar banka- og fjármálastarfsemi sem eru ráðandi á markaði myntarinnar . En höfundur nefnir þó að þetta eigi nær eingöngu við um stórar myntir sem séu m .a . notaðar í gjaldeyrisforða á alþjóðamarkaði . Þetta eigi því fyrst og fremst við um myntir eins og dollar, evru og yen . Þessar stærri myntir geti því sveiflast mjög kröftuglega, sem á tíðum hefur neikvæðar afleiðingar fyrir skipulagningu innflutnings og útflutn- ings á vörum og þjónustu . Litlar myntir minni landa eiga ekki við þetta vandamál að stríða nema alveg sérstakar aðstæður séu ríkjandi, eins til dæmis þær sem voru á Íslandi, með ofvöxnu, áhættusæknu banka- kerfi í dauðateygjunum haustið 2008 . Fáir gera sér grein fyrir hversu háa banka- vexti neytendur þurfa oft að greiða í Dan- mörku og mörgum evrulöndum . Sem dæmi má nefna að dönsk bílalán hjá Danske Bank bera 8,3 til 12,6 prósent vexti í 2,7 prósent ársverðbólgu nú í nóvember 2011 . Vextir fara mikið eftir því hversu miklar eignir menn eiga enn eftir óveðsettar . Innláns vextir eru oft engir og eignalaust fólk greiðir hæstu vexti . Sjálfstæð mynt er verkfæri fullvalda ríkja Munurinn á myntmálum Finnlands í dag miðað við finnsku krepp- una í lok síðustu aldar er gífurlegur því að Finnland á enga mynt lengur . Landið tók upp evru og er komið í órjúfanlega læst gengissamband við öll önnur evru lönd . Frá því að Finnland rann inn í myntbandalag Evrópusambandsins hafa Þjóð verjar ekki fengið launahækkun í 13 ár . Þýskaland hefur á þessum tíma stundað það sem kallað er „innvortis gengisfelling“ því að það hefur stanslaust lækkað kostnað og laun í hagkerfi sínu miðað við öll önnur lönd myntbandalagsins . Frá því að fjár mála- kreppan skall á í byrjun 2008 hefur Þýska- land fellt innra gengi sitt miðað við önnur lönd myntbandalagsins um heil 6 prósent . Og nú krefst Þýskaland þess að hin löndin bjargi sér úr ógöngum sínum í mynt- bandalaginu með því að gera það sama og Þýskaland hefur gert; lækka laun og skera niður kostnað . Og hvað halda menn svo að Þýskaland geri ef svo ólíklega skyldi vilja til að hin löndin nái sér niður á þýskt launa- og kostnaðarhlutfall? Jú, Þýskaland mun þá bara lækka laun og kostnað enn meira hjá sér og draga þannig enn meira úr eftirspurn innan myntbandalagsins . Þetta er skrúfa án enda og frekar kapphlaup niður á botn samfélagsins en allt annað . Löndin í myntbandalaginu eru komin inn í vítahring . Það eina sem lönd eins og Þýskaland skilja er gengisfelling beint í andlitið . Löndin, sem eru í myntbandalagi með Þýskalandi, munu aldrei geta keppt

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.