Þjóðmál - 01.12.2011, Side 77

Þjóðmál - 01.12.2011, Side 77
76 Þjóðmál VETUR 2011 að minnast nýlegra atburða úr eigin sögu: oft er það fjárfestirinn en ekki sá sem tekur við fé af honum sem tapar mestu þegar stórhuga samningur er undirritaður . * Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-lands, snerist hart gegn þessum frétt- um og hugleiðingum í breskum fjölmiðlum í viðtali við The Financial Times 2 . september 2011 . Hann fagnaði landakaupum Huangs Nubos og sagði enga ástæðu til að óttast fjárfestingar Kínverja . „Kínverjar og Indverjar réttu Íslandi hjálparhönd á margan uppbyggjandi hátt á meðan Evrópa var fjandsamleg og Bandaríkjamenn ekki til staðar,“ sagði Ólafur Ragnar við breska blaðið og hann sakaði ESB um að hafa „snúið byssum sínum að Íslandi“ vegna deilunnar um IceSave, en Bandaríkin hefðu ekki sýnt Íslandi minnsta áhuga síðan herstöðinni á Miðnesheiði var lokað í september 2006 . The Financial Times sagði Ólaf Ragnar hafa heimsótt Kína fimm sinnum á síðustu sex árum og að hann segðist hafa tekið á móti fleiri kínverskum sendinefndum í forsetatíð sinni en „Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn samanlagt“ . Þá hefði það gerst vegna afskipta Ólafs Ragnars og bréfs hans til forseta Kína að kínverski seðlabankinn hefði gert gjaldeyrisskiptasamning við Ísland . Í hádegisfréttum RÚV 3 . september 2011 sagði Ólafur Ragnar að umræður í evrópsk- um fjölmiðlum vegna kaupa Huangs Nubos hefðu verið „að þróast í gjörningaveður gagnvart Íslandi, og mikilvægt hafi verið að koma á framfæri að engin ástæða væri til að óttast kínverska athafnamenn frekar en frá Evrópu eða Bandaríkjunum, sem Ísland hafi nú þegar átt mikil samskipti við“ . „Og það var nauðsynlegt að þessi þáttur kæmist á framfæri svo menn færu ekki í evrópskum miðlum að búa til enn eina sjónhverfinguna gagnvart Íslandi,“ sagði forseti í RÚV . Orðin sýndu að Ólafur Ragnar taldi túlkanir fjölmiðla í Bretlandi á tengslum Huangs Nubos við kínverska kommúnistaflokkinn og upprifjanir þeirra á störfum hans í áróðursmálaráðuneyti Kína neikvæða „sjónhverfingu gagnvart Íslandi“ . Ólafur Ragnar sagði tengsl Huangs Nobus við kínverska kommúnistaflokkinn engu máli skipta . „Allir þeir sem þekkja söguna í Kína vita að nánast allir efnilegir ungir menn hér á fyrri áratugum voru í tengslum við kommúnistaflokkinn . Það var nú bara eins og var hér á Íslandi að ef menn ætluðu að komast áfram í stjórnkerfinu þá urðu menn að vera í ráðandi stjórnmálaflokkum,“ sagði forseti Íslands í RÚV . * Kristín Árnadóttir, sendiherra Íslands í Kína, sat blaðamannafund í Peking með Huang Nubo . Þýska fréttastofan Deutsche Welle sagði frá fundinum 3 . september 2011 en hann var haldinn í Peking . Þar fagnaði Kristín kaupum Huangs á Grímsstöðum á Fjöllum . Kristín Árnadóttir var hægri hönd Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur sem borgar- stjóra og hóf störf í utanríkis ráðu neytinu þegar Ingibjörg Sólrún varð utanríkis- ráðherra vorið 2007 . Fól hún Kristínu að stjórna lokabaráttu Íslands fyrir setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem skilaði ekki þeirri niðurstöðu sem að var stefnt . Össur Skarphéðinsson skipaði Kristínu sendiherra í Kína eftir að hann varð utanríkisráðherra í ársbyrjun 2009 . Í byrjun október 2010 birtist frétt á dv.is um að Hjörleifur Sveinbjörnsson, eigin- maður Ingibjargar Sólrúnar og mágur Össurar Skarphéðinssonar, hefði fengið lánaðan bílaleigubíl á kostnað utan ríkis-

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.