Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 83

Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 83
82 Þjóðmál VETUR 2011 málsmeðferð og málshraða . Bæði í héraði og fyrir Hæstarétti leyfðist verjendum sakborninga átölulaust að komast áfram með málatilbúnað sem fyrst og fremst var til þess að tefja mál en þjónaði ekki vitrænum tilgangi við að ljúka málinu eða fá fram hina einu réttu niðurstöðu . Sambærileg atriði komu að hluta til enn betur í ljós í litlu og einföldu máli gagnvart níumenningunum svonefndu . Þar komst verjandi hluta ákærðra upp með að senda gjörsamlega ónýtar kærur aftur og aftur til Hæstaréttar . Kærur sem voru eingöngu til þess fallnar að tefja málið . Þetta komst lögmaðurinn upp með átölulaust sem gefur þá vísireglu fyrir aðra lögmenn að fara eins að . Hæstiréttur hefði í því máli átt að beita þeim málskostnaðar- og sektarúrræðum sem tiltæk eru í réttarfarslögum þegar svona er farið að . En það gerði Hæstiréttur ekki . „Síðasta vörnin“ brást því við málsmeðferð í máli níumenningana . Til samanburðar er gott fyrir fólk að huga að því með hvaða hætti tekið var á sambærilegu óeirðafólki í Danmörku þegar loftslagsráðstefnan var haldin . Ákærur voru gefnar út fljótlega eftir atburðinn og dómar kveðnir upp fljótlega þar á eftir . Hér dróst í langan tíma að gefa út ákærur og málsmeðferð dróst úr hófi . Ég er sammála höfundi um að „síðasta vörn in“ hafi brugðist, en hún brást víðar en í Baugsmálinu og hefði verið gaman að fá ítarlegri umfjöllun um fleiri mál . En þá hefði bókin orðið margföld að vöxtum og ekki sú sem höfundur ætlaði henni að vera . Málsmeðferð í ýmsum málum varðandi fjármálastarfsemi jafnvel nokkrum árum fyrir bankahrun höfðu ýmis áhrif . Í því sambandi má minna á mál gegn ákveðnum sparisjóði árið 2006 þar sem að mínu mati voru gerðar óeðlilegar sönnunarkröfur . Þá voru sett viðmið varðandi stjórnvaldssektir þar sem þær voru undantekningarlaust lækk aðar frá því sem stjórnvöld höfðu ákveðið . Það á vel við að minna á að settar voru strangar kröfur um andmælarétt og stjórn- valdssektir lækkaðar gagnvart fjár mála- fyrirtækjum og aðilum á markaðnum fyrir hrun . Rannsóknarnefnd Alþingis gaf þeim aðilum opinberrar stjórnsýslu, sem nefndin sakar um ávirðingar, hins vegar ekki sam- bærilegan andmælarétt og dómstólar höfðu áður tryggt fjármálafyrirtækjum og aðilum á markaði . Þingnefnd Atla Gíslasonar hrl . stimplaði síðan gjörninginn með þeim óvönduðu vinnubrögðum sem sú þing- nefnd viðhafði . Höfundur einskorðar sig við umfjöllun um ábyrgð dómstóla og fjölmiðlaumræðu . Fleiri hlutir þurfa að koma til frekari um- fjöllunar . Ég bendi t .d . á ábyrgð há skóla - samfélagsins íslenska . Þar dönsuðu svo- nefndir fræðimenn almennt eftir pípum útrásar víkinga og banka en lögðu lítið til almennrar umræðu um þá hættu sem steðjaði að íslensku efnahagslífi . Þegar skýrsla Danska bankans um málið kom fram árið 2006 brást háskólasamfélagið algerlega . Stjórnmálastéttin og fjölmiðlarnir brugðust þá líka gersamlega . Annar aðili hefur einnig orðið útundan í umræðunni um ábyrgð á hruninu en það er Kauphöllin . Lítið er vikið að henni í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, þó svo að hlutur hennar hafi að mínu mati verið meiri en almennt hefur verið vikið að í þjóðfélagsumræðunni . Tekið skal undir það með höfundi að dómstólar eru „síðasta vörnin“ í réttarrík- inu . Höfundur á þakkir skildar fyrir að hefja umræðu um þessi mál og gera það með jafn öfgalausum og góðum hætti og hann gerir í þessari bók, Síðustu vörninni . Þegar niðurstöður dómstóla eru metnar og um þá fjallað má aldrei gleyma því, að dómarar eru fólk eins og við hin . Hughrif
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.