Þjóðmál - 01.06.2014, Blaðsíða 57
56 Þjóðmál SUmAR 2014
Eva Hauksdóttir
Væri rétt að kenna kynja-
fræði í grunnskólum?
Sú skoðun virðist útbreidd að grunn-skól inn eigi að innræta börnum tiltekin
við horf . Þessa sér stað í aðalnámskrá grunn -
skólanna en samkvæmt henni eru grunn-
þæt ttir menntunar lýðræði, jafnrétti,
sjálf bærni, heilbrigði, sköpun og læsi .
Þótt merk ing þessara hugtaka sé hvorki
einföld né óum deild hefur þessi áhersla
aðalnámskrár nánast engri gagnrýni sætt . Ef
til vill skýrist það af þeirri túlkun að skólum
beri að starfa í anda lýðræðis, jafnréttis
o .s .frv . fremur en að taka upp markvissa
kennslu í þessum grunn þáttum . Þó hafa
feministar nú sent frá sér ályktun um að
kynjafræði skuli tekin upp sem skyldufag
í grunn- og framhaldsskólum1 og verði af
því mun brátt reyna á það hlutverk grunn-
skólans sem aðalnámskrá virðist boða; að
innræta börnum pólitískar og móralskar
hugmyndir .
Ályktun feministanna kemur ekki á óvart
enda hefur meint þörf fyrir kynja fræði-
1 Ályktun Kvenréttindafélags Íslands og Landssambands
femínistafélaga framhaldsskólanna um kennslu í kynjafræði
í grunn- og menntaskólum landsins . http://kvennabladid .
is/2014/04/18/kennsla-til-jafnrettis/, sótt 11 . maí 2014 .
kennslu verið í umræðunni um nokkurt
skeið . Kvenhyggjuhreyfingin er áhrifa -
mikil á Íslandi og sjálfsagt þykir að stjórn-
mála menn noti stofnanir sam félagsins í
þágu fem inisma . Til dæmis stóð ráðu neyti
mennta- og menningarmála fyrir útgáfu
kynja fræðinámsefnis fyrir framhalds skóla
sum arið 2010 og þáverandi mennta mála-
ráð herra, Katrín Jakobsdóttir, ritaði formála
að náms efninu sem ber heitið Kynungabók .
Það er því ástæða til að ætla að einhverjir
stjórn málamenn muni taka þessa ályktun
til greina .
Rök feministanna fyrir því að kenna þurfi
kynjafræði í skólum eru annars vegar þau að
jafnréttisfræðsla sé lögboðin og hins vegar
þau að kynjafræðikennsla í framhalds skól-
um hafi skilað þeim árangri að nemendur
hafi stofnað feministafélög . Við þetta er
tvennt að athuga: Í fyrsta lagi ríkir engin
sátt um það sjónarmið að jafnréttisfræðsla
sé best komin í höndum kynjafræðinga . Í
öðru lagi er það tæplega hlutverk grunn-
skólans að stuðla að framgangi pólitískra
hreyfinga . Ég tel í meira lagi vafasamt að
láta kynjafræðinga annast jafnréttisfræðslu