Félagsbréf - 01.07.1960, Page 25
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON:
BRYNJÓLFUR PÉTURSSON
orvindurinn, sem -þandi út segl kaupskipanna, sem létu í haf til Islands
vorið 1834, færði íslendingum boðsbréf um nýtt tímarit. Höfundar
bréfsins voru 3 studiosi juris, sem hétu Brynjólfur Pétursson, Konráð Gísla-
son og Jónas Hallgrímsson. Tímaritið var Fjölnir og með útkomu hans
árið 1835 ljómaði morgunroði nýrrar aldar á íslandi.
Brynjólfur Pétursson var yngstur af stofnendum Fjölnis. Á þessu ári
eru liðin 150 ár frá fæðingu hans. Hann fæddist 15. apríl 1810, og var
þriðja barn prófastshjónanna á Víðivöllum í Skagafirði, Péturs Péturs-
sonar og Þóru Brynjólfsdóttur. Pétur prófastur þótti hinn merkasti maður
fvrir margra hluta sakir. Hann var talinn góður kennimaður og vel lærður
að þeirra tíma sið, gestrisinn og hjálpfús, enda gengu efni hans til þurrðar,
þegar leið á ævina. Hann hafði augðgazt vel á yngri árum, og fyrri kona
hans, Elín Grímólfsdóttir, var vel efnum búin, er hann fékk hennar.
Pétur prófastur vandaði mjög uppeldi barna sinna. Áður en hann sendi
tvo elztu syni sína, Pétur og Brynjólf, í Bessastaðaskóla, voru þeir tvo
vetur við nám hjá sr. Einari Thorlaciusi í Goðdölum. Þar urðu fyrstu
kynni Brynjólfs og Jónasar Hallgrímssonar. Haustið 1824 fóru þeir bræður
Pétur og Brynjólfur í Bessastaðaskóla, og Brynjólfur lauk þaðan burtfarar-
prófi vorið 1828. Haustið 1829 sigldi'hann svo til Kaupmannahafnar og
lagði stund á lögfræði og lauk prófi vorið 1837. Á háskólaárum sínum tók
Prvnjólfur virkan þátt í félagsstörfum og félagslífi íslendinga í Kaup-
mann'ahöfn. Árið 1830 gerðist hann félagi í Hafnardeild Bókmenntafélags-
ms. Það var á þeim tíma, sem mest gekk á í félaginu vegna deilna þeirra
Baldvins Einarssonar og Rasks, en það voru einkum hinir yngri, sem fylktu
sér um Baldvin, og sennilega hefur Brynjólfur verið í þeirri sveit, þó að
vitneskjuna um það vanti. Eftir lát Baldvins varð Brynjólfur ritari Hafnar-
deildarinnar um skeið. Síðar varð hann varaforseti og forseti eftir lát