Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1880, Side 73
63
1880
ætlað, og 4. gr. veitir að eins heimild til að greiða úr landssjóði kennslukostnað þeirra 03
yfirsetukvenna, er gjöra má viss ráð fyrir, að verði skipaðar í eitthvert umdœmi. 10 m!
fetta er tjáð yður, hera amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar fyrir
hlutaðeigöndum, um leið og jeg endursendi yður viðkomandi reikning, er ekki verður borg-
aður úr landssjóði.
— Brjef landsliöföingja til amtmannsins yfir suður- og vesturumdœminu um sýslu- 04
mannssetur í Skaptafellssýslu. — í þóknanlegu brjefi frá 10. þ. m. hafið þjor lö.marz
herra amtmaður, sent mjer eptirrit eptir brjefi, þar sem hinn setti sýslumaður í Skapta-
fellssýslu Einar Thorlacius hefir farið þess á leit, að jörðin Kirkjubœr á Síðu, sem nú í
mörg ár hefir verið sýslumannssetur, en til þess er hún eptir afstöðu sinni einkar vel
fallin, og verður hún laus úr ábúð frá næstkomandi fardögum, verði loigð einungis um
eitt ár, eða með þeim skilmálum, að sýslumaðurinn í Skaptafellssýslu geti fengið jörð
þessa til ábúðar, þegar hann œskir þess. í annan stað leggið þjer það til að Kirkjubœj-
arklaustur verði gjört að föstu sýslumannssetri í Skaptafellsýslu framvegis, og að ábúð
jarðarinnar frá næstkomandi fardögum verði falin hinum setta sýslumanni Einari Thor-
lacius.
far eð jeg er á sama máli og þjer, herra amtmaður, um það, aðjörð sú, er hjer
rœðir um, sje bæði hvað afstöðu sína og ásigkomulag snertir, einkar vel fallin til að
vera sýslumannssetur, og með því að álíta má tilmæli þau, sem hjer liggja fyrir frá hinum
setta sýslumanni Einari Thorlacius, sem yfirlýsingu frá hans hendi, að hann að sínu leyli
sje fús til frá næstkomandi fardögum að taka að sjer þessa jörð, er það hjer með sam-
þykkt, að Kirkjubœjarklaustur verði framvegis sýslumannssetur fyrir Skaptafellssýslu, og
að sýslumaðurinn, hver sem hann verður, taki jörðina með ákveðnum skilmálum.
Að því er byggingarskilmálana snertir, verður framvegis að byggja jörðina með
340 álna landskuld, sem greiðist eptir meðalverði allra meðalverða, og er stungið upp á
þessu í tillögum þeim, er hlutaðeigandi umboðsmaður samdi samkvæmt umburðarbrjefi
19. septbr. 1877 og síðan voru samþykktar af amtsráðinu og lagðar fyrir alþingi; en
áður hefir landskuldin verið 402 álnir, goldnar að nokkru leyti eptir meðalverði á ullu
og að nokkru leyti með 16 a. fyrir hverja alin.
Hið framanskráða er hjer með tjáð yður herra amtmaður til þóknanlegrar leið-
beiningar og birtingar og annara ráðstafana.
— Brjef landshöfðingja til stiptsyfirvaldanna um lán tilað byggja stcinhús 05
áprestssetri. — Samkvæmt beiðni prestsins að Görðum á Akranesi og meðmælum lG.marz
stiptsyfirvaldanna hefi jeg leyft, að nefnt prestakall fái lán úr viðlagasjóði að upphæð
1600 kr., til þess að byggja steinhús á prestssetrinu, og er ætlast til, að það komi í
stað allra bœjarhúsa þar. Lán þetta er veitt með þeim kostum, að það endurborgist á
hinum næstu 20 árum með 80 kr. árlega og ávaxtist með fjórum kr. af hundraði á ári
af þeim hluta af láninu, er hvert sinn er eptir ógreiddur.
J>etta er hjer með tjáð stiptsyíirvöldunum til þóknanlegrar leiðbeiningar og birt-
ingar fyrir hlutaðeiganda.