Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1880, Side 171
Stjórnartíðindi E. 23.
161
1880
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshöfdingia um sölu á kirkj ujörð. —
Samkvæmt allra þegnlegustu tillögum ráðgjafans, þá er hann hafði meðtekið þóknanlogt
brjef yðar, herra landshöfðingi, frá 23. ágúst þ. á. hefir hans hátign konunginum hinn
13. þ. m. allramildilegast þóknazt að fallast á, að jörðina Haukagil í Hvítársíðuhreppi í
Mýrasýslu í vesturumdœmi íslands, sem liggur undir Gilsbakka prestakall, megi selja
Sigurði söðlasmið Jónssyni að jarðakaupum fyrir jörðina Hvassafell í Norðurárdalshreppi
í sömu sýslu með tilheyrandi hjáleigum, Uppkoti og Útkoti, þannig að hina fyrnefndu
jörö beri eptirleiðis að því er snertir gjaldskyldu að skoða sem bœndaeign, en hina síð-
arnefndu sem kirkjujörð.
petta læt jeg ekki undir höfuð leggjast að tjá yöur, herra landshöfðingi, til
þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar.
— Ilrjef ráðgjafans fyrir ísland Ul landshöfðingja um p rj edi k u n a rtexta. —
Sainkvæmt allra þegnlegustu tillögum ráðgjafans, er hann gjörði eptir að hafa meðtékið
þóknanlegt brjef yðar, herra landshöfðingi, frá 14. júní þ. á., hefir hans hátign konung-
inum þóknazt hinn 13. f. m. allramildilegast að fallast á,
1, að biskupinum yfir íslandi veitist vald til, að leyfa prestum þar ár frá ári eða eplir
annari liagkvæmri reglu að prjedika lil skiptis út af liinum fyrirskipuðu guðspjalla-
textum og út af hinum fyrirskipuðu pistlatextum, og onn fremur að biskupinn geti
veitt prestunum leyfi til um vissan tíma að prjedika út af öðrum textum eða köli-
um hins nýja testamentis eða litlu frœðum Lúthers, þó má ekki leyfa þetta þá
sunnudaga í föstunni, er prjedika skal út af píningarsögu Krists.
2, að þegar presturinn prjedikar út af öðrum texta en hinu fyrirskipaða guðspjalli, þá
skuli hann samt tóna það, og
3, að lagt verði fyrir prestinn, ef hann af sjerstökum ástœðum skyldi hafa notað sjálf-
valinn texta, þá að tilkynna það prófasti.
petta undanfollir ráðgjafinn ekki hjer moð þjónustusamlega að tjá yður, herra
Iandshöfðingi, til þóknanlegrar leiðboiningar og birtingar.
— Brjef landsllöfðing'ja til amtmannsins yfir norður- og austurumdœminu um
umboðsmann sýslumanns við tollheimtuna. — í þóknanlegu brjefi frá 14.
f. m. sögðuð þjer, herra amtmaður, mjer álit yðar um erindi Pjeturs verzlunarstjóra Guð-
johnsens á Vopnafirði, er hann hafði hingað sent, og þar sem hann fer þess á leit, að
þar á staðnum verði settur maður, sem á eigin ábyrgð hafi á hendi störf þau, er sam-
fara eru tollheimtunni. Vil jeg því hjer með tjá yður til þóknanlegrar leiðbeiningar og
birtingar, að hið umbeðna verður ekki veitt, því að ábyrgðin á tollheimtunni hvílir á
lögreglustjóra, og er þar í fólgin trygging bæði fyrir landssjóð og tollgreiðendur; aptur á
móti er sýslumaðurinn í Norðurmúlasýslu skyldur til að hafa umboðsmann á Vopnaflrði,
löggiltan af amtinu, sem sýslumannsins vegna og á hans ábyrgð gætir starfa þeirra, sem
eru samfara tollheimtunni þar.
— Brjef laildshöfðingju til amtmannsins yfir norður- og austurumdœminu um
flutning úr framfœrslusvoit. — Eptir að Hjörtur sá Guðmundsson, er getur um
Ilinn 20. desbr. 1880.
165
16. okt.
166
16. okt.
167
20. okt,
168
25. okt.