Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.04.1995, Side 43
stæða þýðingu fyrir hinn siðmenntaða heim. Það er varla alveg út í hött að
fullyrða að siðmenningin væri ekki möguleg án pappírs. Hvernig færi hinn
siðmenntaði maður að, við skulum vona að hann sé siðmenntaður, ef eng-
inn pappír væri búinn til. Tilvera alls þorra mannkyns er ískyggilega háð
pappírnum. Við nánari íhugun fínnum við að til eru vissir hlutir sem við
getum ekki verið án. Almennt talað er til þykkur og þunnur, glansandi og
mattur, grófur og fínn, dýr og ódýr pappír og með góðfúsu leyfi lesarans
blasa við margvíslegar pappírsgerðir og tegundir: skrifpappír, sandpappír,
prentpappír, smjörpappír, umbúðapappír, teiknipappír, dagblaðapappír og
silkipappír. Foreldrar undirritaðs áttu snotra og netta pappírsvörubúð og
það er sennilega þess vegna sem hann á svona auðvelt með að telja upp
margvíslegar gerðir pappírsins. Það er Iíka vel hugsanlegt að við finnum
einhvern tíma pappírssnepil, kannski rekumst við á hann í rykfallinni rithöf-
undarskúffu, og það er búið að skrifa á hann sögu sem hljómar eitthvað á
þessa leið:
Maðurinn sem tók ekki eftir neinu
Fyrir stuttu, eða löngu, var maður sem tók ekki eftir neinu. Hann veitti engu
athygli, honum stóð nákvæmlega á sama um allt. Var hann þá svona djúpt
hugsi? Það er nú öðru nær! Hann var gjörsamlega rænulaus og tómur. Einu
sinni missti hann allar eigur sínar án þess að taka eftir því, án þess að finna
fyrir því. Það snerti hann alls ekki vegna þess að sá sem tekur ekki eftir
neinu er ónæmur fyrir öllu. Ef hann hafði lagt regnhlífina sína einhvers
staðar frá sér tók hann fyrst eftir því þegar fór að rigna og hann varð gegn-
drepa. Gleymdi hann hattinum sínum veitti hann því ekki athygli fyrr en
einhver sagði: „Hvar er hatturinn yðar, herra Binggeli?" Hann hét Binggeli
og gat ekki að því gert. Hann hefði fullt eins viljað heita Liechti. Einu sinni
duttu sólamir undan skónum hans, hann varð þess ekki var heldur arkaði á
sokkaleistunum út um allar trissur þar til einhver benti honum á hvað þetta
væri skrýtið. Allir gerðu stólpagrín að honum en hann tók ekki eftir neinu.
Konan hans svaf hjá hverjum sem hún vildi. Binggeli varð einskis var.
41