Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 75

Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 75
MINNINGAR 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Elsku Munda amma. Núna ertu komin til pabba, afa og Eiríks. Þú varst alveg tilbúin að yfirgefa þennan heim og halda á vit nýrra æv- intýra. Sátt við lífið og árin áttatíu og sex sem þú varst hjá okkur. Takk, elsku amma mín, fyrir öll skemmtilegu símtölin okkar, það gerðist nú oftar en einu sinni að við hringdum á sama tíma í hvor aðra. Takk fyrir samveruna í Genf fyrir fimm árum þegar þú heim- sóttir okkur, það voru yndislegir dagar. Þó að þú hafir lent inni á spít- ala í Genf með lungnabólgu og erfitt væri að gera sig skilj- anlega í frönskumælandi borg- inni. Þú tókst því með brosi á vör, og fannst þetta bara skemmtilegt. Þannig var það líka alltaf hjá þér, elsku amma, þú varst alltaf í góðu skapi, elskaðir að hafa fjör í kringum þig og þú varst líka svo dugleg að styrkja vina- og fjölskylduböndin. Enda þegar ég syng lagið fyr- ir Atla Má , „ég langömmu á sem að létt er í lund“, þá hugsa ég alltaf um þig. Guðmunda Sigríð- ur Eiríksdóttir ✝ Guðmunda Sig-ríður Eiríks- dóttir fæddist 3. september 1929. Hún lést 25. októ- ber 2015. Útför Guðmundu fór fram 5. nóv- ember 2015. Takk, elsku amma, langamma og langalangaamma fyrir yndislegu stundirnar sem við áttum með þér, blessuð sé minning þín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lif- um í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sigríður, Veturliði, Sandra Sif, Hinrik Þór, Snorri Karl, Atli Már, Alexander Leó og Snævar Freyr. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær, og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóst þitt fái svala. (Davíð Stefánsson) Ég kveð með söknuði Að- alheiði fóstursystur mína. Ég minnist æskuáranna á Stað í Súgandafirði þar sem leiðir okkar lágu fyrst saman, það voru góð og yndisleg ár, og líka á Mælifelli í Skagafirði er við fluttumst þangað. Þú hafðir svo gott skaplyndi og bros og söng- ur fylgdi þér. Þegar ég hugsa til baka til æskuáranna finnst mér þau full af gleði og söng og góðu sam- komulagi. Allir voru ánægðir með sitt. Þú varst elst af okkur átta börnum, fimm stelpur og þrír strákar, stór hópur, og við lit- um öll upp til þín. Þú fórst á húsmæðraskólann á Staðarfelli og komst heim með svo fallega handavinnu. Síðan lærðir þú til ljósmóður og fórst það frábærlega úr hendi. Ég veit að það verða margir sem rekja þitt æviágrip og svo margir sem hugsa með þökk til þín. Aðalheiður Kolbeins ✝ Ingveldur Að-alheiður Kol- beins fæddist 23. desember 1924. Hún lést 28. október 2015. Útför Aðalheiðar fór fram 7. nóvem- ber 2015. Aldrei mun ég gleyma dögunum sem við áttum á Suðureyri fyrir nokkrum árum og Lilja dóttir þín var bílstjórinn og skipuleggjandinn. Þú, Erna, Þórey, Lára og ég, það voru dýrðardagar og að fara um Vestfirðina í svona fallegu veðri, eins og við feng- um, það gleymist aldrei. Hjart- ans þakkir fyrir allt og allt. Samúðarkveðja til barna þinna og barnabarna. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson) Hjartans þakkir, Guðrún (Rúna) systir. Ég minnist mágkonu minnar, Aðalheiðar Kolbeins, ljósmóður á Patreksfirði, með söknuði og virðingu. Ég minnist hennar, þegar hún kom til Reykjavíkur gagngert til að taka á móti dóttur okkar Þóreyjar í heima- húsum, hve örugg og fumlaus hún var. Á milli þeirra systra var kærleikssamband sem hélst jafnt og innilegt þótt vegalengd væri á milli. Fyrir Þóreyju var Aðalheiður ávallt stóra systir. Ég minnist hennar í gagn- kvæmum heimsóknum, hve hún var frjálsleg, það sópaði að henni hvar sem hún kom, gleði og öryggi var henni meðfætt. Minning um gjöfula nærveru hennar mun eigi fyrnast. Baldur Ragnarsson. ✝ Hilmar Guð-mundsson fæddist í Reykjavík 8. október 1936. Hann lést á Land- spítalanum 3. mars 2015. Foreldrar Hilmars voru Ingi- ríður Sigurbjörg Sveinbjörnsdóttir, húsfreyja á Indr- iðastöðum í Skorra- dal, f. 1908, d. 1993, og Guðmundur Einar Þorkelsson matsveinn, f. 1906, d. 1968. Stjúp- faðir Hilmars var Sigurður Ágúst Daníelsson, bóndi á Indr- iðastöðum. Hálfsystkin Hilmars sammæðra eru Gylfi Þór, f. 1942, Sveinn, f. 1946, og Guðlaug, f. 1952. Hálfsystkin samfeðra voru Gunnhildur Ósk, f. 1930, d. 2001, og Sigríður, f. 1946. Hilmar kvæntist Erlu Ragnarsdóttur, rit- ara á Borgarskrif- stofunum, 6. júlí 1963. Dætur þeirra eru: Stúlka, and- vana fædd 1964, og Hrönn, f. 1966, ís- lenskufræðingur og áfangastjóri við Borgarholtsskóla. Eiginmaður Hrann- ar er Þorgeir Adamsson garð- yrkjufræðingur. Börn þeirra eru Adam Þór, f. 1991, og Ragnhild- ur Erla, f. 1995. Hilmar var búfræðingur frá Hólum og stundaði hesta- mennsku lengst af ævinnar. Hann starfaði lengi sem bílstjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands, Hlaðbæ og síðar á sendibílastöð. Útför Hilmars fór fram 12. mars 2015. Þeim fækkar óðum sam- ferðamönnunum þegar aldurinn færist yfir. Þegar fyrstu geislar okkar kalda vors gægðust fram yfirgaf hann Hilmar mágur minn þetta jarðlíf. Það var líka kalt þegar hann, lítill drengur, tiplaði óstyrkum fótum á vori lífs síns. Þótt móðurfaðmurinn væri hlýr var veröldin köld og stjúpfaðirinn strangur og grimmur. Hann bar þess merki alla tíð og fann oft fyrir bjarg- arleysi lítilmagnans. En Hilmar var seigur og greindur og margt til lista lagt. Hann fór á héraðsskólann við Ísafjarðar- djúp og síðan á Hólaskóla það- an sem hann útskrifaðist sem búfræðingur með góðum vitn- isburði. Hann var í nokkur ár ráðs- maður á Melstað hjá séra Gísla Kolbeins þar sem hann átti mjög góða daga. Vinátta hélst með þeim alla tíð. Ég man allt- af glampann í augunum hennar Erlu systur minnar þegar hún tók rútuna norður að Melstað til þess að hitta hann Hilmar sinn. Þá var gott að vera til. Svo lá leiðin til Reykjavíkur, þau giftu sig og framtíðin blasti við björt og fögur. En sorgin beið handan við hornið. Litla telpan þeirra, full- burða og falleg, fæddist and- vana. Þá var dimmt í ranni. En svo kom sólargeislinn þeirra, hún Hrönn, sem var öllum gleði- gjafi. Hún þeysti í fyllingu tím- ans með pabba sínum á hestum um landið þvert og endilangt og Erla systir mín var oftar en ekki trússari. Hestar voru alla tíð líf og yndi hans mágs míns, hann var lunkinn tamningamaður og átti marga góða hesta. Hans ljúf- ustu stundir voru í hestaferðum á fjöllum í góðra vina hópi. Þar þekkti hann hverja götu, hvert vað og hvert kennileiti. Þar var hann fagmaðurinn sem gat tek- ist á við allt sem upp kom. En þegar veikindi Erlu systur minnar læddust að litlu fjöl- skyldunni var hann mát, þar gat hann lítið gert. Lífið varð illskiljanlegt og erfitt og fátt til hjálpar. Hrönn og hestarnir voru þó lengi gleðigjafarnir. Seinustu árin voru honum mági mínum erfið. Erla dáin, heilsan horfin, hestarnir minning ein og vin- irnir sömuleiðis. Þá var hver gleðistund vel þegin. Ein slík var þegar löng grein um uppá- haldshestana hans birtist í Eið- faxa. Þá brosti hann mágur minn breitt. Hrönn studdi pabba sinn til hinstu stundar og hann fylgdist af stolti með barnabörnunum sínum, Adam Þór og Ragnhildi Erlu. Nú er hann mágur minn horfinn á braut inn í eilífðar- landið þar sem hann þeysir á gæðingum á gullnum grundum. Blessuð sé minning hans. Guðfinna Ragnarsdóttir. Hilmar Guðmundsson Við bekkjarfélag- arnir í 3.E haustið 1965 í MR vorum einkum ættaðir úr Bústaðahverf- inu og komum úr landsprófi við Réttarholtsskóla. Meðal þeirrra sem bættust í þann hóp um haustið var Björn Jónasson, eða Bjössi eins og við vorum vanir að kallla hann. Við fengum tækifæri til að kynnast Bjössa í bílferðum til og frá skóla með Halldóri Rúnari sem var einn af þessum nýju fé- lögum okkar og átti þá Volkswa- gen Variant. Við félagarnir nut- um þess að fá far til og frá í Björn Jónasson ✝ Björn Jónassonfæddist 30. mars 1948. Hann lést 24. október 2015. Útför Björns fór fram 4. nóvember 2015. skólann og þannig sköpuðust sérstök kynni við Bjössa sem urðu óslitin í 50 ár. Þetta var síðasti árgangur sem fór óskiptur inn í MR, en ári síðar tók Hamrahlíð einnig við nemendum. Kröfurnar voru miklar og stílarnir í ensku og þýsku alla jafna rauðir, en það hindraði ekki að félagsskapurinn væri ræktaður á skemmtunum skólans. Bjössi valdi jarðfræði í háskólanum og lauk BSc. prófi frá HÍ í maí 1974. Lokaritgerð hans fjallaði um Skaftársvæðið. Bjössi vann á Orkustofnun í sumarfríum og lagði þar með grunn að starfi því sem hann gegndi í 15 ár og naut greinilega mikið. Verkefnin voru tengd rannsóknum á hálendinu, sem nýttust við val virkjunarkosta fyrir Landsvirkjun. Bjössi kynntist því fyrirtæki vel í starfi sínu fyrir Orkustofnun. Það urðu Bjössa mikil von- brigði þegar starfslok urðu á stofnuninni, en hann fékk síðar veigamikil verkefni hjá verk- takafyrirtæki Ellerts Skúlasonar ehf. í Njarðvík. En síðar urðu vatnaskil í starfsferlinum og Björn tók við rekstri fyrirtækis foreldra sinna, Kistufells, sem er varahluta- verslun með vélarhluti í bifreiðar og vélknúin tæki. Björn kynnti sér rekstrarfræði fyrirtækja og tók próf frá HÍ í 18 eininga námi um rekstrarfræði og viðskipta- fræði. Sú þekking hefur eflaust nýst honum vel en hann sinnti starfi sínu í Kistufelli af alúð og veitti viðskiptavinum bestu ráð- gjöf. Björn átti tvö börn í hjóna- bandi. Sonur hans var þroska- heftur og þurfti mikla aðgæslu og meðferð. Þessi reynsla hefur eflaust reynt mikið á hann and- lega, en Bjössi bar ekki sorgir sínar á torg og var alla jafna mjög jafnlyndur og hress í við- móti. Dóttir Björns, Jóhanna, að- stoðaði föður sinn í Kistufelli og ræktaði Björn samband við hana og dótturdætur sínar. Björn var mikill útivistarmað- ur og hafði gaman af að leita á slóðir hálendisins og fórum við nokkrar ferðir saman. Haustið 2006 var ljóst að Björn gekk ekki heill til skógar og þurfti hann að gangast undir mikla aðgerð. Ekki tókst að upp- ræta þennan sjúkdóm þrátt fyrir þessa aðgerð. Björn tók þessum slæmu fréttum af mikilli karl- mennsku og lét ekki deigan síga. Smám saman var þó ljóst að hverju stefndi en Bjössi blandaði ekki kunningjum sínum og vin- um í þessa baráttu. Hann fékkst við þennan vágest af æðruleysi. Í hugum okkar lifir minning um góðan dreng og blessuð sé minning hans. Við vottum fjölskyldu hans innilega samúð og við þökkum Birni samveruna í áranna rás. Stefán Einarsson og Jón Aðalsteinn Jóhannsson. Það er erfitt að setjast niður og skrifa minningar- grein um vin sem ég ætlaði að gera svo margt með. Við áttum eftir að bæta ótal minningum í okkar sameiginlega reynslu- banka. Þú hefðir samt ekki viljað að ég væri sorgmæddur og gréti, ég má ekki sakna þín of mikið því þú vildir að öllum liði vel og lést öllum líða vel í kringum þig. Fyrir þig þarf ég að vera sterk- ur og minnast þín með gleði í hjarta. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera vinur þinn og fá að umgangast þig eins mikið og ég í rauninni fékk, en það er ólýsanlega erfitt að missa þig. Einhver ráðlagði mér að rifja upp góða minningu og það er ekki erfitt, bara erfitt að velja. Við náðum ótrúlega vel saman og mér leið aldrei betur en þeg- ar við vorum tveir saman að spjalla um daginn og veginn. Við sögðum það oft, hvort sem við Páll Brynjarsson ✝ Páll Brynj-arsson fæddist 29. júní 1984. Hann lést 15. október 2015. Páll var jarð- sunginn 30. októ- ber 2015. vorum fullir eða ekki, að við elskuð- um hvor annan (ég viðurkenni að áfengi var oftar við hönd þegar þessi orð voru sögð en þau voru svo sann- arlega ekki þýðing- arminni eða létt- vægari fyrir vikið). Við kynntumst í Háskólanum í Reykjavik og urð- um strax virkilega góðir vinir. Síðan hef ég getað sagt með stolti að þú værir minn allra besti vinur. Aldrei hef ég verið stoltari en þegar ég stóð við hlið þér sem svaramaður þegar þú giftist ástinni í lífi þínu. Brúð- skaupshelgin þín er verðmæt í minningabankanum og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að aðstoða þig á þessum yndislega tíma. Ég fékk að upplifa ástina á milli þín og Bärbel og fékk að hitta allt frábæra fólkið í kring- um ykkur. Ég er líklega sá eini sem fékk að njóta góðs af því að tvisvar sinnum var þér ekki hleypt inn á skemmtistað. Í fyrra skiptið þótti dyraverði á Sólon þú ekki nógu snyrtilegur. Þú tókst þessu sem verkefni sem þyrfti að leysa og leitaðir til vinar okkar sem fór með þig í verslunarleiðangur til að uppfæra fataskápinn. Það var ekki hægt að láta það heyr- ast að þér væri ekki hleypt inn á skemmtistað vegna klæðaburðar og hvað þá að þú hafir ekki einu sinni fengið að fara inn á Sólon. Í síðara skiptið vorum við fé- lagarnir nokkrir saman á Októ- berfest í Vínarborg en dyraverð- inum leist ekki á þig og hleypti þér ekki inn. Þetta var eina manneskjan sem ég veit um sem hefur haft eitthvað á móti þér. En við létum þetta ekki trufla okkar. Við tveir röltum og fund- um okkur þægilegan stað þar sem við settumst niður, drukk- um, töluðum, grétum og hlógum langt fram á nótt. Ég er virki- lega þakklátur þessum dyraverði því þetta kvöld mun án efa fylgja mér það sem eftir er. Þú varst sá vinur sem stóðst við bakið á mér í gegnum sorg- ina þegar ég missti annan góðan vin og ég treysti því að hann taki vel á móti þér. Þið gætuð ekki fundið betri félagsskap og þrátt fyrir að ég muni vonandi ekki sjá ykkur í bráð þá veit ég að þið munið taka vel á móti mér þegar þar að kemur og bæta upp fyrir þann hlátur sem við áttum eftir að hlæja saman. Ég elska þig kallinn minn og mun reyna að lifa lífinu þannig að þú getir verið stoltur af mér. Þinn stolti vinur að eilífu, Magnús (Maggi). Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.