Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 79
1999-2004. Hún hóf þá doktorsnám í
sagnfræði samhliða starfi á miðl-
unarsviði við Þjóðminjasafn Íslands,
og lauk doktorsprófi í sagnfræði frá
HÍ í ágúst 2011. Doktorsritgerðin
vakti athygli og hlaut góða dóma
gagnrýnenda, en hún ber heitið Nú-
tímaheimilið í mótun: Fagurbætur,
funksjónalismi og norræn áhrif á ís-
lenska hönnun 1900-1970, útg. af
Háskólaútgáfunni 2011.
Arndís hefur haldið fyrirlestra og
birt fjölbreytt efni á innlendum og
erlendum vettvangi, m.a. um að-
gengi og varðveislu listheimilda,
stafræn myndgagnasöfn, íslensk
bókverk og íslenska hönnunar- og
húsgagnasögu, síðast á alþjóðlegri
ráðstefnu hönnunarsagnfræðinga í
Aveiro í Portúgal sumarið 2014.
Safnakonan fagnar nú aukinni
meðvitund Íslendinga um varðveislu
húsgagna og innréttinga frá sjötta
og sjöunda áratugnum, menningar-
verðmætum sem áður var fargað.
Arndís kenndi námskeiðið Söfn
listastofnana við HÍ 1983-96 og ís-
lenska hönnunarsögu við LHÍ 2000-
2003. Hún hefur stjórnað sýningar-
gerð fyrir opinber söfn og sýningar-
sali um bókverk listamanna, list og
handavinnu kvenna og um innreið
módernismans í íslenska hönnun.
Arndís sat í stjórn Skógræktar-
félags Garðabæjar í yfir 20 ár, er fé-
lagi í Listfræðafélagi Íslands,
Reykjavíkurakademíunni og heið-
ursfélagi í Upplýsingu, félagi bóka-
safns- og upplýsingafræða. Hún hef-
ur tekið þátt í samstarfi norrænna
hönnunarsagnfræðinga, var stofn-
félagi að ARLIS/Norden, samtökum
norrænna listbókasafna, 1986, og
sat í stjórn þeirra um árabil.
Tómstundir Arndísar tengjast
útivist, umhverfismótun og trjá-
rækt: „Við hjónin höfum ræktað
nokkra hektara á bökkum Hvítár sl.
aldarfjórðung og þar má nú heita að
kominn sé vísir að skóglendi.“
Fjölskylda
Eiginmaður Arndísar er Jón E.
Böðvarsson, f. 27.7. 1936, verkfræð-
ingur og forstjóri Ratsjárstofnunar
og flugvallarstjóri á Keflavíkur-
flugvelli, sonur Böðvars Jónssonar
og Ágústu Magnúsdóttur.
Börn Arndísar og Jóns eru Böðv-
ar, f. 8.12. 1966, verkfræðingur í
Dublin á Írlandi; Ágústa Björg, f.
28.5. 1969, sérfræðingur hjá Statoil í
Stavanger en eiginmaður hennar er
Árni Júlíus Rögnvaldsson forritari
og börn þeirra eru Anna Hrafndís
sem er látin, Einar Hrafn og Jón
Arnar, en sonur Árna og stjúpsonur
Ágústu er Rögnvaldur Skúli, og
Einar Örn, f. 28.10. 1975, garðyrkju-
maður í Reykjavík, í sambúð með
Höllu Ingibjörgu Leonhardsdóttur
félagsráðgjafa og er dóttir þeirra
Ingunn María, en dóttir Höllu og
stjúpdóttir Einars er Vigdís Halla
Árnadóttir.
Systkini Arndísar: Tryggvi Árna-
son, f. 23.12. 1936, myndlistarmaður
í Kópavogi, og Björg Friðriksdóttir,
f. 20.5. 1949, húsfreyja í Omaha í
Bandaríkjunum.
Foreldrar Arndísar voru Árni
Tryggvason, f. 2.8. 1911, d. 25.9.
1985, hæstaréttardómari og sendi-
herra, og f.k.h., Guðbjörg Páls-
dóttir, f. 4.12. 1915, d. 15.8. 1992,
húsfreyja.
Úr frændgarði Arndísar S. Árnadóttur
Arndís Sigríður
Árnadóttir
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Hafnarf. og Rvík
Einar Einarsson
organisti, söngkennari og smiður í Laxárdal og Hafnarf.
Guðfinna Einarsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Magnússon
járnsmíðam. í Rvík
Guðbjörg Pálsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Lambhaga og
á Helgafelli
Magnús Pálsson
b. í Lambhaga og á Helgafelli í Kjós
Ólafur Tryggvason
rafmagnsverkfræðingur
Ámundi Árnason kaupmaður í Rvík
Guðríður Árnadóttir Bramm kaupkona
í Fatabúðinni við Skólavörðustíg
Sigríður Pálsdóttir Gröndal húsfr. í Rvík
Einar Pálsson skrifstofustj. í Rvík
Guðrún Pálsdóttir Ullsten tannlæknir í Svíþjóð
Magnús Pálsson járnsmíðam. í Rvík
Kristín Pálsdóttir húsfr. í Rvík
Brynhildur Pálsdóttir búsett í Rvík
Jóhann Pálsson garðyrkjustj. Rvíkur
Sigurður Einarsson Hlíðar alþm., ættfræðingur og yfirdýralæknir
Rannveig Einarsdóttir húsfr. í Rvík
Guðríður Helgadóttir
húsfr. í Suðurkoti og í Sólheimatungu
Jón Kristjánsson
b. í Suðurkoti og í
Sólheimatungu í Mýrdal
Arndís Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Tryggvi Árnason
trésmíðam. í Rvík
Árni Tryggvason
hæstaréttardómari
og sendiherra í Rvík
Guðrún Ámundadóttir
húsfr. í Syðra-Langholti, af
ætt Ámunda Jónssonar smiðs
Árni Eyjólfsson
b. í Syðra-Langholti í Árness
ÍSLENDINGAR 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
85 ára
Auður Jónsdóttir
Jónas Hallgrímsson
80 ára
Erlendur Guðmundsson
75 ára
Edda Hafsteins
Hafsteinsdóttir
Gunnar Jóhann Olgeirsson
Kristína J. Valdivia Ayjari
70 ára
Ester Hannesdóttir
Guðrún Marie Jónsdóttir
Hilmir Helgason
Jóhann Knútsson
Ragna Kristín Jónsdóttir
Signý Björk Rósantsdóttir
Valgerður Kristjónsdóttir
Þorsteinn B.Á.
Guðmundsson
60 ára
Ásta Guðmundsdóttir
Garðar Guðmundsson
Guðbjörn Gunnarsson
Gunnar B. Guðmundsson
Haraldur Ingi Haraldsson
Hjalti Kjartansson
Jónína Kristín Jónsdóttir
Roman Adam Karpusiewicz
Þóranna M.
Sigurbergsdóttir
50 ára
Ari Viðar Jóhannesson
Arnbjörn H. Arnbjörnsson
Birna Guðbjörg
Björnsdóttir
Björgvin G. Hallgrímsson
Brynhildur Blomsterberg
Elfur Sif Sigurðardóttir
Guðmundur Ólafur
Guðmundsson
Herta Maríanna
Magnúsdóttir
Ingibjörg Birna Geirsdóttir
Kristján Önundur
Hjálmarsson
Sigurður Ármannsson
Sigurður Sverrir Guðnason
Sombun Yuchangkoon
Unnur Svavarsdóttir
40 ára
Davíð Örn Ingvason
Dögg Matthíasdóttir
Guðbjörg Lilja
Gunnarsdóttir
Helgi Sigurjónsson
Hulda Sigrún
Guðmundsdóttir
Jurate Arminasdóttir
Mariia Shishigina-Palsson
María Kristjánsdóttir
Marteinn Sigurður
Sigurðsson
Renatas Janeliunas
30 ára
Bjarni Arnar Hjaltason
Bryndís Erlingsdóttir
Daði Erlingsson
Friðrik Árni Pedersen
Heiða Berta
Guðmundsdóttir
Jelena Schally
Málfríður Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Jónmundur ólst
upp í Vesturbænum og
Garðabæ, býr í Vestur-
bænum í Reykjavík, lauk
prófi í leiklist frá Academy
of Art University of San
Francisco og leikur nú í
Þjóni í súpunni.
Maki: Melkorka Helga-
dóttir, f. 1987, hagfræð-
ingur hjá Deloitte.
Foreldrar: Grétar Guð-
mundsson, f. 1954, og
María Rögnvaldsdóttir, f.
1956.
Jónmundur
Grétarsson
30 ára Guðný ólst upp í
Grundarfirði, býr nú í
Kópavogi, lauk BSc-prófi í
jarðfræði frá HÍ og stund-
ar nám í opinberri stjórn-
sýslu við HÍ.
Systkini: Sigrún Hlín, f.
1983; Þorkell Már, f. 1987,
og Eyþór, f. 1975.
Foreldrar: Bryndís Theo-
dórsdóttir, f. 1960, skóla-
liði í Grundarfirði, og
Guðni Hallgrímsson, f.
1944, rafvirki í Grundar-
firði.
Guðný Rut
Guðnadóttir
30 ára Brynjar ólst upp á
Akureyri, býr í Kópavogi,
lauk MSc-prófi í líf-
efnafræði frá HÍ og er sér-
fræðingur hjá Actavis.
Maki: Ingibjörg Ester Ár-
mannsdótttir, f. 1988,
starfsmaður hjá KPMG.
Sonur: Bjarki Þór, f. 2015.
Foreldrar: Ellert Gunn-
steinsson, f. 1963, versl-
unarstjóri, og Kristrún
Þóra Ríkharðsdóttir, f.
1964, hjúkrunarfræð-
ingur.
Brynjar Örn
Ellertsson
Þorbjörg Jónsdóttir hefur lokið
doktorsritgerð sinni í hjúkrunarfræði
frá Háskóla Íslands. Ritgerðin ber
heitið Langvinnir verkir, heilsutengd
lífsgæði, notkun á heilbrigðisþjónustu
og samskipti við heilbrigðisstarfs-
menn vegna langvinnra verkja meðal
íslensks almennings (Chronic Pain,
Health-Related Quality of Life,
Chronic Pain-Related Health Care Ut-
ilization and Patient-Provider Comm-
unication in the Icelandic Population).
Tilgangur rannsóknarinnar var að
lýsa eðli langvinnra verkja meðal al-
mennings á Íslandi ásamt tengslum
þeirra við notkun á heilbrigðisþjón-
ustu og mat á samskiptum við heil-
brigðisstarfsmenn. Doktorsverkefnið
byggist á tveimur rannsóknum. Í þeirri
fyrri voru próffræðilegir eiginleikar ís-
lenskrar þýðingar mælitækisins Pati-
ents’ Perceived Involvement in Care
Scale (I-PICS) metnir, en I-PICS mælir
mat einstaklinga á samskiptum við
heilbrigðisstarfsmenn. Seinni rann-
sóknin, sem var þverskurðarrannsókn
á landsvísu, fjallaði um áhrif lang-
vinnra verkja á daglegt líf og heilsu-
tengd lífsgæði. Einnig var skoðað
hvaða þættir hafa
forspárgildi um
það hvort ein-
staklingar með
langvinna verki
nýta sér heilbrigð-
isþjónustu vegna
þeirra. Jafnframt
voru mat einstak-
linga á samskipt-
um við heilbrigðisstarfsmenn og
tengsl þess við lýðfræðilega og verkja-
tengda þætti skoðuð. Niðurstöður
sýna að mynstur og styrkur langvinnra
verkja ráða mestu um hversu mikil
áhrif þeir hafa á daglegt líf og heilsu-
tengd lífsgæði. Mynstur verkja ásamt
neikvæðum áhrifum þeirra á daglegt
líf og lífsgæði hafa mest forspárgildi
um hvort einstaklingurinn nýti sér
heilbrigðisþjónustu vegna þeirra.
Hvetja þarf fólk með langvinna verki til
að nýta sér heilbrigðisþjónustu áður
en þeir valda meiri háttar lífs-
gæðaskerðingu. Við mat á langvinnum
verkjum er mikilvægt að einblína ekki
eingöngu á verkina sjálfa, heldur þarf
einnig að meta áhrif þeirra á daglegt
líf og viðhorf einstaklinga til verkja.
Þorbjörg Jónsdóttir, sem er fædd árið 1961, lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum við Sund árið 1981 og BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands
árið 1985. Hún lauk þverfaglegri MS-gráðu í verkjafræðum frá Háskólanum í Car-
diff í Wales árið 2005 og innritaðist í doktorsnám árið 2009. Þorbjörg hefur
starfað sem ráðgjafi í verkjameðferð við Sjúkrahúsið á Akureyri en starfar nú
sem lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri. Synir Þorbjargar eru
Einar Freyr, Arnar Gauti og Jón Eyþór Ingasynir.
Doktor
Þorbjörg Jónsdóttir
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is
MORA MMIX TILBOÐSDAGAR
25% afsláttur
sturtuklefar og -hurðir
25% afsláttur
IFÖ innréttingar
30% afsláttur
Mora MMIX blöndunartæki
30%afsláttur
Mora MMIX
handlaugartæki
án lyftitappa
14.900 kr.
verð áður 21.286 kr.