Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 86

Morgunblaðið - 12.11.2015, Side 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Ífyrstu ljóðum nýjustu bókarEyþórs Árnasonar, Norður,leggur ljóðmælandinn upp íferðalag. Það fyrsta nefnist „Brottför“ og í því er sleginn tónn notalegs fortíðartrega, sem ætti að vera kunnuglegur lesendum fyrri bóka skáldsins. Kuldahrollur er þar strokinn af borði og rafhlöður sóttar á ofn – þessar hituðu rafhlöður fleygja þessum lesanda í sveitina langt aftur á lið- inni öld – og hann finnur „hitaþok- una smjúga / yfir þröskuldinn og / grípa fast um ökklann“. Næst kemur þunglyndislegt og stutt „Ökuljóð“, með tilvísunum í sönglög og alþýðumenningu: „Nú syng ég ekki lengur / um svani, vor- kvöld, svalalind // Nei, ég syng um hrun / og sinu í vegköntum / …“ og þá kuldalegt titilljóð bókarinnar, „Norður“, þar sem blákalt morgun- frost ískrar í hliðinu, það snjóar enn og „Norðurleið fer / hlaðin skeyt- um“. Og fleiri ferðaljóð birtast þegar áfram er lesið, á milli annarra. Í þessari bók Eyþórs eru 78 ljóð í fjórum hlutum. Skáldið heldur áfram að þroska þann hlýlega tón sem hef- ur hrifið marga lesendur fyrri bóka, Hundgá úr annarri sveit (2009) og Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu (2011). Norður er þó nokkuð frá- brugðin hinum bókunum; þetta er brotakenndara verk, eiginlega má tala um nokkra kjarna ljóða sem eru missterkir – en bestu ljóðin eru, eins og áður þegar Eyþór á í hlut, mjög góð. Og búa yfir sérkennilegri hlýju, blandinni trega, og smekklegri myndvísi. Sem dæmi um það má nefna „Haustdaga“, ljóð þar sem maður sem er uppalinn í sveit og þekkir til veiða notar þá reynslu í mynd sem við sem þekkjum laxa og haustblús samsömum okkur heldur betur: Ég hef alltaf kviðið þessum hrútlegnu haustdögum þegar sumardraumarnir hnappast saman og leggja í strauminn í leit að heppilegri möl Annars er víða komið við og til að mynda vísað í nokkrum ljóðum í tón- list og tónlistarmenn. Í einu hefur ljóðmælandinn á leið norður spilað sig í gegnum sælgætisbúðina hjá John Grant og sú upplifun tengist sýn síðan hann var fjórtán ára; í öðru eru vísanir í The Doors – „Und- arlegir dagar / sagði hann“ og „Þetta er endastöðin“ – og Davíð Stefánsson: Dimmt er á Dökkumið- um og Davíð er aftur nærri þegar ljóðmælandinn kaupir sér miða aðra leið til Capri. Eftirlætis tónlistarljóð þessa lesanda í bókinni er „Nætur- ljóð“, og kannski styrkir myndina að vita að skáldið er sviðsstjóri í Hörpu. En orðaleikurinn nótur/nætur er fínn: Stundum þarf að nota hamarinn á þetta sagði glaðbeitti píanóstillarinn þegar hann kvaddi og fór með allar svörtu nóturnar í töskunni Hann vissi hvað hann söng því þær hafa alltaf þvælst fyrir mér þessar svörtu nótur Þessar óspilandi svörtu nætur Í öðru ljóði er gengið inn á sviðið eftir bjart kvöld, þegar ljósin dofna hratt, heitur flygill stendur einn á sviðinu, ljóðmælandinn rekur hrafna af svörtu lokinu (meiri Davíð?) og: „strýk yfir nóturnar / og loka inni / ófleyga söngva“. Í „Ökuljóð fyrir Bellu“ er dregin upp skondin mynd af húsbílamenn- ingu landans, þar sem á forystubíl í endalausri runu – „Stínur, Bínur, Nínur“ – hefur þingeyskur harm- ónikkuleikari verið njörvaður niður á toppgrindina og „karlarnir stýra af öryggi með / kalna olnbogann úti …“ Margar bestu ljóðmyndirnar koma úr sveitinni, náttúru og störf- um, eins og þessar fínu línur í „Eftir undrasumar“: Það er ullarlykt í golunni og blautþung baggasumur hlaupa um herðarnar Aftur er þessum rýni skotið aftur í tímann. Norður er ekki heilsteyptasta bók Eyþórs en þó er margt áhrifaríkt á síðum hennar og lesendum birtist skáld sem er fagurmælt og glettið, og fallega einlægt eins og „Ást- arjátning“ sýnir: Ég elska þig sagði ég og risti þér blóðrautt haffærisskírteini til innhafssiglinga í brjóstholi mínu Morgunblaðið/Árni Sæberg Skáldið Eyþór Árnason. Þessar óspilandi svörtu nætur Ljóð Norður bbbmn Eftir Eyþór Árnason. Veröld, 2015. Kilja, 104 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Það er ekki valdið sem spillir,heldur óttinn. Óttinn við aðmissa valdið spillir þeimsem beita því og óttinn við svipu valdsins spillir þeim sem lúta því.“ Þessa áhugaverðu greiningu á samspili valds og spillingar setti Aung San Suu Kyi, friðarverðlauna- hafi Nóbels, fram og hitti þarna vel í mark. Þessi orð hennar eru inn- gangsorðin að einum kafla af níu í bókinni Barnið sem varð að harð- stjóra – Saga helstu einræðisherra 20. aldar sem Bogi Þór Arason blaða- maður hefur sent frá sér. Til að gera langa sögu stutta þá er þetta áhuga- verð og góð bók. Bogi dregur þarna saman sögu níu harðstjóra og ein- ræðisherra á síðustu öld, sem stend- ur vel undir því nafni að kallast öld öfganna. Harðstjórarnir níu eru Stalín, Hitler, Franco, Maó, Ceausescu, Pol Pot, Saddam Hussein, Kho- meini og Idi Am- in, auk þess sem tveir harðstjórar í Afríku, Bokassa og Francisco Macías Nguema, fá stutta umfjöllun í kaflanum um Idi Amin. Hugmyndin sjálf, að fjalla stutt- lega um sögu helstu harðstjóra síð- ustu aldar í einni bók, er góð. Saga hvers og eins er rakin frá því fyrir fæðingu þeirra og fram yfir dauða þeirra sem og þeirra milljóna sem þeir sjálfir sendu beint og óbeint í dauðann. Höfundur hefur nýtt sér margar heimildir, bæði nýjar og gamlar, og fléttar í liprum texta sam- an sögu hvers og eins og tengir þá raunar flesta saman með ýmsum hætti. Formið gefur þannig gott færi á samanburði af ýmsum toga og vek- ur spurningar um það hvort eitthvað í aðbúnaði þeirra og uppeldi geti skýrt þá blóðugu slóð sem þeir síðan fetuðu í lífinu. Föðurleysi eða slæmt atlæti eða samband þessara manna við föður sinn virðist vera áhrifaþátt- ur og sama má segja um gott atlæti af hálfu móður. Höfundur orðar þetta ágætlega í umfjöllun í kafla um Khomeini sem missti föður sinn ung- ur líkt og helsti andstæðingur hans, Saddam Hussein: „Líkt og Saddam Hussein eru þeir dæmi um að næst því að vera eftirlæti móður sinnar virðist fátt örva verðandi harðstjóra meira en að missa föður sinn,“ segir á bls. 252 í bókinni og leiðir þar með huga lesandans ósjálfrátt að sterkum upphafsorðum Brekkukotsannáls. Bókin er vel skrifuð, textinn að- gengilegur og höfundur vinnur vel úr fjölbreyttum heimildum. Fléttað er saman gömlum og nýjum upplýs- ingum og greiningum og höfund- urinn sjálfur kemur skoðunum sín- um og sjónarmiðum vel á framfæri. Það er gert án málalenginga og út- úrdúra sem fellur vel að smekk þess sem hér ritar. Það sem er einkar áhugavert er að fá þarna tækifæri til að kynnast og bera saman bæði æsku og uppvöxt harðstjóranna, leið þeirra til valda og síðan sjálfan valdaferilinn. Sömu stefin koma þarna ótrúlega oft fyrir. Að sama skapi afhjúpast hræsni og tækifær- ismennska alþjóðastjórnmála á 20. öldinni, enda nutu margir af þessum harðstjórum stuðnings og velþókn- unar margra og þar á meðal vest- rænna lýðræðisríkja á leið sinni til valda og jafnvel síðar. Eins og íslenskri bók sæmir er gerð grein fyrir þeim tilvikum þar sem Íslendingar kynnast þessum ill- ræmdu harðstjórum beint og þar kemur fátt á óvart. Þó sleppir höf- undur að nefna stutta Íslands- heimsókn Nicolae Ceausescu og eig- inkonu hans í október 1970 er þau voru á leið til Bandaríkjanna, en þá hittu þau helstu ráðamenn þjóð- arinnar í stuttri en opinberri heim- sókn. Bókin er ekki myndskreytt ef frá er talin kápan. Það hefði óneit- anlega aukið gildi hennar ef þar hefði verið að finna myndir af þeim sem þar eru til umfjöllunar. Heiti bók- arinnar, Barnið sem varð að harð- stjóra, er vissulega ágætlega lýsandi fyrir innihald hennar. Á bókarkáp- unni er það rakið að höfundur reki í henni leið harðstjóranna úr vöggu til fjöldagrafa og hefði titill þar sem þessi orðaleikur hefði verið notaður hitt enn betur í mark. Að þessu sögðu skal það dregið saman að hér er á ferðinni fín og læsileg bók sem fjallar um ríflega níu harðstjóra og fjöldamorðingja, sem heldur betur settu svip sinn á síðustu öld. Sögur þeirra eru um margt líkar og ljóst að margvíslegan lærdóm má draga af þeim, hvort sem okkur tekst það eða ekki. Morgunblaðið/Eva Björk Lærdómur „… hér er á ferðinni fín og læsileg bók sem fjallar um ríflega níu harðstjóra og fjöldamorðingja, sem heldur betur settu svip sinn á síðustu öld,“ segir rýnir um bók Boga Þórs Arasonar. Frá vöggu til fjöldagrafa Fræðibók Barnið sem varð að harðstjóra – Saga helstu einræðisherra 20. aldar bbbbn Eftir Boga Arason. Almenna bókafélagið, 2015. Innbundin, 286 bls. STEFÁN EIRÍKSSON BÆKUR Peysan sem Kurt Cobain heitinn klæddist á órafmögnuðum tón- leikum hljómsveitar hans Nirvana fyrir MTV árið 1993 var seld á rokkmunauppboði í Los Angeles fyrir 137.500 dollara, jafnvirði um 18 milljóna króna, um liðna helgi. Tímaritið Time greinir frá því. Uppboðshaldarar gerðu ráð fyrir að peysan myndi seljast fyrir 60.000 dollara. Upptaka af tónleik- unum var gefin út á geisladiski og þykir sá diskur ómissandi í Nirvana-safn aðdáenda. Á vefsíðu uppboðshússins, Julien’s Auctions, var peysunni vandlega lýst og sagði m.a. að í henni væri blanda úr akrýl, angóra- ull og lycra, að einn hnappa af fimm vantaði á hana og að á henni væri brunagat. 18 milljónir greiddar fyrir peysu Cobains Hlý Kurt Cobain í peysunni góðu. GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 20% afsláttur af hreinsun á gluggatjöldum í nóvember

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.