Morgunblaðið - 15.09.2016, Page 59
gleraugu fyrir
golfara
með og án styrks
Mikið úrval, margir litir
fóníuhljómsveit um uppsetningu
Hollendingsins fljúgandi. Aðrar
Wagneróperur hafa ekki verið sett-
ar upp hér, njóta þó óperur hans
vinsælda sem aldrei fyrr og eru
sýndar hvarvetna í heiminum, í
litlum óperuhúsum sem stórum.
Margir hafa komið að máli við mig á
undanförnum árum til að hvetja til
þess að Litli Hringurinn verði sett-
ur upp aftur. Margir láta sig líka
dreyma um að sjá aðrar óperur
meistarans á íslensku sviði, með
okkar frábæru söngvurum, sem
hafa verið mjög liðtækir í að syngja
Wagner erlendis. Þrátt fyrir þá
staðreynd að Íslenska óperan hefur
mátt búa við mjög þröngan rekstr-
arramma árum saman er samt erfitt
að leggja fingur á hver ástæðan er
fyrir því að sýna ekki Wagner. Sum-
ar óperur hans eru kannske ívið
lengri en þær sígildu óperur sem
hafa verið settar upp hér, margar
oftar en einu sinni, hljómsveitin er í
sumum tilvikum stærri. Þessir tveir
þættir gera uppsetninguna dýrari.
Ekki er þó afgerandi munur í lengd,
ef horft er t.d. til ópera eins og Don
Carlo. Hvað hljómsveitarstærð
varðar, þá er það mjög algengt er-
lendis að nota minnkaðar hljóm-
sveitargerðir. Það var gert hér
heima þegar Litli Hringurinn var
sýndur. Benda má á að margar óp-
erur Wagners eru nánast kamm-
eróperur hvað varðar fjölda söngv-
ara og hafa engan kór. Það gildir til
að mynda um Rínargullið, Valkyrj-
una og Siegfried.
Mikilvæg tengsl við
menningararfinn
Eitt af aðalmarkmiðum Wagner-
félagsins frá upphafi hefur verið að
beita sér fyrir rannsóknum á mikil-
vægi íslenskra fornbókmennta fyrir
Wagner. Niðurstöður rannsókna dr.
Árna Björnssonar um þetta efni
birtust í bókinni Wagner og Völs-
ungar (MM 2000), sem komið hefur
út á íslensku, ensku og þýsku. Þar
kemst hann m.a. að þeirri mik-
ilvægu niðurstöðu, sem hefur vakið
mikla athygli, að 80 prósent aðfeng-
inna minna eða efnishugmynda
Hringsins séu fengin úr íslenskum
bókmenntum eingöngu, fimmtán
prósent finnist bæði í íslensku bók-
menntunum og þýskum heimildum
eða séu þeim sameiginleg en ein-
göngu um fimm pósent fyrirfinnist
bara í þýskum heimildum. Niflunga-
hringurinn er óumdeilanlega eitt af
höfuðverkum óperulistarinnar og
ljóst er að þessi mikilvægu tengsl
við íslenskar bókmenntir gera verk-
ið nánast að hluta af íslenskum
menningararfi, sem ber að rækta og
halda á lofti. Það er því löngu tíma-
bært að hafist verði handa um að
setja þetta stórvirki á svið hérlendis
í heild sinni. Það er leitun á því óp-
eruhúsi erlendis, smáu sem stóru,
sem ekki hefur tekist á við þessa
áskorun. Aðferðin er oftast sú að
safnað er í Hring. Fyrst er Rín-
argullið sýnt, ári síðar eða tveim
Valkyrjan og svo koll af kolli. Að
lokum er svo kominn heill Hringur
til sýningar.
Íslenskur Hringur í New York
Þegar kanadíski kvikmyndagerð-
armaðurinn og leikstjórinn Robert
Lepage hafði árið 2009 verið ráðinn
til að setja upp nýjan Niflungahring
á Metropolitan Opera í New York
var haft eftir honum í viðtali við
Wall Street Journal að Ísland veitti
honum mestan innblástur við upp-
setningu Hringsins, landið sjálft og
jarðfræði þess. Hann lýsir fjálglega
jarðfræðilegum sérkennum landsins
sem séu forsenda þess að þegar
maður komi til Íslands hugsi maður
um Hringinn, maður geti bara hugs-
að um Hringinn, í heimi sem sé allt
öðruvísi en allt annað. Í heimildar-
myndinni Wagner‘s Dream, sem
gerð var um uppfærsluna eftir á,
segir Lepage einnig frá því þegar
hann komst í tæri við íslensku Edd-
urnar á safni í Reykjavík og hvernig
hann hefði heillast bæði af bókunum
og myndefninu enda séu 85 prósent
Hringsins beint úr Eddunum. Fyrir
sig hafi það verið lykilatriði til að
setja upp nýjan og ferskan Hring að
koma til Íslands þar sem rætur
hans liggi. Fólki er ef til vill minn-
isstætt að það lá við að Metropolit-
an-óperan færi á hausinn vegna
leikmyndar Lepage, sem var mjög
umfangsmikil og vó 45 tonn þannig
að styrkja þurfti allar undirstöður
sviðsins á Met. Innblásturinn að
flekaskiptu leikmyndinni var með
öllu íslenskur, og endurspeglaði, að
sögn Lepage, flekaskilin og stöð-
ugan hreyfanleika og breytileika
landsins. Þegar „sprunga myndast
skyndilega í jökulinn og glóandi
hraun byrjar að streyma eru guð-
irnir að tjá sig“.
Kannski mætti segja að Robert
Lepage sé búinn að stela af Íslend-
ingum glæpnum með því að setja
upp íslenska uppfærslu á Niflunga-
hringnum í New York en miklu
fremur ætti fordæmi hans að veita
okkar landsmönnum innblástur til
að fást við verkið á eigin forsendum.
Hér á Íslandi er einvalalið bæði leik-
húsfólks og söngvara. Einn þekkt-
asti leikstjóri okkar af yngri kyn-
slóðinni, Þorleifur Örn Arnarsson,
hefur sett Lohengrin á svið í Augs-
burg og mun setja Siegfried, úr
Niflungahringnum, upp á næsta ári
í Karlsruhe. Þar setja menn nú upp
nýjan Hring í áföngum og hafa
fengið til þess fjóra unga leikstjóra,
sem er enn ein aðferðin til að nálg-
ast Niflungahringinn.
Framtíð óperuflutnings
á Íslandi
Ég óska Íslensku óperunni alls
hins besta í að styrkja stoðir fyrir
óperuflutning hér heima. Ríkis-
framlög hafa verið of lág og fyrir
löngu hefði ríkið átt að sjá til þess
að Sinfóníuhljómsveitin og Óperan
styrktu hvor aðra í samstarfi. Að-
eins í milljónaborgum hafa óp-
eruhús sína eigin hljómsveit. Ann-
ars staðar vinna hljómsveit og ópera
saman. Margar bestu hljómsveitir í
heimi koma líka að óperuflutningi,
t.a.m. Berlínarfílharmonían og Vín-
arfílharmonían. Erfið fjárhagsstaða
Íslensku óperunnar hefur komið
niður á verkefnavali, sem er of fá-
brotið og lítið sem ekkert svigrúm
til að takast á við djörf verkefni. Ís-
lendingum rennur blóðið til skyld-
unnar að takast á við Wagner en um
leið að hlúa að nýsköpun listgrein-
arinnar. Megi ráðamenn bera gæfu
til að sjá til þess að þannig megi
verða í framtíðinni svo þessi vinsæla
listgrein blómstri.
Höfundur er píanóleikari, formaður
RW-félagsins á Íslandi og í stjórn Al-
þjóðasamtaka Wagnerfélaga.
Uppsetning Úr Litla Hringnum
1994. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sig-
urður Björnsson, Max Wittges og
Ingibjörg Marteinsdóttir sem
Freyja, Freyr, Óðinn og Frigg.Handrit Wolfgang Wagner skoðar Edduhandrit í Árnastofnun 1993.
UMRÆÐAN 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016