Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 19
Tafla 3 Samanburður á sjálfsáliti fyrir og eftir meðferð* Fyrir meðferð Eftir meðferð Sjálfsálit n M SF n M SF t P (paired t-test) Sjálfsálit 5 13,4 1,82 5 13,4 1,34 .00 1 (group t-test) 9 12,55 2,24 8 13,87 1,36 -1.44 .17 'Munur á þessum útreikningum felst í því að sá fyrri felur í sér saman- burð á mælingum á sömu einstaklingunum fyrir og eftir meðferð. Sá síðari felur í sér að mælingar á meðferðarhópnum í heild fyrir meðferð eru bornar saman við mælingar á hópnum í heild eftir meðferð. Ánægjulegt og skemmtilegt Öllum konunum nema einni fannst ánægjulegt og skemmtilegt að taka þátt í fundunum og engin kom með neikvæðar athugasemdir um þá. Þessari einu fannst að fundirnir væru svo sem ekkert slæmir en ekkert sérstakir heldur og sagðist ekki sækjast eftir því að fara á svona fundi í framtíðinni. Almennt fannst konunum hins vegar upplyfting í því að taka þátt í fundunum. Lestur úr ævi- minningunum var skemmtilegur og fyndinn, þeim fannst gaman að ræða atburði sem þær höfðu upplifað og einnig fannst þeim gaman að heyra aðra segja frá atburðum sem þeir höfðu upplifað. Ein sagði: „Svo náttúrlega hió maður eins og ég veit ekki hvað." Önnur sagði: „Það var svo margt ánægjulegt sem skeði á fundunum, konurnar töluðu og sögðu frá ýmsu og við gátum hlegið, það var alveg ómetanlegt." Fundirnir vöktu einnig tilhlökkun hjá þátttakendum og eftir að þeim lauk söknuðu sumar kvennanna fundanna. Ein sagði: „Maður hlakkaði til að þessi dagur kæmi." Önnur sagði: „Ég er mjög ánægð með þetta [fundinaj og mér finnst synd að þetta sé hætt. Þetta hélt manni gang- andi, maður hlakkaði til.“ Að líða vel Fram kom, að konunum fundust fundirnir „notalegir" og „yndislegir" og þeim leið vel á meðan á þeim stóð. Mikil ró ríkti á fundunum og ein líkti þeim við „friðarstund". Slökun- inni sem notuð var í upphafi líkti ein kona við „nokkurs konar bæn“. Almennt upplifðu konurnar mikla afslöppun, þótt annars konar vellíðan kæmi einnig fram. Ein talaði um að það hefði haft mjög góð áhrif á sig að sjá ánægjuna sem skein úr andlitum hinna kvennanna. Ein sagði: „Ég slakaði voðalega vel á. Ég held að við höfum allar gert það.“ Önnur sagði: „Mér fannst alveg dásamlegt - bara afslöppunin." Þriðja sagði: „Mér leið bara vel inni í mér og við sátum þarna að tala saman af því að það gerist nú ekki svo mikið hér innan dyra.“ Sú síðasta sagði: „Ég kom svoldið stressuð inn á fundina þarna fyrst, maður vissi ekkert hvernig þetta var, en þessi slökun gaf mér voðalega mikið. ... Ég var afslöppuð og mér leið vel, svona andlega. Það verður oft þannig að maður er langt niðri, með þennan sjúkdóm. ... Spila svona rólega tónlist, svo töluðu þær svo rólega og það kom margt fram í þessari slökun sem að hjálpaði til.“ Einn þátttakenda beitti slökuninni sem hann lærði einnig við önnur tækifæri. Hann sagði: ..ég á það til að vera rosalega stíf og hún [hjúkrunarfræðingurj kenndi mér hvernig maður á að slaka á og það hef ég notað ... bæði til að slappa af og læra rétta öndun." Einnig kom fram vellíðan eftir fundina. Ein konan sagði: „Þá leið mér mjög vel [þegar fundirnir voru búnirj. Ég sofnaði yfirleitt alltaf voðalega vel á eftir.“ Auk þessa gat ein þess að fyrstu dagana eftir fundina „pældi" hún í því sem fram kom, sérstaklega í tengslum við það sem betur hefði mátt fara í hennar lífi. Þessar pælingar drógu hins vegar ekki úr ánægju hennar með fundina og fundust henni „allir fundirnir yndislegir". Opnari samskipti , aukin samkennd og viðkynning Fram kom að samskiptin á fundinum veittu tækifæri til að gefa af sjálfum sér og þiggja frá öðrum. Ein sagði „Svo gáfum við þeim [hjúkrunarfræðingum] smávegis, en það var nú ekkert miðað við það sem þær gáfu okkur, svona í sambandi við að hafa okkur í þessum hóp.“ Önnur sagði: „Maður fékk svona innsýn í líf annarra og gaf sjálfur, sagði frá einhverju sem hafði komið fyrir mann sjálfan." Enn önnur sagði: „Mér fannst ég svona miklu opnari ... [og] mér fannst ég vera mikið duglegri að taka á móti því sem talað var um [eftir að ég fór að sækja fundina]." Jafnframt átti þessi kona auðveldara með að fara innan um fólk eftirá. Hún sagði: „Mér fannst ég eiginlega vera ... meira til í að taka þátt í ýmsu sem ég hefði ekki gert, þessir fundir svona ýttu mér meira til að fara innan um fólk.“ Eining hópsins og samtakamáttur var konunum einnig hugleikin. Það sem einni fannst eftirminnilegast var „hvað konurnar voru allar samtaka". Önnur sagði: „Þetta hefur kannski fært okkur nær hvor annarri." Sú þriðja sagði: „Mér finnst ég eiga meira af vinum ... virkileg vinatengsl." Aukin kynni þátttakenda innbyrðis komu fram hjá flestum. Einnig kom fram að afstaða til þátttakenda innbyrðis varð jákvæðari. Afstaðan hafði ekki verið neikvæð áður, fremur að konurnar þekktust tiltölulega lítið, þótt þær hefðu sumar hverjar verið á sömu deild um nokkurn tíma. Konurnar töldu einnig að þar sem umræð- urnar voru á skemmtilegum nótum „þá kynnist maður fólkinu öðruvísi". Það sem fram fór á fundunum Þátttakendahópurinn var misjafnlega stór eftir dögum. Oftast komu 5-7 manns einu sinni í viku, klukkustund í 163 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.