Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 50
félaga og samtakanna og styrkja félögin í að þjóna
félagsmönnum sínum. Á miðstjórnarfundi í apríl 1999 var
tekin ákvörðun um að endurgreiða aðildarfélögunum 20%
félagsgjalda fyrir árið 1999 með ákveðnum skilyrðum, en
tilgangurinn er að styrkja félögin.
Náið samstarf hefur verið milli Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og BHM á starfstíma stjórnar. Hefur það
samstarf ekki síst verið á vettvangi lífeyrismála og vegna
nýs launakerfis opinberra starfsmanna.
Félagið hefur á starfstíma stjórnar sent inn fimm mál til
formlegrar afgreiðslu hjá laganefnd BHM auk fjölda form-
legra fyrirspurna til stjórnar og framkvæmdastjóra BHM.
BHM rekur nú þrjú dómsmál fyrir hjúkrunarfræðinga.
Samstarf við Læknafélag íslands
Aukið samstarf var við Læknafélag íslands á starfs-
tímabilinu. Stjórnír félaganna héldu sameiginlega einn fund
og var ákveðið að halda annan sams konar, en hann hefur
ekki verið haldinn enn. Áhuga var lýst frá hendi beggja
félaga að vinna saman að einstökum sameiginlegum
hagsmunamálum. Formenn Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga og Læknafélags íslands skrifuðu sameiginlega
grein í Morgunblaðið vorið 1998, þar sem fjallað var um
áhrif niðurskurðar í heilbrigðisþjónustu á starfsemi heil-
brigðisstofnana.
Tengsl við félög hjúkrunarfræðinema
Haldnir voru fundir með fulltrúum hjúkrunarnema og
ákvörðun var tekin um að félagið styrkti félögin um
50.000,- kr. árlega vegna erlends samstarfs og þeim
boðin stúdentaáskrift að Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Stuðningur við hjúkrunarfræðinga sem eiga í fíkni-
efnavanda
Erindi barst stjórn félagsins frá Þóru Björnsdóttur, hjúkr-
unarforstjóra á Vogi, þar sem hún óskaði viðræðna við
stjórnina vegna hugsanlegs stuðnings við hjúkrunarfræð-
inga sem eiga í áfengis- og fíkniefnavanda. Stjórn félagsins
skipaði nefnd til að gera tillögur í þessum málum. Nefndin
skipulagði fund 12. maí þar sem þetta málefni var sérstak-
lega til umfjöllunar og í framhaldi af því hafa hjúkrunarfræð-
ingar sem hafa átt í þessum vanda hist reglulega undir
merki AA-samtakanna.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí
Félagið hefur séð um undirbúning að dagskrá 12. maí
undanfarin ár þar sem Reykjavíkurdeild félagsins er ekki
starfandi. Dagskrá 12. maí 1998 var skipulögð í samvinnu
félagsins og deilda hjúkrunarforstjóra heilsugæslu og
heilsugæsluhjúkrunarfræðinga þar sem þemað var Sam-
ráð um heilsugæslu - heilbrigði er allra hagur. Haldinn var í
Laugardalnum fjölskyldudagur laugardaginn 10. maí, þar
194
sem áhersla var lögð á að kynna almenningi leiðir til bætts
heiibrigðis auk þess sem heilsugæsluhjúkrunarfræðingar
voru með sýningu og kynningu á störfum sínum. Að kvöldi
12. maí 1998 stóð vinnuhópur hjúkrunarfræðinga á vegum
stjórnar félagsins, sem fjallað hefur um stuðning við hjúkr-
unarfræðinga sem eiga í vímuefnavanda, fyrir fræðslufundi
þar sem rætt var um konur og áfengi og konur og
meðvirkni.
Á 12. maí 1999 var opið hús að Suðurlandsbraut 22
þar sem var dagskrá fyrir hjúkrunarfræðinga sem nefndist
Hjúkrun í 100 ár. Þar var skyggnst aftur til fortíðar og horft
til framtíðar, þá aðallega á hlutverk hjúkrunarfræðinga í
forvörnum.
Gæðastaðlar í hjúkrun
Stjórn félagsins ákvað að beina því til gæðastjórnunar-
nefndar að vinna leiðbeiningar um hvernig vinna eigi
gæðastaðla í hjúkrun. Ljóst er að á næsta starfsári stjórnar
félagsins leggja fagdeildir aukna áherslu á að vinna slíka
staðla. Gæðastjórnunarnefnd hefur svarað erindinu á þann
hátt að nefndin verði fagdeildum til ráðgjafar í þessum
efnum.
Þátttaka í heilbrigðissýningu „Heilsa og menning
2000“
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er þátttakandi í undi-
búningi á sýningu „Heilsa og menning 2000“ sem haldin
verður í tilefni af Reykjavík - menningarborg Evrópu árið
2000. Erla Dóris Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
sagnfræðingur, er fulltrúi félagsins í nefndinni.
Lokaorð
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkar öllum
hjúkrunarfræðingum sem tekið hafa þátt í starfi félagsins á
starfstímabilinu fyrir fórnfúst starf í þágu hjúkrunarfræð-
inga. Á skrá félagsins eru á bilinu 400-500 hjúkrunar-
fræðingar sem hafa á einhvern hátt unnið fyrir félagið á
tímabilinu, sem trúnaðarmenn, fulltrúar í aðlögunarnefnd-
um og samninganefndum, í nefndum og ráðum, í stjórnum
fagdeilda og svæðisdeilda eða við undirbúningsvinnu á
vegum félagsins eða fag- og svæðisdeilda vegna ýmissa
málefna hjúkrunarfræðinga. Óhætt er að fullyrða að leitun
er að félagi sem hefur jafn virka félagsmenn, enda hefur
árangurinn verið eftir því.
Að lokum þakkar formaður félagsins öllum hjúkrunar-
fræðingum samstarfið þau ár sem hann hefur gegnt for-
mennsku fyrir hjúkrunarfræðinga og óskar um leið nýrri
forystu og hjúkrunarfræðingum öllum velfarnaðar í framtíð-
inni.
Samantekt úr skýrslu vkj.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999