Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Qupperneq 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Qupperneq 53
'Íruilt'fÚAþÍlAA Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Zö.—Zi. mAÍ iððð Fulltrúaþingið var haldið að Grand hóteli Fteykja- vík og sett formlega af formanni félagsins, Ástu Möller, kl. 13.00. Fundarstjórar voru kjörnir Sigþrúður Ingimundardóttir og Hildur Helga- dóttir. Ritarar voru kjörnir Fríður Brandsdóttir og Steinunn Krístinsdóttir. Ásta Möller, formaður, setti fulltrúaþingið. Hún fjallaði um þau mál sem hefur mikið verið unnið í frá sameiningu hjúkr- unarfélaganna og nefndi sérstaklega kjaramál og lífeyris- sjóðsmál. Þá benti hún á stefnumótun félagsins og vinnu við mótun siðareglna. Ásta minnti á 80 ára afmæli Félags íslenskra hjúkrunarkvenna en þeim tímamótum verður fagn- að á haustdögum. Hún kynnti skýrslu stjórnar en útdráttur úr henni birtist hér í blaðinu. Formaður vakti athygli á breyt- ingu á félagsgjöldum sem yrðu til umræðu á þinginu og benti á mikilvægi vinnudeilusjóðs í kjarabaráttu. Hún fór yfir stefnumótunarvinnu félagsins í ýmsum málum og ræddi reglur stjórnar um styrki til fagdeilda félagsins sem hafa verið til endurskoðunar á starfstímabilinu. Þá sýndi Ásta línurit um þróun launa hjúkrunarfræðinga undanfarin ár. Ásta hvatti hjúkrunarfræðinga til að taka virkan þátt í umræðu um breytingar á rekstri heilbrigðis- þjónustu og vera virka þátttakendur í hugsanlegum breyt- ingum. Að lokum þakkaði formaður hjúkrunarfræðingum fyrir góð störf í þágu félagsins og óskaði nýrri forystu velfarnaðar í framtíðinni. Anna Lilja Gunnarsdóttir, gjaldkeri félagsins, gerði grein fyrir reikningum félagsins og voru ýmsar fyrirspurnir bornar fram, einkum varðandi félagsgjöld. Reikningar félagsins voru samþykktir með öllum greiddum atkvæðum. Þá kynnti Anna Lilja tillögu stjórnar um lækkun félagsgjalda um 0,1%, þ.e. félagsgjöld yrðu 1% af heildarlaunum hjúkrunarfræðinga frá og með 1. janúar árið 2000. Stjórnin lagði til lækkun á félagsgjöldum vegna aukinna tekna hjúkrunarfræðinga umfram fyrri fjárhagsáætlun. Nokkrar umræður urðu um félagsgjöldin og fundar- menn ekki á eitt sáttir. Tillögur um breytingu á félagsgjöldum voru lagðar fram: Tillaga I: Tillaga frá Norðvesturlandsdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að hver félagsmaður greiði 1,5% af grunnlaunum í félagsgjöld til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Tillaga II (frá Norðvesturlandsdeild, til vara): Hver félagsmaður greiði 1% af heildarlaunum til félagsins þó að hámarki fjárhæð sem svarar til 25% af launaflokki A1 á ári. Þá gerði Valgerður Jónsdóttir grein fyrir og kynnti Tillögu III: Að félagsgjöld verði 1,4% af grunnlaunum. Þá kom fram tillaga frá Vestfjarðardeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að félagsgjald verði 1,1 %—1,3% af grunnlaunum. Tillagan var dregin til baka og lýsti Vestfjarðardeild yfir stuðningi við tillögu Norð- vesturlandsdeildar. Stjórn félags Félags íslenskra hjúkrun- arfræðinga lagði fram Tillögu V: Félagsgjöld starfandi félagsmanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verði lækkuð í 1 % af heildarlaunum frá og með 1. janúar árið 2000. Tillaga stjórnarinnar var samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða. Félagsgjöld starfandi félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga verða 1% af heildar- launum frá og með 1. janúar árið 2000. Ásta Möller kynnti starfsáætlun stjórnar næsta tímabil og tillögu siðanefndar um hjúkrunarheit. Almenn ánægja ríkti með starfsáætlunina og sköpuðust umræður um ýmsa þætti hennar. M.a. kom fram hugmynd frá Norður- landsdeild eystri um að hið árlega vísindaþing (fagleg ráðstefna) FÍH yrði haldið með nokkurra ára millibili annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu, t.d. á Akureyri. Tvær breytingatillögur komu fram frá fulltúum sem stjórn félags- ins gerði að sínum. Breytingatillögurnar voru innan ramma kjara- og réttindamála en markmið þeirra var að vinna að bættri réttarstöðu hjúkrunarfræðinga. • Að bæta veikindarétt sérstaklega m.t.t. réttarstöðu foreldra vegna veikinda barna og m.t.t. veikinda maka. • Að félagið móti sér stefnu um stöðu hjúkrunarfæðinga sem starfa á almennum markaði. Starfsáætlun var með þessum breytingum samhljóða samþykkt. Anna Lilja Gunnarsdóttir gerði grein fyrir fjárhagsáætlun næsta starfstímabils. Umræður urðu um nokkra liði áætlunarinnar en engar athugasemdir. Fjárhagsáætlun var einróma samþykkt. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999 197
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.