Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 41
Ásta Möller
alþingismaður
kj ukv'unAY’fv'^ðín^A 1997-1999
Fjöldi félaga
Skráðir félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
voru 2917 talsins í árslok 1998, þarf af voru 2205 hjúkr-
unarfræðingar sem tóku laun samkvæmt kjarasamningi
félagsins. Aðrir hjúkrunarfræðingar sem greiða félagsgjöld
voru 441 talsins og eftirlaunaþegar sem ekki greiða félags-
gjöld voru 271 talsins.
Stjórn
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga starfsárin
1997-1999 skipuðu eftirfarandi:
Ásta Möller, formaður.
Jóhanna Bernharðsdóttir, 1. varaformaður.
Hildur Helgadóttir, 2. varaformaður.
Anna Lilja Gunnarsdóttir, gjaldkeri.
Hrafnhildur Baldursdóttir, ritari.
Erlín Óskarsdóttir, meðstjórnandi.
Steinunn Kristinsdóttir, meðstjórnandi.
Fríður Brandsdóttir, varamaður.
Guðrún Guðmundsdóttir, varamaður.
Starfsemi félagsins frá fulltrúaþingi 15.-16. maí
1997
Á fulltrúaþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem
haldið var 15.-16. maí 1997 var starfsáætlun félagsins fyrir
árin 1997-1999 samþykkt. Skýrslan fylgir í megindráttum
þeirri starfsáætlun.
1. Menntun, fagmennska
Markmið 1
Að styðja að og styrkja fagmennsku i hjúkrun
Félagið hélt ráðstefnuna HJÚKRUN ’99, rannsóknir og
nýjungar í hjúkrun dagana 16.-17. apríl 1999. Hjúkrunar-
þing félagsins var haldið 13. nóvember 1998. Á þinginu
var áfram unnið að stefnumótun félagsins í hjúkrunar- og
heilbrigðismálum, einkum fag- og svæðisdeilda. Fræðslu-
og menntmálanefnd ásamt siða- og sáttanefnd var falið að
kynna hjúkrunarfræðingum nýjar siðareglur félagsins. Þær
voru sendar félagsmönnum, settar í handbók félagsins og
fjallað um þær í Tímariti hjúkrunarfræðinga. Stefna félags-
ins var gefin út og send félagsmönnum og ýmsum aðilum
innan stjórnkerfisins. Stefna félagsins var lögð til grund-
vallar í allri stefnumótunarvinnu.
Stjórn félagsins skipaði í febrúar 1999 nefnd sem mun
vinna að stefnumótun félagsins varðandi heilbrigðisþjón-
ustu í dreifbýli.
Fræðslu- og menntamálanefnd stóð fyrir þremur mál-
þingum þar sem fjallað var um andlegan stuðning við börn
og foreldra þeirra, þann 20. október 1998, andlegan
stuðning hjúkrunarfræðinga við aldraða og aðstandendur
þeirra, þann 26. janúar 1999, og stuðning við hjúkrunar-
fræðinga í starfi, þann 23. mars 1999.
Fræðslu- og menntanefnd hefur unnið að undirbúningi
þess að koma heilbrigðisfræðslu á framfæri við almenning
og meðal annars haft samvinnu við fagdeildir félagsins.
Vísindasjóður félagsins styrkti rannsóknir íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Árið 1997 voru veittir styrkir úr B-hluta vísindasjóðs til
14 rannsókna að upphæð 2.970.000 kr. og árið 1998
voru þeir 12 að upphæð 2.865.000 kr. Umsóknarfrestur
fyrir árið 1999 er útrunninn og hafa borist umsóknir um
styrki til sjö rannsóknaverkefna í ár.
Markmið 2
Að stuðla að gæðum í hjúkrunarþjónustu með
hjúkrunarmenntun í háum gæðaflokki.
Nefnd hefur verið starfandi á vegum félagsins á starfstíma-
bilinu sem hefur unnið að stefnu félagsins í menntunar-
málum hjúkrunarfræðinga.
Stjórn félagsins hefur auk þess skorað á Háskóla
íslands og Háskólaráð að auka flárveitingu til hjúkrunar-
fræðináms og lagt áherslu á að sérstök hjúkrunarfræði-
deild verði stofnuð. Þá hefur stjórnin styrkt hollvinafélag
námsbrautar í hjúkrunarfræði með kynningu í Tímariti
hjúkrunarfræðinga, styrkt tölvuátak Stúdentaráðs HÍ og
Hollvinasamtaka HÍ um 100.000 krónur til endurbóta á
tölvukosti námsbrautar í hjúkrunarfræði og tekið þátt í 25
ára afmæli námsbrautarinnar.
Samstarfsnefnd um menntunarmál ákvað að leggja
sérstaka áherslu á að fjalla um viðbótarmenntun hjúkr-
unarfræðinga til sérhæfingar innan sérgreina hjúkrunar og
endurmenntun hjúkrunarfræðinga og setti fram ákveðnar
185
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999