Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 58
Ásta Möller kjörin í stjórn
ICN, Alþjóðasamtaka
hjúkrunarfræðinga
Ásta Möller, sem nýverið lét af störfum sem formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hefur verið kjörin í
stjórn Alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga, (International
Council of Nurses, ICN). Ásta er fyrst íslenskra hjúkrunar-
fræðinga til að taka sæti í 15 manna stjórn samtakanna í
100 ára sögu þeirra. Hún tekur sæti Norðurlanda og
Austur-Evrópuþjóða í stjórninni, en Norðmaðurinn Laila
Dávöj, sem var áður formaður félags norskra hjúkrunar-
fræðinga lét af störfum í stjórn ICN, er hún tók við ráð-
herraembætti norsku ríkisstjórninni í mars s.l.
Alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga eru samtök félaga
hjúkrunarfræðinga í 118 þjóðlöndum og standa þau fyrir
virkri starfsemi sem alþjóðleg hagsmunasamtök hjúkrunar-
fræðinga á sviði fag- og stéttarfélagslegra málefna.
Alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga voru stofnuð fyrir réttum
eitt hundrað árum og verður haldið upp á afmæli þeirra
með hátiðardagskrá og ráðstefnu í Lundúnum 26. júní -1.
júlí n.k.
Núverandi formaður ICN er danski hjúkrunarfræð-
ingurinn Kirsten Stallknecht, sem var formaður danskra
hjúkrunarfræðinga um 28 ára skeið.
AdiA tfóWÍAlÁlAA-
A {trðAÍA^l
ÆÉ K / =» c P f ~
**
Félagar úr deild eftirlaunaþega leggja af stað í ferð að Skógum þann 8. júní sl., en þar var snæddur
hádegisverður og byggðasafnið skoðað. Þrátt fyrir úrkomu var góða skapið með í ferðinni, mikið sungið og
farið með Ijóð, Ingibjörg Gunnarsdóttir flutti t.d. Gunnarshólma við góðar undirtektir!
202
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999