Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 46
Samningar við heilsugæsluna undirritaðir í ágúst 1998. Meginniðurstaða nefndarinnar var að fjölga þurfi nemend- um í hjúkrunarfræði um 30-40 á ári til að bæta úr skorti á hjúkrunarfræðingum. Skýrslan vakti rmikla athygli og er félaginu kunnugt um að hún hafi verið notuð víða til að finna lausn á þessu vandamáli. Skýrslan var send til stjórn- valda og sérstaklega kynnt fyrir heilbrigðisráðherra. Fyrir kjarasamningana 1997 setti félagið fram kröfur um lækkun vinnuskyldu og styttri vinnuskyldu eftir 55 ára aldur. Þessar kröfur náðu ekki fram. [ kjarasamningi félagsins sem undirritaður var í júní 1997 var vinnutímatilskipun ESB útfærð, en vinnuverndar- sjónarmið liggja að baki tilskipuninni. Töluverð vinna hefur verið lögð í endurskoðun á vaktakerfum fyrir hjúkrunar- fræðinga með hliðsjón af ákvæðum kjarasamningsins, sérstaklega á stóru sjúkrahúsunum. Félagið tekur fyrst og fremst þátt í þessari vinnu til ráðgjafar og til að gefa álit á því hvort breytingar á vaktakerfi séu í samræmi við ákvæði kjarasamnings félagsins. í skýrslu um manneklu í hjúkrun er lagt til að einungis í undantekningartilvikum verði hjúkrunarfræðingar ráðnir á fleiri en tvær tegundir vakta. í kjarasamningi félagsins frá 1997 var gerð bókun um að vinnuaðstæður hjúkrunarfræðinga yrðu sérstaklega skoðaðar með tilliti til niðurstöðu könnunar á ofbeldi sem starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu verður fyrir og að unnið yrði að úrbótum þar sem þess er þörf. Sérstaklega verði geðdeildir, slysa- og bráðmóttökudeildir skoðaðar. Jafnframt verði haldið áfram vinnu við að skoða sérstakar tryggingar fyrir starfsfólk í þessu sambandi. Stjórn félagsins ritaði bréf til SHR vegna þess að lögregluembættið hætti að greiða vaktir lögreglumanna á slysadeild um helgar. Farið var fram á að öryggi hjúkrunar- fræðinga á vinnustað yrði tryggt. Félagið, í samvinnu við Bandalag háskólamanna, undir- býr nú málarekstur fyrir hjúkrunarfræðing sem telur sig hafa orðið fyrir heilsuskaða vegna mengunar í vinnu- umhverfi. Hér er um prófmál er að ræða. Markmið 5: Að vinna að bættri réttarstöðu hjúkrunarfræðinga. Á síðasta ári fengu feður í ríkisþjónustu tveggja vikna sjálfstætt fæðingarorlof. Áður höfðu þeir engan rétt. Reglu- gerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins hefur nú verið nær óbreytt um margra ára skeið. Ljóst er að reglu- gerðin er löngu úrelt, meðal annars hefur fallið dómur um að hún stangist bæði á við stjórnarskrána og jafnréttislög því hún heimilar ekki karlmönnum í ríkisþjónustu að fá launað barnsburðarleyfi. í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er ákvæði um að semja skuli um breytingar á reglugerðum um barnsburðarleyfi og veikindarétt. BHM og BSRB hafa nú í vetur hafið viðræður sín á milli um sameiginlega kröfugerð vegna samninga um þessi mál. Hagfræðingur Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga hefur tekið þátt í þessum viðræðum hvað varðar barnsburðarleyfisréttindi. BHM og BSRB hafa unnið að mótun kröfugerðar vegna samninga um veikindarétt opinberra starfsmanna. Þar hefur sérstaklega verið rætt um að leggja áherslu á aukinn rétt foreldra til launaðs leyfis vegna veikinda barna. í kjarasamningi félagsins frá 1997 er bókun þess efnis að haldið verði áfram að athuga þörf á sérstökum trygg- ingum starfsfólks í Ijósi könnunar á ofbeldi sem starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu verður fyrir. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sendi um síðustu áramót bréf til allra stærstu fyrirtækja á tryggingamarkaði þar sem farið var fram á að skoðaðir yrðu hugsanlegir möguleikar á að tryggja hjúkrunarfræðinga sérstaklega, umfram þær tryggingar sem eru nú þegar í kjarasamningi og hjá lífeyrissjóðum hjúkrunarfræðinga. Svör hafa borist frá nokkrum tryggingafélögum og eru þessi mál nú í skoðun hjá félaginu. Með nýjum lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins frá 1996 og reglum um form ráðningarsamninga frá 1996 breyttist töluvert umhverfi hjúkrunarfræðinga 190 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.