Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 66
ATVINNA
Heilsugœslustöðin Ólafsvík
Heilsugæslan í Ólafsvík óskar eftir því að ráða
hjúkrunarfræðing til starfa í haust eða eftir
nánara samkomulagi. Starfshlutfall er
samkomulagsatriði. Heilsugæslan er H2 stöð
og um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í
um 1700 manna héraði.
Samgöngur við höfuðborgarsvæðið eru góðar,
aðeins um 2 klst. akstur er til Reykjavíkur.
Vinsamlegast hafið samband og leitið
uþblýsinga um laun og starfsaðstöðu.
Ubblýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, Guðrún
Jóna, í síma 436-1000.
Hornbrekka
Heilsugæslustöðin Ólafsfirði
Heilsugæslustöðin Hornbrekka, Ólafsfirði,
óskar að ráða hjúkrunarfræðing með
Ijósmóðurmenntun í 50% starf.
Nánari upplýsingar gefa: Halla
Harðardóttir, hjúkrunarforstjóri, og
Rúnar Guðlaugsson, forstöðumaður,
í síma 466-2480
Dvalarheimilið Höfði
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarforstjóra
á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi.
Starfið er 100% dagvinna.
Umsóknarfrestur er til 1. september 1999.
Upplýsingar veitir Sólveig
Kristinsdóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 431 -2500.
Hjúkrunarheimilið Droplaugastaðir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
Hjúkrunarfærðingar óskast á kvöld- og
næturvaktir.
Upplýsingar gefur forstöðumaður,
Ingibjörg Bernhöft, í síma 552-5811.
HJÚKRUNARFRÆÐI
Hjá námsbraut í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands eru eftirtalin tvö störf
laus til umsóknar:
100% lektorsstarf í hjúkrunarfræði, þar sem
lektorinn hefur umsjón með
námskeiðinu Hjúkrun fullorðinna I.
100% lektorsstarf í hjúkrunarfæði, með
áherslu á geðhjúkrun.
Áætlað er að veita störfin frá 1. janúar 2000
til tveggja ára.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1999.
Umsóknum og umsóknargögnum skal skila í
þríriti til starfsmannasviðs
Háskóla íslands, aðalbyggingu við
Suðurgötu,101 Reykjavík.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla
um vísindastörf umsækjenda, rannsóknir og
ritsmíðar (ritaskrá), yfirlit um námsferil og störf,
(curriculum vitae) og eftir atvikum vottorð.
Með umsókn skulu send þrjú eintök af
vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum og
óbirtum, sem umsækjandi óskar að
tekin verði til mats. Ef höfundar eru fleiri en
umsækjandi skal hann gera grein fyrir
hlutdeild sinni í rannsóknum sem
lýst er í ritverkum.
Ef um mikinn fjölda ritverka er að ræða skal
innsending takmarkast við 20 helstu fræðileg
ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið.
Gera skal grein fyrir því
hverjar rannsóknarniðurstöður umsækjandi
telur markverðastar, svo og þeim
rannsókum sem umsækjandi vinnur að og
hyggst vinna að verði honum veitt
starfið og sú aðstaða sem til þarf.
Umsagnir um kennslu og stjórnunarstörf
skulu fylgja eftir því sem við á.
Um meðferð umsókna gilda ákvæði 12. gr.
laga nr. 41/1999, um Háskóla
íslands, og reglna nr. 366/1997, um veitingu
starfa háskólakennara. Öllum
umsóknum verður svarað og umsækjendum
síðan greint frá ráðstöfun starfsins
þegar ákvörðun um það hefur verið tekin.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi
stóttarfélags og raðast starf lektors í
launaramma B.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún
Kristjánsdóttir, formaður stjórnar
námsbrautar í hjúkrunarfræði,
í síma 525 4960
http://www.starf.hi.is
Heilbrigðisstofnunin Húsavík
óskar eftir hjúkrunarfræðingum
til starfa.
Staða hjúkrunarfræðings á skurðstofu og
speglunardeild er laus til umsóknar frá
1. september 1999.
Um er að ræða 50% starf.
Óskum einnig eftir hjúkrunarfræðingum til
starfa á 20 rúma sjúkradeild og 24 rúma
öldrunardeild frá 1 .september 1999.
Heilbrigðisstofnunin á Húsavík er
deildarskipt sjúkrahús,
heilsugæslustöð, fæðingardeild,
skurðdeild og speglunardeild.
Starfsmannastefna stofnunarinnar
byggist á fagiegum styrk starfsfólks og
tækifærum til símenntunar. Við bjóðum
einstaklingsmiðaða aðlögun og
möguleika til að kynna sér allar deildir
stofnunarinnar á fyrsta ári í starfi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingum
sem eru tilbúnir að takast á við
fjölþætt verkefni, geta unnið sjálfstætt
og tekið þátt í stefnumótun og
uppbyggingu stofnunarinnar.
Allar nánari upplýsingar gefur Dagbjört Þyri
Þorvarðardóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 464 0500 eða 464 0542.
Sunnuhlíð
Hjúkrunarfræðingar
Okkur vantar hjúkrunarfræðinga til
sumarafleysinga nú þegar.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á kvöld- og
næturvaktir frá 1. ágúst 1999.
Upplýsingar gefur Áslaug Björnsdóttir í
síma 560-4163.
Ellí- og hjúkrunarheimilið Grund
Deildarstjóri óskast á vistdeild frá 1. septem-
ber 1999 eða eftir nánara samkomulagi.
Staða aðstoðardeildarstjóra er laus nú þegar.
Bráðvantar hjúkrunarfræðing á kvöld- og
helgarvaktir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 552-6222.
210
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999