Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Blaðsíða 51
Hjúkrun ‘99
Ráðstefnan „Hjúkrun '99, - rannsóknir og nýjungar í hjúkr-
un“ var haldin að Hótel Loftleiðum 16. og 17. apríl sl. Ráð-
stefnuna sóttu 150 þátttakendur og var um þriðjungur
þeirra starfandi við heilbrigðisstofnanir úti á landsbyggð-
inni, sjúkrahús, heilsugæslustofnanir og dvalarheimili
aldraðra. í undirbúningsnefnd voru Aðalbjörg J. Finnboga-
dóttir, Auður Björk Gunnarsdóttir, Halla Grétarsdóttir,
Ingibjörg Hjaltadóttir og Sigríður Magnúsdóttir. ( vísinda-
nefnd ráðstefnunnar voru Aðalbjörg J. Finnbogadóttir,
Anna María Þórðardóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Hrund
Scheving Thorsteinsson og Ingibjörg Þórhallsdóttir. Auk
þess fór fram kynning á veggspjöldum þar sem hjúkrunar-
fræðingar kynntu verkefni sín og rannsóknir.
Samhliða ráðstefnunni fór fram sýning á list- og hand-
verki hjúkrunarfræðinga og var hún í umsjón Sigríðar
Magnúsdóttur, en sex fyrirtæki stóðu að kynningu á
hjúkrunarvörum.
Það var Erlín Óskarsdóttir, settur formaður Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, sem setti ráðstefnuna og
Sigurður Guðmundsson landlæknir flutti ávarp. Að því
loknu söng Gospel-kórinn undir stjórn Margrétar Rálma-
dóttur. Gestafyrirlesarar voru tveir, þeir dr. Auðna Ágústs-
dóttir, verkefnastjóri við rannsóknir á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur og lektor við HÍ, sem flutti fyrirlestur um rannsóknir
og hjúkrunarstarfið, og dr. Marit Kirkevold, prófessor í
hjúkrunarfræði við Háskólann í Ósló, sem fjallaði um tengsl
rannsókna og hjúkrunar.
Fyrirlesarar auk þeirra tveggja voru: Hildigunnur
Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur M.Sc. og lektor við HA,
sem fjallaði um áhrifaþætti á notkun rannsóknarniður-
staðna, Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir, hjúkrunardeildar-
stjóri, sem fjallaði um sjáanlegar vísbendingar um gæði í
öldrunarmálum, dr. Guðrún Kristjánsdóttir, dósent í
hjúkrunarfræði við HÍ, en fyrirlestur hennar nefndist „Horft
til framtíðar í Ijósi þekkingar um þarfir foreldra barna á
sjúkrahúsum". „Frá reynslu til rannsókna" nefndist fyrir-
lestur Sóleyjar Bender, lektors við HÍ. „Mikilvægi stjórn-
unarlegrar þekkingar og getu hjá yfirstjórnendum hjúkr-
unar í heilsugæslu og öldrunarþjónustu" nefndist fyrirlestur
Önnu Birnu Jensdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra
öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Þær Edda Steingrímsdóttir og Guðrún Jónsdóttir,
hjúkrunarfræðingar, fluttu fyrirlestur um upprifjun endur-
minninga hjá fólki með langvinna lungnasjúkdóma og Árún
K. Sigurðardóttir, lektor við HA M.Sc., fjallaði um hlutverk
hjúkrunarfræðinga við upphaf insúlínmeðferðar. Sylvía Ingi-
bergsdóttir, hjúkrunarfræðingur á geð- og verkjasviði á
Reykjalundi, fjallaði um árangur af hjúkrunarmeðferð við
Sigurður Guðmundsson landlæknir flutti ávarp við
setningu ráðstefnunnar.
langvinnum verkjum, Brynja Ingadóttir, hjúkrunardeildar-
stjóri, og Margrét Sigmundsdóttir, aðstoðardeildarstjóri,
fjölluðu um líðan hjartasjúklinga 4 vikum eftir aðgerð.
Herdís Herbertsdóttir og Cecilie Björg Björgvinsdóttir,
hjúkrunarfræðingar á B-6 SHR, fjölluðu um líðan skurð-
sjúklinga eftir útskrift af almennri skurðlækningadeild og
Rósa María Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur á geð-
og verkjasviði á Reykjalundi, fjallaði um hugræna atferlis-
meðferð í endurhæfingu.
Þá fjallaði dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, lektor við HÍ,
um aðlögun fjölskyldna sem eiga ungt barn með langvar-
andi astma og Sólfríður Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur M.Sc., fjallaði um skyndikomur barna og unglinga til
skólahjúkrunarfræðings. Ráðstefnunni var slitið af Aðal-
björgu J. Finnbogadóttur ráðstefnustjóra, en fundarstjórar
voru Gyða Baldursdóttir og Sigrún Gunnarsdóttir.
vkj
Engar veislur í salnum
Stjörn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur tekið
þá ákvörðun að eftir 1. september nk. verði salurinn
að Suðurlandsbraut 22 ekki leigður út til veisluhalda.
Salurinn er vinsæll til fundarhalda og verður áhersla
lögð á að gera salinn fullkomnari sem fyrirlestrasal.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999
195