Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Page 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Page 29
y^Cukíð ÖYWMÍ t^Y'ÍY' þlÁVlAA<$Ar «stAY'{«sk0HUY' - þær sem hafa nýlega alið börn eða hafa börn á brjósti Reglugerð um ráðstafanir til að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir þungaðar starfskonur, þær sem hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti, tók gildi þann 25. nóvember á liðnu ári. Markmið reglugerðarinnar er að bæta öryggi og heilsufar þessa hóps á vinnustöðum. Til að njóta réttinda samkvæmt reglugerð þurfa starfskonur að hafa greint vinnuveitenda sínum frá ástandi sínu. Þó er tekið fram að fyrstu 30-45 daga meðgöngunnar viti konur oft ekki af þungun sinni en á því tímabili getur fóstur skaðast og er því mikilvægt að beita viðeigandi forvörnum, reyna að draga úr hugsanlegum áhrifum skaðvalda varð- andi allar konur. í 3. grein reglugerðarinnar segir að vinnuveitandi eða þjónustuaðili á sviði vinnuverndar og forvarna skuli meta eðli áhættunnar fyrir starfskonur á vinnustað samkvæmt ósk vinnuveitenda. Til leiðbeiningar við mat skulu vera leiðbeiningareglur sem Vinnueftirlit ríkisins gefur út varðandi mat á efnafræðilegum, eðlisfræðilegum og líffræðilegum skaðvöldum og vinnsluaðferðum sem talið er að hafi hættu í för með sér. í kafla um almennar skyldur atvinnurekenda segir að samkvæmt reglugerð nr. 679/1998, um þungaða starfsmenn og væntanlegar reglur sem byggja á rammatilskipun 89/391 EBE um öryggisráðstafanir um framkvæmd vinnu, séu atvinnurekendur skyldaðir til að meta áhættu fyrir alla starfsmenn, þar á meðal konur sem eru þungaðar eða hafa nýlega alið börn og sneiða hjá eða hafa slíka áhættu í lágmarki. Þegar atvinnurekandi gerir áhættumat skal hann taka tillit til gildandi reglna um öryggismörk á vinnustað. Ef ekki er hægt að komast hjá áhættunni á annan hátt er nauðsynlegt að breyta vinnuskilyrðum eða vinnutíma eða bjóða annað starf sem hentar betur. Ef ekki er hægt að koma því við skal leysa konuna undan sínum vanalegu störfum eins lengi og nauðsynlegt er til að vernda heilsu og öryggi móður eða barns. Atvinnurekandi skal einnig meta þá sérstöku áhættu sem konan býr við og grípa til aðgerða sem tryggja að ekkert geti skaðað heilsu hennar eða barnsins. Ahættumat atvinnurekanda felur í sér mat á þeirri hættu sem felst í starfi konunnar, á eðli áhættunnar og hve lengi hún varir. Kannað er hvort hætta sé á sjúkdómum eða skaðlegum áhrifum á líkamlegt eða andlegt ástand konunnar og hvort hætta sé á skaðlegum áhrifum á ófædd eða nýfædd börn. Ef matið leiðir í Ijós að um áhættu sé að ræða, verður atvinnurekandinn að segja konunni frá því og gæta þess að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi og heilbrigði hennar og barns hennar. Atvinnurekandi ef hann veit af einhverjum breytingum í vinnuumhverfinu. Þegar konur hafa börn á brjósti í marga mánuði eftir barns- burð þurfa atvinnurekendur að endurmeta áhættuna reglulega. Reynist um áhættu að ræða er um þrjár leiðir að velja til að komast hjá henni, laga vinnutíma eða vinnuskil- yrði að þörfum konunnar, láta hana fá annað starf eða leysa 173 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.