Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Síða 65
Bækur og
bæklingar
The World Health Report 1999
Making á difference
Skýrslunni er ætlað að hvetja alþjóðasam-
félagið að kanna hvernig heilsufar hefur
áhrif á félagslega og efnahagslega þætti
landa og hve miklu það skiptir í alþjóða-
samskiptum og stjórnmálum þjóða.
Reproductive Health Research:
The New Directions
Útgefandi WHO 1998
Management of Severe Malnutrition:
A Manual for Physicians and Other
Senior Health Workers
Útgefandi WHO 1999
Primary Prevention of Mental,
Neurological and Psychosocial
Disorders
Útgefandi WHO 1998
International Travel and Health
Útgefandi WHO 1999
Community Health Workers: The
Way Forward
Útgefandi WHO 1998
Rapid Health Assessment Protocols
for Emergencies
Útgefandi WHO 1999
Food Safety Issues Associated with
Products from Aquaculture
Útgefandi WHO 1999
Breyting á skipulagsformi hjúkrunar:
Innleiðing og árangur einstaklings-
hæfðrar hjúkrunar í hjúkrun
lungnasjúklinga
Háskólaútgáfan og Rannsóknarstofnun í
hjúkrunarfræði hefur gefið út fræðslurit
um rannsókn sem unnin var í samvinnu
við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á
Vífilsstöðum en dr. Helga Jónsdóttir
dósent á námsbraut í hjúkrunarfræði og
stoðhjúkrunarfræðingur á Landspítala er
höfundur ritsins. Rannsóknin, sem ritið
fjallar um, var gerð í hjúkrun
lungnasjúklinga á tveimur sjúkradeildum
á Vífilstaðaspítala og var unnin á árunum
1995 til 1997. Bæklingurinn er til sölu í
Bóksölu stúdenta.
Sykursýki á meðgöngu
Bæklingur um sykursýki á meðgöngu er
kominn út á vegum Kvennadeildar
Landspítalans. Þetta er fræðslu- og
upplýsingabæklingur sem ætlaður er
konum með sykursýki og konum sem fá
sykursýki á meðgöngu. Fjallað er um
þær breytingar sem verða í kjölfar þung-
unar, m.a. hvað varðar mataræði og
lyfjagjöf. Þá er sagt frá því eftirliti og þeim
rannsóknum sem nauðsynleg eru á
meðgöngutímanum, í fæðingunni og eftir
að barnið er fætt. Einnig er fjallað um
þær hættur sem geta komið upp vegna
slægrar sykurstjórnunar. Þá er með-
göngusykursýki gerð góð skil, þ.e.
ástæður og einkenni og hverjir eru í sér-
stakri áhættu. Að bæklingum unnu Guð-
laug Þálsdóttir og Sigrún E. Valdimars-
dóttir, Ijósmæður og hjúkrunarfræðingar,
en ReynirTómas Geirsson fæðingar-
læknir veitti aðstoð og ráðgjöf. Bækling-
inn er hægt að nálgast á Göngudeild
Kvennadeildar, Göngudeild sykursjúkra,
hjá Samtökum sykursjúkra og væntan-
lega á flestum heilsugæslustöðvum.
Gleym-mér ei
Kvennadeild Landspítala og Barnaspítali
Hringsins hafa gefið út bækling sem
tileinkaður er börnum sem komu í
heiminn en uxu ekki upp á meðal okkar
og foreldrum þeirra sem gleyma þeim
ekki. Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur
Ríkisspítala tók bæklinginn saman í
samvinnu við kvennadeildina og
barnaspítalann.
„Landsygeplejens historie 1863-1910“
í tilefni 100 ára afmælis danska
hjúkrunarfélagsins verður gefin út ritröð
með þáttum úr sögu hjúkrunar. Fyrsta
ritið í þessari ritröð er komið út, en
höfundar eru hjúkrunarfræðingarnir Inge
Clausen, Lis Vibeke Larsen, Erik Lund
Jensen og Karin Muller. í ritinu er fjallað
um hjúkrunarfræðinga sem unnu á
heimilum utan Kaupmannahafnar,
starfssvið þeirra, skipulagningu og
samtakamátt. Bókin fæst hjá danska
hjúkrunarfélaginu.
Sænska hjúkrunarfélagið, Várdförbundet,
hefur gefið út bæklinginn Vision rökfritt.
í bæklingnum er fjallað um skaðsemi
reykinga. Bæklingurinn fæst hjá
Várdförbundet Material sími +08-1478
00, tegundarnúmer 60 10 23.
Sygeplejersken i kunsten
í tilefni af 100 ára afmæli danska
hjúkrunarfélagsins hefur félagið gefið út
bókina „Sygeplejersken i kunsten" en þar
lýsir höfundur Mogens Eilertsen því
hvaða augum myndlistarmenn hafa litið
hjúkrunarfræðinga síðustu hundrað árin.
Bókinni er skipt í fimm kafla sem hver
um sig spannar 20 ár. Myndirnar og
textinn veita auk þess upplýsingar um
myndlist, menningu og samfélag hvers
tímabils. Bókina er hægt að fá hjá
danska hjúkrunarfélaginu.
Stómavörur
!H Coloplast =
Coloplast býður upp á fj Ibreytt úrval af
stómavörum við allra hæfi, bæði eins og tveggja
hluta kerfi. Assura húðplatan hefur sérstaka
eiginleika. Hún situr vel og örugglega en fer
jafnframt vel með húðina og er auðveld í notkun.
Pokar af öllum stærðum og gerðum fyrir allar
gerðir stómía svo og fjöldi aukahluta eins og
þéttihringir, næturpokar o.fl. Stómalinan okkar
er í stöðugri þróun sem leiðir til fjölda nýjunga
á hverju ári.
Margar stærðir af ileostómíupokum
bæði eins og tveggja hluta.
Öruggt og einfalt lokunarkerfi.
Mjúkar sjálflímandi klemmur.
Margar stærðir, góður filter, öruggt
og einfalt lokunarkerfi, mjúkir
og þægilegir pokar.
Margar stærðir af urostómíupokum
bæði eins og tveggja hluta. Öruggur
ventill sem hindrar bakflæði.
Mjúkur og þægilegur losunartappi
sem einfalt er að eiga við, líka
fyrir þá sem eiga erfitt
með fingrahreyfingar.
Fullkomin lína fyrir börn. Litlir
þægilegir pokar með sömu góðu
húðplötunni og öruggri læsingu.
Sætúni 8, 105 Reykjavík
| S. 535 4000 • Fax: 562 1 878 |
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999
209