Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 7
RITSTJÓRASPJALL Valgerður Katrín Jónsdóttir „Viö eigum að skrifa það öll" Á þessu ári eru 80 ár frá því fyrsta tölublað tímarit hjúkrunarfræðinga kom út eins og minnst er annars staðar í þessu tölublaði, en þá voru hjúkrunarkonur 30 talsins og talsvert dreifðar um landið. Á þeim 80 árum sem liðin eru hefur hjúkrunarfræðingum fjölgað meira en hundraðfalt og eru þeir nú fjölmennasta heilbrigðisstéttin Enn eru þeir dreifðir um landið þótt langflestir starfi á höfuðborgarsvæðinuogum 1.300ástærstasjúkrahúsi landsins, Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Á þessum 80 árum hefur tímaritið verið gefið út 4-5 sinnum á ári. Sérhæfing stéttarinnar hefur aukist mjög mikið, sömuleiðis menntun, og eru hjúkrunarfræðingar á Islandi nú með menntuðustu hjúkrunarfræðingum í heirni og sífellt fleiri ljúka meistara- og doktorsprófi. I tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því fyrsta tölublað tímarits hjúkrunarfræðinga kom út verða hjúkrunarfræðingum gefnar fimm afmælisgjafir. Fyrsta gjöfin fylgir þessu tölublaði en það er pappahulstur í gulum lit sem á að geyma einn árgang tímaritsins. Guli liturinn er talinn merkja göfgi, innsæi og vitsmuni og hugmyndin að baki litavalinu er að hvetja og örva stéttina til að koma þekkingu á framfæri í tímaritinu og vera þar með í fararbroddi í samfélagslegri umræðu um heilbrigðismál. I hvert sinn sem þið handfjallið pappahulstrið, hjúkrunarfræðingar góðir, skuluð þið velta fyrir ykkur hvernig ykkur hefur tekist að koma þekkingu ykkar á framfæri í tímaritinu. Með því er unnt að lyfta grettistaki. Sem dæmi um árangur skrifa má nefna grein Lovísu Baldursdóttur um mistök í heilbrigðisþjónustunni sem birtist hér í tímaritinu f 1. tbl. 2003. í kjölfarið eða í 1. tbl. 2004 voru hringborðsumræður um sama efni. Fyrsta sameiginlega málþing Læknafélags Islands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var svo haldið um öryggi sjúklinga og starfsfólks 26. nóvember 2004. Og í kjölfarið má lesa fréttir um að skráning svokallaðra næratvika hafi aukist gríðarlega undanfarið en það skilar sér í öruggari heilbrigðisþjónustu. Önnur afmælisgjöf verður lesendakönnun þar sem hjúkrunarfræðingar geta lagt mat á efnisinnihald tímaritsins. Auðvitað er aldrei unnt að gera svo öllum líki eins og þeir kannast við sem hafa lesið dæmisöguna um Nasreddin, son hans og asnann. Samkvæmt ritstjórnarstefnu á tímaritið að vera málgagn félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umræðu um hjúkrun og skal reynt að endurspegla ólíkar skoðanir og viðhorf til hjúkrunar. Einnig er gert ráð fyrir viðtölum við fólk um hjúkrun, faglegu efni, fréttum af kjaramálum o.fl. I stefnu sem þessari er ekki unnt að tilgreina hvað hver þáttur á að vera efnismikill. Því er nauðsynlegt að gera könnun á hvernig þið viljið hafa tímaritið. Valgeröur Katrín Jónsdóttir Fjölmörg handrit hafa að undanförnu borist tímaritinu þar sem óskað hefur verið eftir að þau verði send í ritrýni og hefur því! verið ákveðið að gefa út sérstakt hefti með ritrýndum greinum í tilefni 80 ára afmælis og verður það þriðja afmælisgjöfin. Fjórða afmælisgjöfin eru ýtarlegar leiðbeiningar til höfunda greina og uppfærð heimasíða tímaritsins. Fimmta og síðasta afmælisgjöfin er samræðuþing sem haldið verður á Hótel Nordica 25. nóvember. Þar mun Margrét Guðmundsdóttir vera með yfirlit um sögu tímaritsins, Kristín Björnsdóttir fjalla um hvernig hjúkrunarfræðingar koma þekkingu sinni á framfæri í tímaritinu og horft verður til framtíðar. Til hamingju með 80 árin! BEDCO & MÁTHIESEN EHF Bæjarhraun 10 - Hafnafjörður Sími 565 1000 - bedco@bedco.is Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005 5

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.