Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Qupperneq 23
GREIN Geta þeir meötekiö fræðslu? upplýsingar en þeir þurfa nauðsynlega á að halda. Mikilvægt er því að hjúkrunarfræðingur veiti sem nákvæmastar upplýsingar um það sem þeir telja að sjúklingurinn þurfi að vita. 3. Fannst sjúklingum fræðslan skiljanleg? 4. Nýttist fræðslan sjúklingum? 5. A hvaða formi hefðu sjúklingar viljað hafa fræðsluna? Framkvæmd rannsóknarinnar Árið 2002, þegar rannsóknin var gerð, leituðu 17.559 einstaklingar sér aðstoðar á bráðamóttöku Landspítala -háskólasjúkrahúss við Hringbraut, þar af lögðust 1.458 einstaklingar inn á skurðdeildir á Hringbraut frá bráðamóttökunni. Ekki er vitað hve margir þessara sjúklinga fóru fyrst í skurðaðgerð áður en þeir lögðust inn á legudeild. Viðmið úrtaksins voru einstaklingar 18 ára og eldri sem fóru í skurðaðgerð frá bráðamóttöku Landspítala - háskólasjúkrahúss við Hringbraut á tímabilinu febrúar til apríl 2002 og gátu lesið, talað og skrifað íslensku. I úrtakinu voru 37 einstaklingar á aldrinum 20-89 ára og samþykktu 35 þeirra þátttöku í rannsókninni, en ekki náðist í tvo. Skipting var jöfn milli kynja, 16 konur og 15 karlar. Við framkvæmd rannsóknarinnar voru notaðar fimm rannsóknarspurningar. 1. Fengu sjúklingar fræðslu fyrir skurðaðgerð á bráðamóttökunni? 2. Fræddueingöngu hjúkrunarfræðingarsjúklinga fyrir skurðaðgerð? Mælitækið sem notast var við í rannsókninni var spurningalisti með 31 spurningu sem ýmist voru opnar eða Iokaðar. Hluti þeirra var fenginn frá Gyðu Baldursdóttur sem hún þýddi og staðfærði en mælitækið var byggt á mælitæki Cronin og Harrison (1988), aðrir hlutar þess voru settir saman af rannsakendum í samræmi við ríkjandi hugmyndir og kenningar á þessu sviði að loknum lestri fræðilegs efnis. Margir sérfræðingar lásu mælitækið yfir svo sem Laura Sch. Thorsteinsson, þróunarráðgjafi hjúkrunar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, Gyða Baldursdóttir, formaður hjúkrunarráðs LSH, ogjónína Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur á fræðasviði hjúkrunar á LSH sem sæti átti í siðanefnd LSH, og voru fáar athugasemdir gerðar við það. Mælitækið var forprófað á fjórum einstaklingum sem féllu að skilyrðum úrtaksins. Þeir höfðu ekkert út á það að setja og virtist það gefa til kynna að það væri skiljanlegt og einfalt. Einn þessara fjögurra tók sérstaklega fram að mælitækið væri skiljanlegt, jákvætt og greinilegt væri að einstaklingarnir sem hefðu samið það hefðu mikinn áhuga á sjúklingafræðslu og hefðu „pælt vel í sjúklingafræðslunni" eins og hann orðaði það. Gagnasöfnun fór fram á tímabilinu febrúar til apríl 2002. Hún fór þannig fram að hjúkrunarfræðingar á bráðamóttökunni á Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005 21

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.