Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 31

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 31
FRÁ FÉLAGINU Heildræn nálgun umönnunar innan heilbrigöisþjónustunnar sem farið var yfir hugtakið og notkun á ígrundun í starfi. Christopher Johns, Desmond Ryan, Erna Haraldsdóttir, Jo Hockley og undirrituð unnu í rúm tvö ár að undirbúningi þessarar námstefnu. Allur undirbúningur og þátttaka þeirra í námstefnunni voru unnin í sjálfboðavinnu. Einu væntingar okkar og einlæg von með þessu vinnuframlagi voru að námstefnan myndi leiða til áhugaverðrar alþjóðlegrar umræðu um heildræna nálgun umönnunar innan heilbrigðiskerfisins. Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga, og Guðrún Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags Islands, sýndu þessari viðleitni strax mikinn stuðning með ómetanlegu vinnuframlagi til skipulags og undirbúnings. Aðalbjörg Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur bættist í hóp undirbúningsnefndar frá Fíh og Þorgils Völundar- son, tölvufræðingur Krabbameinsfélags Islands, aðstoðaði okkur við uppsetningu á heimasíðu námstefnunnar. Fjölmargir sýndu viðleitni okkar mikinn stuðning og fjárhags- legan styrk og vil ég í lokin fá að nefna: Segja má að ígrundun sé ákveðin leið sérhvers einstaklings til að tengja faglega þekkingu við daglega reynslu í leik og starfi og öðlast nýjan skilning í gegnum þá reynslu. Með þjálfun verður virk ígrundun ekkert annað en lífsmáti. Virk ígrundun stuðlar að heildrænni hugsun. En hvað er heildræn hugsun? Heildræn hugsun skapast þegar einstaldingur tengir andlegar, líkamlegar, félagslegar og trúar- legar hugsanir saman við athafnir sínar. En hvernig tengist það heildrænni heilbrigðisþjónustu? Með heildrænni heilbrigðisþjónustu er átt við að horft er á einstaklinginn sem þarf á þjónustunni að halda á heildrænan hátt, þ.e. andlegum, Iíkamlegum, félagslegum og trúarlegum þörfum hans eru gerð jafn góð skil innan þeirrar þjónustu sem veitt er. Desmond Ryan varpaði fram á námstefnunni að einstaklingur er veitir heildræna þjónustu þyrfti að tileinka sér heildræna hugsun. Heildræn hugsun innan heilbrigðisþjónustunnar stuðlar að virku samvinnuumhverfi allra þeirra sem koma að heilbrigðisþjónustunni, bæði þeirra sem veita þjónustuna og þeirra sem hennar njóta. Með þetta að leiðarljósi gerði undirbúnings- nefndin sér fljótlega Ijóst að til að ráðstefnan endurspeglaði heildræna hugsun þyrfti hún að vera þverfagleg og opin öllum þeim sem hefðu áhuga á að hlúa að þessari nálgun. Ráðstefnan var sett upp sem námstefna og Christopher Johns bauð upp á heilan dag þar Biskupsstofa - Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari Blackwell publising Ltd Bláa lóniö - Ragnheiður Alfreösdóttir hjúkrunarforstjóri Congress Reykjavík, ráðstefnuþjónusta - Bryndís og Lára Danól ehf. - Build Up-næringardrykkir Félag íslenskra öldrunarlækna - Jón Eyjólfur Jónsson læknir Grand hótel Reykjavík Hjúkrunardeild Háskóla íslands - Herdís Sveinsdóttir Janssen - Cilag - Þyri Emma Þorsteinsdóttir Landlæknisembættið - Siguröur Guðmundsson landlæknir LSH - Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar Maður lifandi ehf. Sage Publishing Samtök um líknandi meðferð á íslandi - Dóra Halldórsdóttir hjúkrunarfræðingur Reykjavík, september 2005 Herdís Jónasdóttir hjúkrunarfræðingur, formaður undirbúningsnefndar Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005;

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.