Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 33

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 33
Jean Watson bendir á að þar sem við búum í flóknu samfélagi þar sem áreiti sé úr öllum áttum sé mikilvægt að „hreinsa“ hugann af alls kyns öðrum hugsunum áður en hjúkrunarfræðingarnir geta beint athyglinni að þeirri manneskju sem þeir eru að hjúkra. Jean Watson segir frá nýjum aðferðum sem hún innleiddi í hjúkrunarmeðferð en undirstöður hennar byggjast á þeirri staðreynd að samband sé á milli alls í heiminum, einstaklinga og umhverfis, og allir tilheyra óendanleikanum hvaðj varðar náttúru, orku, meðvitund og andlegt atgervi. Kenningin byggist einnig á því að sameina það besta úr austrinu og vestrinu eða visku austursins og vísindaþekkingu vestursins. Og ástin, sem er sterkasta aflið sem sameinar fólk, er einnig einn af undirstöðuþáttum þessarar heilunarkenningar. Hún hefur verið að gera tilraun til að koma á breytingum á stóru sjúkrahúsi í Virginíu og sjúlu'ahúsi í Miami í Flórída. „Við þurfum breytingar í heilbrigðiskerfinu, ég byrja með því að vinna með yfirstjórnendum, svo hjúkrunarstjórnendum, starfsmannastjóra hjúkrunarfræðinganna og svo vinn ég með hjúkrunarfræðingunum sjálfum. Sjúkrahúsin okkar eru orðin mjög tæknivædd en ekki endilega að sama skapi heilbrigðir vinnustaðir eða staðir þar sem sjúklingum líður vel. En breytingarnar sem þurfa að verða koma þó ekki frá yfirboðurum, þær verða að koma frá okkur sjálfum. Það eru hjúkrunar- fræðingarnir sem breyta í grundvallaratriðum frá hjarta sínu og í því felst meðvitund um hvað það er sem þeir eru að gera. Meta hlutina upp á nýtt og gefa þeim nýja rödd og tungumál." Hún segir nánar frá tilrauninni sem gerð er á þessum sjúkrahúsum. Hún segir t.d. að einn daginn hafi einn hjúkrunarfræðingur verið að nudda axlirnar á öðrum og þeir sem áttu Ieið hjá hafi staldrað við. „Það þarf oft ekki miklar breytingar til að af stað fari breytingaferli ef menn eru með skýra hugmynd um þann grundvöll sem þær byggjast á,“ segir hún og segir ýmislegt annað hafa breyst eftir að hjúkrunarfræðingarnir fóru að nota nudd inni á sjúkrahúsunum. Oft þarf ekki mikið til að sjúklingum og aðstandendum líði betur og í sumum tilfellum er nægilegt að nudda hendur þeirra til aukinnar vellíðunar. við þær kenningar sem liggja til grundvallar þessum tilraunum sem fram hafa farið á sjúkrahúsunum tveimur. „Læknarnir hafa stundum komið, t.d. þegar hjúkrunarfræðingar eru að nota Iæknandi snertingu, og spurt þá hvað þeir séu að gera. Þeir svara og upplýsa læknana um hvað sé í gangi. Fyrst trufluðu læknarnir hjúkrunarfræðingana við þessa hjúkrunarmeðferð, ég man t.d. eftir einu dæmi. A barnadeildinni höfum við komið okkur upp svona helgum stöðum, barnið er í rúminu sínu eins og heima hjá sér og þar má engin meðferð fara fram. Búið er til sérstakt herbergi þar sem barnið á að fá meðferð. Nýlega kom læknir inn, hann var að flýta sér og ætlaði að hlusta barnið í rúmi þess en hjúkrunarfræðingurinn benti honum á að það gengi ekki, ný stefnumörkun í hjúkrun væri í gildi og samkvæmt henni væri barnið á öruggu svæði þar sem engin meðferð mætti fara fram. Hann var ekki alveg sáttur við þetta og fór með barnið inn á meðferðarherbergið með semingi. Nýja stefnumótunin var útskýrð fyrir honum og að hún væri gerð til að sjúklingum og aðstandendum liði betur. Daginn eftir hringdi hann til yfirmanns síns og baðst afsökunar. Og nú um stundir bera læknarnir fulla virðingu fyrir þessu. I öðru tilviki kom yfirmaður hjúkrunarfræðinga á skurðstofu inn á stofuna með svipaða skál og ég notaði til að fanga athygli ráðstefnugesta. Hún spurði hjúkrunarfræðingana hver ætlaði að sjá um að slegið væri í hana þessa vikuna. Skurðlæknarnir brugðust vel við þessu og þetta er nú notað þar á stofunni til að auka einbeitingu allra sem vinna á skurðstofunni og sameina hugi þeirra í þeirri aðgerð sem framundan er." VIÐTAL Viö þurfum aö meta hlutina upp á nýtt Hjúkrunarfræðinga þyrstir í nýjungar Hún segir einnig frá því þegar hjúkrunarfræðingar Jean Watson segir að byrjað hafi verið á þessu tilraunaverkefni hafa verið að vinna hjúkrunarmeðferð í samræmi fyrir um það bil þremur árum. „Hjúkrunarfræðingarnir voru Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.