Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2005, Page 56
Helga Birna Ingimundardóttir 54 Samningar 2005 Samningur við ríkið Skrifað var undir kjarasamning Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga ogfjármálaráðherra 28. febrúar 2005. Samningstíminn er frá 1. febrúar 2005 til 30. apríl 2008. Hann var samþykktur í atkvæðagreiðslu 29. mars 2005. Alls greiddu 993 atkvæði eða 48,5%. Já sögðu 82%, nei sögðu 17% og 1% skilaði auðu. Samningurinn nær til um 2/3 hluta félagsmanna. Kjarasamningurinn var samkomulag 23 félaga innan BHM. Tvö stéttarfélög innan BHM, Félag íslenskra náttúrufræðinga og Stéttarfélag sálfræðinga, kusu að vera ekki með í samfloti BHM-félaga. Helstu markmið kjarasamningsins eru að hækka byrjunarlaun BHM-félaga verulega, hækka þau félög sérstaldega sem voru með lægstu launatöflunar og auka gegnsæi launakerfisins. Það auðveldar allan samanburð milli stétta og milli kynja. Ekkert félag innan BHM hækkar minna en um 19% á samningstímanum en það stéttarfélag sem hækkar mest hækkar um 27%. um þrjá talsmenn. Hlutverk samstarfsnefnda er að annast gerð, endurskoðun og breytingar á stofnanasamningi. Samkvæmt þessu verður því gerður sameiginlegur stofnanasamningur allra BHM-félaga á stofnun en ekki einn fyrir hvert félag eins og verið hefur. Undirbúningur að skipan í samstarfsnefndir er kominn vel af stað og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga komið með fulltrúa í nær öllum stofnunum ríkisins. Sameiginleg fræðsla fyrir fulltrúa í samstarfsnefndum beggja vegna borðsins mun fara fram á haustmánuðum. Undirbúningur að fræðslunni er í höndum sáttanefndar. Sáttanefnd er skipuð sex fulltrúum, þremur frá fjármálaráðuneytinu og þremur frá aðildarfélögum BHM. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, er einn af þremur fulltrúum BHM í sáttanefnd. Helsta hlutverk sáttanefndar er að taka þau ágreiningsmál fyrir sem til hennar er vísað. Samkomulag um réttindi Fyrir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þýðir þetta að launataflan hækkaði urn 5,41% frá 1. febrúar 2005. Áramótahækkanir eru 2,5% 1. janúar 2006, 2,25 1. janúar 2007 og 2,00% 1. janúar 2008. Ný sameiginleg launatafla tekur gildi 1. maí 2006 og skv. henni verða byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga ekki lægri en kr. 200.000. Uppbygging launatöflunnar breytist líka að því leyti að í stað sjálfkrafa aldurshækkana eru teknir upp svokallaðir álagsflokkar. Persónu- og tímabundnir þættir eru metnir sem álag á launaflokka. Meta má vægi álags beggja þátta til hækkunar um allt að 20% samanlagt af viðkomandi launaflokki, í 2,5% bilum. Þá gefur nýja launataflan aukið svigrúm til umbunar um allt að 30.000 krónum á mánuði. Til að unnt verði að taka upp nýja launatöfiu þurfa forsendur röðunar og álags að liggja fy'rir. Um það verður samið í stofnanasamningum og geta þeir verið misjafnir milli stofnana. Með kjarasamningum náðist einnig það markmið að Ijármagn fylgir gerð stofanansamninganna og þurfa stofnanir því ekki eingöngu að hagræða til að mæta auknum útgjöldum vegna stofananasamninga, eins og verið hefur. Það verður gert með tvennum hætti, annars vegar 3,8% framlagi 1. maí 2006 vegna vörpunarkostnaðar og samræmingar stofnanasamninga, hins vegar 2,6% í maí 2007 til þróunar launakerfisins. Þá var og samið um eingreiðslu, kr. 20.000, til að bæta þá tvo mánuði (desember og janúar) sem liðu frá því að samningar runnu út. Til að ná fram settum markmiðum kjarasamningsins verða samstarfsnefndir stofnana skipaðar fulltrúum allra aðildarfélaga BHM á stofnun. Þeir aðilar komi sér svo saman Hinn 22. desember 2004 var skrifað undir samkomulag milli fjármálaráðherra, Reykjavíkur- borgar og launanefndar sveitarfélaga milli BHM, KI og BSRB, um tiltekin atriði er varða réttindi starfsmanna sem eru félagsmenn aðildarfélaga framangreindra samtaka. Samkomulagið tekur í fyrsta lagi til slysatrygginga, hækkunar dánarslysabóta og tryggingafjárhæða vegna varanlegrar örorku. Þá var iðgjald í styrktar- og fjölskyldusjóð BHM hækkað úr 0,41% í 0,55% sem atvinnurekandi greiðir af heildarlaunum starfsmanna. Með samkomulaginu var einnig gengið frá svohljóðandi bókun: „Upp hafa komið álitamál um hvert starfsmenn eigi að beina kröfu sinni vegna tjóns er þeir verða fyrir við framkvæmd starfs síns. A þetta hefur einkum reynt þegar í hlut eiga starfsmenn sem í starfi sínu sinna meðferð einstaklinga sem að takmörkuðu eða jafnvel engu leyti geta borið ábyrgð á gerðum sínum. Til að auðvelda starfsmönnum að koma fram með kröfur sínar eru aðilar sammála um efirfarandi: Starfsmaður sem í starfi sínu sinnir einstaklingi sem að takmörkuðu eða jafnvel engu Ieyti getur Tímarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 81. árg. 2005

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.