Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Qupperneq 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Qupperneq 8
Þorgerður Ragnarsdóttir Sjónarhóll veitir foreldrum bráðaþjónustu Hjá Sjónarhóli, ráðgjafarmiðstöð fyrir foreidra barna með sérþarfir, er leitast við að veita ráðgjafarþjónustu sem tekur mið af þörfum hverrar fjölskyldu hverju sinni. Hugmyndin er að Sjónarhóll verði eins og sími 112 í hugum foreldra barna með sérþarfir, sá staður sem þeim kemur fyrst í hug þegar þeir þurfa á aðstoð að halda varðandi börnin sín. Á forsendum foreldra Markmiðið með starfi Sjónarhóls er að fjölskyldur barna með sérþarfir njóti jafnréttis og sambærilegra lífskjara við aðrar fjölskyldur í landinu og búí við lífsskilyrði sem geri þeim kleift að lifa eðlilegu lífi. Ráðgjöfin hjá Sjónarhóli er aðgengi- leg, endurgjaldslaus og óháð þjónustu- stofnunum á vegum ríkis, sveitarfélaga og félagasamtaka. Til að panta tíma hjá ráðgjafa þarf hvorki að liggja fyrir greining né tilvísun frá fagaðilum. Það er nóg að hringja í síma 5351900 eða senda tölvupóst. Þjónustan er fyrir allt landið og ráðgjafarnir hitta fólk í heimabyggð sé þess óskað. Ráðgjafar Sjónarhóls hlusta á foreldra, kynna sér þarfir þeirra og leita lausna í samvinnu við þá. Stundum nægja nokkur viðtöl eða símtöl, en stundum er efnt til stærri funda með öllum sem sinna sama barni á mismunandi stöðum. Ráðgjafarnir fylgja foreldrum, sem þess óska, til fundar við lækna, kennara, félagsráðgjafa eða aðra sem veita þeim þjónustu því mörgum finnst betra að hafa einhvern með sér þegar þannig stendur á. Sumir foreldrar koma fyrst og fremst til að sækja sér uppörvun eða hvatningu í daglegu amstri. Byrjað var að skrá erindi, sem berast ráðgjafarmiðstöðinni, 1. nóvember 2004. Reynt er að halda skráningu í lágmarki en nauðsynlegt er að vita hve margir leita sér ráðgjafar og hvaða erindi þeir eiga. í framtíðinni munu upplýsingar frá Sjónarhóli án efa koma að notum í 6 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.