Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Page 9
9
Frá málþingi Sjónarhóls í febrúar 2006
baráttunni fyrir bættum' hag fjölskyldna
barna með sérþarfir.
Frá því skráning hófst hefur vel á þriðja
hundrað foreldra barna með sérþarfir
leitað til ráðgjafarmiðstöðvarinnar.
Flestir voru úr Reykjavík og nágrenni.
Um þriðjungur var foreldrar barna með
ADHD en einnig komu margir foreldrar
barna með þroskahömlun, mismunandi
stig einhverfu, líkamlega fötlun og lang-
vinna sjúkdóma. Mörg barnanna höfðu
greinst með fleiri en eitt þroska- eða
heilsufrávik. Algengustu erindi, sem
foreldrar áttu við ráðgjafana, tengdust
skólagöngu á mismunandi skólastigum,
stuðningsúrræðum, félagslegri stöðu og
ýmsu varðandi Tryggingastofnun ríkisins.
Gott sambýli
Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses.
er til húsa á Háaleitisbraut 13 ásamt
félögunum sem stóðu að stofnun hennar,
þ.e. Landssamtökunum Þroskahjálp,
Umhyggju, félagi til styrktar iangveikum
börnum, ADHD-samtökunum og
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra (SLF).
SLF hefur starfað í húsinu í áratugi
en hin aðildarfélög Sjónarhóls keyptu
hlut í húsnæðinu á móti Sjónarhóli af
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses. nýtir
ekki allt húsnæði sitt á Háaleitisbraut
13 fyrir eigin starfsemi og er hluti þess
leigður út til starfseininga með skylda starf-
semi. Leigjendurnir víkka út og auðga þá
þjónustu sem stendur til boða í húsinu.
Leigjendur Sjónarhóls eru: Tölvumiðstöð
fatlaðra (TMF), Umsjónarfélag einhverfra,
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni, CP-
félagið, Fjölskyldumiðstöðin og trúnaðar-
maður fatlaðra fyrir Reykjavík og Suður-
nes. Auk þess er þar rannsóknaraðstaða
fyrir tvo nemendur á framhaldsstigi sem
stunda rannsóknir sem varða þjónustu
hóp ráðgjafarmiðstöðvarinnar sem
stéttarfélög hafa tekið að sér að
reka í samvinnu við Sjónarhól og
félagsvísindadeild Háskóla íslands.
Verslunarráð fslands studdi verkefnið
fyrsta árið en BSRB tók við í árslok
2005.
Að gefnu tilefni er ástæða til að leiðrétta
þann misskilning að ráðgjafarmiðstöðin
Sjónarhóll sé regnhlíf yfir alla starfsemi
á Háaleitisbraut 13. Samtökin, félögin
og stofnanirnar deila húsnæði en starfa
áfram sjálfstætt hvert á sínu sviði með
sjálfstæðan fjárhag og stjórn. Nábýlið
gefur hins vegar möguleika á nánu og
skemmtilegu samstarfi. Samlegðaráhrif
koma fram í aukinni samvinnu um
einstök verkefni og auðveldu aðgengi að
uppiýsingum innanhúss.
Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses, er
ein starfseininganna í húsinu og rekstur
hennar fyrstu þrjú árin tryggðu ríkisstjórn
íslands, Össur hf., Landsbankinn hf.,
Pokasjóður, Kvenfélagið Hringurinn
og Actavis hf. Auk þess var nýlega
skrifað undir þjónustusamning við
5JÖNAR
HÖI.L
Reykjavíkurborg sem miðar að því að
bæta þjónustu fyrir foreldra barna með
sérþarfir í Reykjavík. Hjá Sjónarhóli er
áhugi á víðtæku samstarfi við sveitarfélög,
fyrirtæki, stofnanir og samtök.
Framtíðard rau mar
Allir foreldrar eiga að vita af Sjónarhóli
og hvaða þjónusta stendur þar til boða.
Leitast er við að kynna Sjónarhól fyrir
foreldrum, almenningi, fagfólki, félaga-
samtökum og stofnunum á fjölbreyttan
hátt sem víðast. Haustið 2004 var opnuð
heimasíða, www.sjonarholl.net, sem
geymir ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir
foreldra. Bækling um Sjónarhól er hægt
að fá á skrifstofunni á Háaleitisbraut.
Starfsfólk Sjónarhóls tekur á móti
gestum og heimsækir með ánægju
félagasamtök og vinnustaði um allt land
í kynningarskyni. Þá hefur Sjónarhóll
notið liðsinnis Engilráðar andarunga og
göngugarpanna Bjarka Birgissonar og
Guðbrands Einarssonar við að breiða út
boðskapinn sem starfið byggist á.
Aðstandendur Sjónarhóls vilja sjá starf-
semina blómstra í framtíðinni. Forsenda
þess er innihaldsríkt starf sem reynist
foreldrum barna með sérþarfir gagnleg. Á
því byggist starfsgrundvöllur Sjónarhóls
um ókomna tíð.
Sjónarhóll - ráðgjafarmiðstöð ses.
Háaleitisbraut 13, 112 Reykjavík
Sími: 5351900
www.sjonarholl.net
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006
7