Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Side 30
Hugur, hjarta, hönd
Einkunnarorð hjúkrunarfræðinga, sem lesa má á veggspjöldum víða á heilbrigðis-
stofnunum, eru í góðu samræmi við einkunnarorð Janki-stofnunarinnar eins og
Herdís Jónasdóttir benti ritstjóra Tímarits hjúkrunarfræðinga á á þverfaglegri
ráðstefnu sem haldin var á herragarði nálægt Oxford, en stofnunin leggur
áherslu á að þeir sem vinna við heilbrigðisþjónustu þurfi að horfa á þjónustuna
á heildrænan hátt þannig að rétt samspil með jafnvægi á milli hugar og hjarta
komi fram í þjónustunni sem veitt er.
Janki-stofnunin eða „The Janki
Foundation for Global Health Care"
er ekki rekin í hagnaðarskyni. Hún
er með aðsetur í Bretlandi. Hún var
sett á laggirnar af Brahma Kumaris
Spiritual University og Royal College of
Physicians í London og hvetur og styður
rannsóknir á samspili hugar, hjarta og
heilbrigðis. Stofnunin helgar sig öllu
því jákvæða í mannlegu eðli sem hlúir
að heildrænni heilbrigðisþjónustu sem
tekur tillit til andlegra, líkamlegra og
sálfélagslegra þarfa bæði þeirra sem
heilbrigðisþjónustuna veita og njóta, með
því að bjóða upp á ýmsar vinnusmiðjur
og málstofur. Meðal þess sem tekið hefur
verið fyrir er:
• Helstu gildi heilbrigðisþjónustunnar -
ígrundun sérfræðingsins
• Að deyja - hinn læknandi máttur
• Að byggja brýr - tenging andlegra
viðhorfa og geðheilbrigðisþjónustu
• Að verða eldri og vitrari - að tengja
öldrun og andleg verðmæti
• Að skilja kærleikann
• Hinn læknandi máttur veikinda - að
skoða viðhorf til veikinda.
Gildi innan heilbrigðisþjónustunnar
Forseti Janki-stofnunarinnar er Dadi
Janki, kona á tíræðisaldri. Dadi Janki
er ein af skólastýrum Brahma Kumaris
World Spiritual University (BKWSU).
Aðalstöðvar þess skóla er í Madhuban
á Indlandi en skólinn, sem kom Janki-
stofnunni á laggirnar, er í London. Líf
Dadi Janki hefur einkennst af umhyggju
fyrir velferð annarra. Hún hefur mikið
velt fyrir sér lækningamætti eftir að hafa
búið við veikindi frá barnæsku og með
því að starfa við hjúkrun er hún var yngri
á Indlandi í 14 ár við frekar bágbornar
aðstæður.
Undanfarin ár hefur Dadi Janki haft
vaxandi áhyggjur af versnandi líðan
heilbrigðisstarfsmanna í Bretlandi og
í raun um heim allan en sú vanlíðan
hefur endurspeglast í minnkandi starfs-
ánægju, síþreytu og kulnun í starfi.
Allt heilbrigðisstarfsfólk kannast við þá
tilfinningu að verða á stundum uppgefið
og úrvinda en þegar það ástand er
orðið stöðugt þjáist fólk af svokallaðri
kulnun í starfi. Kulnun í starfi einkennist
af þeirri kennd að vera tilfinningalega
örmagna, fullur neikvæðra viðhorfa í garð
sjúklinga og þeirri tilfinningu að finna fyrir
vaxandi vanmati í starfi og minnkandi
sjálfstrausti.
Að leita lausna
Snemma árs 2000 hitti Dadi Janki hóp
heilbrigðisstarfsfólks sem hún hafði boðið
til sín til að fjalla um þessi málefni. í hópnum
voru fulltrúar ólíkra starfsstétta, svo sem
geðlækna, iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga,
óhefðbundinna lækninga, listmeðferðar,
kennara, stjórnenda o.fl. aðila innan
heilbrigðiskerfisins. Einstaklingarnir í
hópnum höfðu mikla menntun og reynslu
á sínu sviði. Hópurinn velti fyrir sér
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006