Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Blaðsíða 36
Anný Lára Emilsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Sóltúni - hjúkrunarheimili, anny@soltun.is
Margrét Gústafsdóttir, hjúkrunarfræðingur, dósent í hjúkrunarfræðideild HÍ, margust@hi.is
MEÐFERÐARÚRRÆÐI VIÐ ÞVAGLEKA ALDRAÐRA Á
HJÚKRUNARHEIMILUM: ÁHERSLA Á ATFERLISMEÐFERÐ
Útdráttur
Grein þessi er byggð á fræðilegri úttekt á þvagleka aldraðra
og viðhlítandi meðferðarúrræðum á hjúkrunarheimilum, með
áherslu á atferlismeðferð. Þvagleki er mjög algengur meðal
aldraðra, einkum á hjúkrunarheimilum, og hefur víðtæk áhrif
á einstaklinginn og umönnunaraðila hans. Sýnt hefur verið
fram á að bæta megi gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
með því að bjóða þeim íbúum sem þjást af þvagleka upp á
atferlismeðferð. Að mörgu er þó að hyggja ef ná á árangri
með þess háttar meðferð á hjúkrunarheimilum.
Fræðilegu úttektinni var fylgt eftir með athugun á tveimur
hjúkrunarheimilum þar sem rætt var við hjúkrunarforstjóra,
tvo deildarstjóra og tvo sjúkraliða á hvoru heimili um sig.
Að mati þátttakenda var markmið atferlismeðferðar við
þvagleka að ná hámarksárangri hjá hverjum og einum íbúa
með hliðsjón af líkamlegri og vitsmunalegri getu hans.
Mikilvæg forsenda þess að ná árangri var talin vera að
þekkja vel til íbúans. Þátttakendur töldu atferlismeðferð við
þvagleka skipta miklu máli og árangur meðferðarinnar fælist
ekki síst i því að bæta lífsgæði íbúanna.
Lykilorð: Þvagleki aldraðra, hjúkrunarheimili, meðferðarúr-
ræði við þvagleka, atferlismeðferð við þvagleka, lífsgæði.
Abstract
This article is based on a literature review on urinary
incontinence of the elderly and suitable treatment options
in nursing homes. Urinary incontinence is very common
among the elderly, especially in nursing homes, and has a
wide-ranging impact on the person suffering from it and his
or her caregivers.
It has been demonstrated that care in nursing homes can
be improved by offering behavioral intervention to residents
who suffer from urinary incontinence. Yet many things need
to be taken into consideration if this type of treatment is to
be successful in nursing homes.
The literature review was followed by a small field study
in two nursing homes. In each institution the nursing
director, two unit managers, and two practical nurses
were interviewed. According to the participants, the aim of
urinary incontinence behavioral intervention is to reach the
maximum results with each resident in the light of his or her
physical and intellectual abilities. An important prerequisite
for success was considered to be a thorough knowledge of
the resident in question. Participants considered the urinary
incontinence behavioral intervention to be very important,
especially since it improves the residents’ quality of life.
Keywords: Urinary incontinence among the elderly, nursing
homes, treatment of urinary incontinence, behavioral
intervention in urinary incontinence, quality of life.
Inngangur
Tilgangur þessarar greinar er að fjalla um þvagleka aldraðra á
hjúkrunarheimilum og meðferðarúrræði þar sem megináhersla
er lögð á atferlismeðferð. Fjallað verður almennt um þvagleka
aldraðra og sett upp tafla um algenga flokkun hans. Yfirlit
verður gefið um mismunandi atferlismeðferð við þvagleka,
dæmi gefið um árangur slíkrar meðferðar og rætt um forsendur
þess að ná árangri. Síðan verður gerð grein fyrir athugun sem
framkvæmd var á vettvangi, en í framhaldi af fræðiiegri úttekt
á þessum vanda var ákveðið að færa niðurstöður hennar til
íslensks veruleika og skoða þær í samhengi við starfshætti hér
á landi.
Ætla má að rannsóknarefni sem þetta hafi mikið gildi fyrir
hjúkrun sem fræðigrein þar sem meðhöndlun við þvagleka er í
langflestum tilvikum hjúkrunarfræðilegt viðfangsefni og er það
því á ábyrgð hjúkrunarfræðinga að aðstoða skjólstæðinginn
við að ná sem bestum tökum á vandanum. Það er auk þess í
verkahring hjúkrunarfræðinga að hafa yfirumsjón með starfsemi
og starfsfólki á hjúkrunarheimilum og það gefur þeim einstakt
tækifæri til að móta þjónustu deildanna í ijósi þekkingar og eftir
hugmyndafræði hjúkrunar.
Við vinnu á fræðilegri úttekt var leitað gagna í tímaritum
og í fræðibókum. Lykilorð í leitinni voru þvagleki aldraðra,
hjúkrunarheimili, meðferðarúrræði við þvagleka, atferlismeðferð
við þvagleka og lífsgæði. Sumar heimildirnar, sem stuðst er við,
eru komnar nokkuð til ára sinna en þvagleki aldraðra var algengt
rannsóknarefni í lok níunda áratugarins og í upphafi þess
tíunda. Það er mat höfunda að þessar rannsóknamiðurstöður
sóu enn gjaldgengar þar sem eldri niðurstöður komu heim og
saman við þær nýrri.
Þvagleki
Þvaglosun er flókið ferli sem í megindráttum snýst um samspil
taugakerfis og þvagfæra. Þvagleki er skilgreindur sem óviljandi
34
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006