Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Qupperneq 48

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Qupperneq 48
Öryggi sjúklinga KALMAR-MÁLIÐ Tildrög málsins eru í stuttu máli þessi: í maímánuði árið 2002 var komið með þriggja mánaða gamalt stúlkubarn með flog á barnaspítalann. Hún var flutt yfir á gjörgæsludeild til eftirlits um nóttina og fékk þar meðferð með dreypilyfinu Xylocard. Morguninn eftir ákváðu læknar að flytja ætti hana aftur á nýburadeild barnaspítalans. Jafnframt var tekið fram að dreypilyfið væri að klárast og að útbúa þyrfti nýjan skammt af því. Þá voru mistökin gerð. Hjúkrunarfræðingi á gjörgæslu var fengið það verkefni að blanda lyfið en hann tók í misgripum ranga lyfjapakkningu og blandaði skammt sem var tífalt sterkari en hann átti að vera. Barnið fékk flog að nýju síðdegis þennan sama dag og lést tæpri klukkustund síðar. Héraðssaksóknarinn í Kalmar las um atburðinn í staðarblaði. Málið var rann- sakað og saksóknarinn ákvað að ákæra hjúkrunarfræðinginn fyrir manndráp af gáleysi. Mál hjúkrunarfræðingsins var svo tekið til umfjöllunar á öllum þremur dómsstigum sænska réttarkerfisins; í þingrétti, hofrétti og loks hæstarétti. Mjög sérstakt þykir að hæstiréttur Svíþjóðar skyldi yfirleitt taka málið fyrir því hann tekur einungis fyrir um fimm af hundraði allra þeirra mála sem áfrýjað er til hans. Hann fjallar nær eingöngu um dómsmál sem gætu haft fordæmisgildi. Hjúkrunarfræðingurinn var fundin sek á öllum þremur dómstigunum og fékk bæði skilorðsbundinn dóm og fjár- sektir. Hæstiréttur staðfesti þannig með dómi sínum að annars vegar hefði brot hjúkrunarfræðingsins verið það alvarlegt að það væri refsivert, og hins vegar að hægt sé að fjalla um brot innan heilsugæslunnar fyrir almennum dómstólum meti saksóknari það svo. Bæði ákæran og dómsorðið hafa þó vakið mjög sterk viðbrögð og mikla gagnrýni í Svíþjóð, jafnt af hálfu Várdforbundet (samtaka hjúkrunarfræðinga), samtaka sænskra sveitarfélaga (sem bera ábyrgð á heilsugæslunni) og Socialstyrelsen, en sú stofnun ber ábyrgð á eftirliti með heilsugæslunni í Svíþjóð. 46 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.