Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Qupperneq 50
ÞÓR'A HAFSTEINSDÓTTIR FÉKK
ANNA REYNVAAN-VÍSINDAVERÐLAUNIN 2006
Mánudaginn 8. maí sl. voru
Þóru B. Hafsteinsdóttur
hjúkrunarfræðingi veitt Anna
Reynvaan-vísindaverðlaunin
í Stadsschouwburg-þjóðleik-
húsinu í Amsterdam að við-
stöddum fjölda gesta (u.þ.b.
900 manns).
Þóra starfar sem rannsakandi við lyflækningasvið I
á LSH, sem og við heilasvið Rudolf Magnus rann-
sóknarstofnunarinnar í Utrecht og við háskólann í
Utrecht í Hollandi. Verðlaunin voru veitt fyrir bestu
vísindagrein innan hjúkrunar sem birt var á árinu 2005.
Þóra lauk B.S.-prófi í hjúkrunarfræði frá Hí árið 1984.
Hún starfaði á gjörgæsludeild LSH í nokkur ár. Árið
1993 lauk hún meistaragráðu í hjúkrunarfræði frá
University of Wales og árið 2003 doktorsgráðu við
háskólann í Utrecht. Doktorsverkefni hennar bar nafnið
„Neurodevelopmental treatment in the early stage of
stroke" og beindist að rannsókn á svokallaðri NDT-
meðferð. Verðlaunagreinin lýsir meginniðurstöðum
þessarar rannsóknar.
Síðustu árin hefur Þóra stýrt samvinnuverkefni á milli
LSH, háskólasjúkrahússins í Utrecht og háskólans
í Utrecht. Það verkefni snýr að rannsóknum á
endurhæfingu sjúklinga sem hafa fengið heilablóðfall
og þróun klínískra hjúkrunarleiðbeininga varðandi
endurhæfingu, næringu og þunglyndi sjúklinga
sem hafa fengið heilablóðfall. í þessu verkefni
taka fjórir hjúkrunarfræðingar frá LSH þátt, þær
Svanhildur Sigurjónsdóttir, Marianne Klinke og Katrín
Björgvinsdóttir frá taugadeild B2 og Dórothea Bergs
frá endurhæfingardeild R2 Grensási. Einnig vinnur
hópur hjúkrunarfræðinga og lækna í Hollandi að
verkefninu. Verkefnið er einnig unnið í samvinnu við
fagdeild taugahjúkrunarfræðinga á íslandi, hollensku
hjartaverndina, samtök hollenskra hjúkrunarfélaga og
hollenska taugahjúkrunarfélagið.
Fyrirlestur, kenndur við Anna Reynvaan, er haldinn
árlega við háskólasjúkrahúsið Academisch Medisch
(Mynd: Hans Oostrum)
Centrum (AMC) í Amsterdam í samvinnu við fleiri aðila. Þessi fyrirlestur er
nefndur eftir Önnu Reynvaan, sem var frumkvöðull við hjúkrun í Hollandi.
Þeir sem að fyrirlestrinum standa vilja gefa hjúkrunarfræðingum tækifæri
til að kynnast nýjungum á sviði hjúkrunar og rannsóknum á fræðasviði
hennar.
Háskólasjúkrahúsið AMC veitir árlega tvenn verðlaun, kennd við
Anna Reynvaan: verðlaun fyrir gæðaverkefni og vísindaverðlaun fyrir
vísindagrein. Verðlaunin eru stytta og peningaupphæð er nemur
48
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006