Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Ráðherra vitnaði til „hagsýnnahúsmæðra“. Þá urðu þing- konur órólegar og andmæltu úr púlti. Minnimáttarkennd sumra kvenna var skiljanleg forðum tíð enda alið á henni og konum haldið niðri. Nú fer slík hópminni- máttarkennd konum illa. Þær standa sig hvar- vetna jafnvel körlum. Kvennaskólinn var kvennaskóli. Hann heitir enn Kvennaskóli. Piltarnir þar gera ekkert með það. Nafnið er gott og minnir á söguna.    Karlaskólar voru til án þess aðheita það. Bæri slíkur skóli í dag slíkt nafn, sóttur af báðum kynjum, myndu minnimáttartals- menn sjálfsagt heimta með hróp- um að nafninu yrði breytt. Þær sæju ekki að sigurinn felst í því að konur væru í slíkum skóla, jafnvel í góðum meirihluta og stæðu sig með prýði.    Páll Vilhjálmsson skrifar:„Augljóst er að hugmyndin um hagsýna húsmóður er jákvæð og ætti að vera það. Húsmóðir er stórt orð, móðir hússins, sem synd væri að gera að hnjóðsyrði. Og hagsýni verður seint lagt nokkrum til lasts. Þingmaðurinn sem gagnrýndi fjármálaráðherra hljóp á sig. Og óþarfi af ráðherra að biðjast afsök- unar. Nema hann hafi meint eitt- hvað allt annað en hann sagði. Stjórnmálamenn eiga það til.“    Þrjár persónur eru í ranni Stak-steina. Ein er köttur og ræður mestu.    Staksteinar eru ekki hagsýnastahúsmóðirin á heimilinu. Ekki af því að þeir séu ekki húsmóðir, heldur eru þeir ekki nægilega hag- sýnir. Meinlokur fortíðar STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.2., kl. 18.00 Reykjavík 1 hagl Bolungarvík 6 skýjað Akureyri 10 skýjað Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló -7 skýjað Kaupmannahöfn -2 snjókoma Stokkhólmur -3 heiðskírt Helsinki -6 heiðskírt Lúxemborg 3 þoka Brussel 3 súld Dublin 7 léttskýjað Glasgow 5 skýjað London 3 þoka París 7 skýjað Amsterdam 0 þoka Hamborg -2 alskýjað Berlín -3 skýjað Vín -1 skýjað Moskva -12 snjókoma Algarve 15 heiðskírt Madríd 8 léttskýjað Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 13 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -25 heiðskírt Montreal 0 léttskýjað New York 2 þoka Chicago -1 alskýjað Orlando 22 rigning Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:42 17:43 ÍSAFJÖRÐUR 9:59 17:35 SIGLUFJÖRÐUR 9:43 17:18 DJÚPIVOGUR 9:15 17:09 Aðhald í ríkisfjármálum hefur minnkað um 2% af landsframleiðslu undanfarin tvö ár. Þessu er haldið fram í umsögn Seðlabanka Íslands til fjárlaganefndar um fjármálastefnu fjármálaráðherra til ársins 2022. Bent er á í umsögn bankans að í fyrra hafi myndast framleiðslu- spenna í þjóðarbúinu og spáir bank- inn því að spennan aukist enn frekar í ár en minnki svo á ný smám saman frá og með næsta ári. Því er haldið fram að miðað við þessa spá og upp- lýsingar í fjármálaáætlun ríkisfjár- mála megi ætla að hún feli í sér slök- un á aðhaldsstigi ríkisfjármála um 0,5% af landsframleiðslu í ár miðað við síðasta ár. ,,Áætlunin felur hins vegar í sér að sú slökun yrði tekin til baka á næsta ári. Samkvæmt því verður aðhalds- stig opinberra fjármála svipað á næsta ári og það var árið 2016. Rétt er þó að hafa í huga að í fyrra slakn- aði aðhaldið um u.þ.b. 1% af lands- framleiðslu og kom það í kjölfar svip- aðrar slökunar árið áður,“ segir í umsögn Seðlabankans. Fagnar langtímaáætlun Bent er á að vandasamt sé að spá efnahagsumsvifum svo langt fram í tímann sem fjármálastefnan nær til ef hagvöxtur verður ekki jafnmikil á seinni hluta spátímans og nú sé gert ráð fyrir því stefnt sé að nokkrum raunvexti ríkisútgjalda. „Seðlabanki Íslands fagnar hins vegar langtímaáætlunum hins opin- bera þar sem horft er lengra en til eins árs í einu. Til að slíkar áætlanir gagnist er mikilvægt að þær séu eins raunsæjar og kostur er.“ omfr@mbl.is Minna aðhald í ríkisfjármálum  Seðlabankinn segir aðhaldið hafa minnkað um 2% af landsframleiðslu sl. tvö ár „Við höfum fundið fyrir miklum stuðn- ingi á undan- förnum vikum. Það sést best í fjölda nýrra Bakvarða sem hafa bæst í hóp- inn,“ segir Jón Svanberg Hjart- arson, fram- kvæmdastjóri Landsbjargar, en Bakverðir eru styrktaraðilar fé- lagsins. „Á síðustu vikum hafa bæst við um 1.800 Bakverðir. Nokkuð hefur verið um einstaka styrki og sala á minningarkortum hefur aukist lítillega.“ Spurður hvað Bakverðir styrki félagið mikið segir Jón allan gang vera á því. „Sumir borga 500 krónur á mánuði, aðrir meira, allt upp í ein- hverjar þúsundir króna á mánuði. Þetta er styrkur sem munar held- ur betur um til að hægt sé að halda úti öflugu björgunarstarfi um allt land. Það munar um hverja krónu. Núna eru t.d. björg- unarsveitir að störfum vegna ofsa- veðursins.“ Jón Svanberg Hjartarson Bakvörð- um fjölgar  Mikilvægt framlag til björgunarstarfs MEISTARAMÁNUÐUR Sogavegi 3 Höfðabakka 1 Sími 555 2800 FERSKIR ÞORSKBITAR ROÐLAUSIR OG BEINLAUSIR 2 fyrir 1990kr.kg 1.690 kr.kg FiskibollurSkata
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.