Morgunblaðið - 09.02.2017, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.02.2017, Qupperneq 28
SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Á Ásbrú eru mikil tækifæri til frek- ari uppbyggingar á atvinnu- starfsemi í tengslum við flug og flug- sækna starfsemi, meðal annars vegna nálægðar við vel tengdan al- þjóðaflugvöll. Tækifærin felast í að þróa landsvæðið út frá nálægðinni við samgöngumiðju sem tengir svæðið við yfir 50 mismunandi er- lenda áfangastaði í tveimur heims- álfum, og með möguleika á þeirri þriðju,“ segir Kjartan Þór Eiríks- son, fram- kvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkur- flugvallar, Kad- eco, en félagið hefur verið að selja ýmsar eign- ir sem eftir eru á Ásbrú og til- heyrðu áður Varnarliðinu. Félagið var stofnað til að koma eignunum í verð en nýverið var greint frá sölu á íbúð- ar- og atvinnuhúsnæði fyrir um fimm milljarða króna til Íslenskra fasteigna ehf. Með þeirri sölu hefur Kadeco lok- ið við að selja um 93% þess húsnæðis sem félagið hafði til umsýslu fyrir hönd ríkissjóðs, eftir að Varnarliðið fór. Andvirði af sölu þessara eigna er tæpir 18 milljarðar króna. Íslenskar fasteignir ehf. hafa tek- ið við þessum eignum og salan er frágengin. Að sögn Kjartans er verið að auglýsa nokkrar eignir sem eftir er að selja á Ásbrú og segir hann mikinn áhuga vera á þeim. Nálægðin verðmæt Kadeco hefur einnig það hlutverk að þróa og markaðssetja rúma 50 ferkílómetra af landi sem liggur kringum flugvöllinn. Til saman- burðar liggja eignirnar sem félagið var að selja nýverið á um einum f́er- kílómetra. „Það eru gríðarleg tækifæri í þró- un þessa lands í tengslum við starf- semi sem þarf á nálægð við flugvöll að halda, bæði til að flytja sitt fólk og sínar vörur,“ segir Kjartan og tekur dæmi af gagnaveri Verne Global, sem er með söluskrifstofur í Bret- landi og Bandaríkjunum og fjöl- þjóðlega viðskiptavini á borð við BMW. Verne nýti sér það vel að vera nánast í bakgarði flugvallarins. „Fyrir stjórnendur og starfsmenn Verne er nálægðin við flugvöllinn mjög verðmæt, enda er til að mynda styttra í tíma frá miðborg London til Ásbrúar en ýmissa svæða innan Bretlands. Erlendir viðskiptamenn og sérfræðingar fljúga inn að morgni og til baka seinni partinn án nokkurra vandkvæða. Þannig er staðsetning við flugvöllinn að mörgu leyti samkeppnishæf við mörg svæði erlendis, jafnvel þótt fjarlægðin í kílómetrum gefi annað til kynna. Fjarlægðin í tíma einfaldlega vegur hana upp.“ Kjartan segir efnahagsleg áhrif flugvallarins ná lengra en bara til þeirra flugfarþega sem um hann fara. „Með markvissri uppbyggingu má skapa mikil verðmæti úr landi við flugvöllinn, svo sem gert er víða erlendis, þar sem alþjóðleg fyrirtæki kjósa að staðsetja sig við vel tengda flugvelli. Bæði vegna möguleika til vörudreifingar en í sívaxandi mæli jafnframt til að nýta flugtenging- arnar fyrir stjórnendur og starfs- fólk,“ bætir hann við. Kjartan bendir á að Keflavíkurflugvöllur hafi á að skipa mun meiri umferð en almennt tíðkist fyrir flugvelli í jafn litlu sam- félagi og Íslandi. Reglubundið flug sé til nærri 50 áfangastaða árið um kring en almennt mætti búast við að 300 þúsund manna samfélag gæti státað af 1-2 áfangastöðum. „Þetta veitir mikil tækifæri til uppbyggingar í kringum flugvöllinn, ekki síst í starfsemi sem tengist flugi yfir Atlantshafið, hvort heldur er í formi fraktflutninga eða þess hag- ræðis sem skapast af því að staðsetja starfsemi á vel tengdum stað við all- ar helstu borgir Evrópu og austur- strandar Bandaríkjanna. Aðrir stað- ir sem geta boðið sömu tengingar eru iðulega í eða við stórborgir, þar sem landrými er dýrt og skipulags- kröfur jafnvel útiloka ákveðna starf- semi. Hér þarf ekki að finna upp hjólið heldur er verið að vísa til þró- unar sem hefur átt sér stað á undan- förnum áratugum við flugvelli af sambærilegri stærð. Um Keflavíkur- flugvöll má hins vegar segja að gætt hafi ákveðinna ruðningsáhrifa af veru Varnarliðsins sem komu í veg fyrir að slík borgaraleg þróun ætti sér stað. Enda má nú 10 árum eftir brotthvarf Varnarliðsins greina öran vöxt við og umhverfis flugvöllinn,“ segir Kjartan. Hann segir að strax við stofnun Kadeco hafi verið tekið til við að greina hvernig hægt væri að byggja svæðið upp að nýju og skapa þá eft- irspurn sem myndi leiða til jákvæðra áhrifa. Sérstaklega var skoðað í Evr- ópu og Ameríku til hvaða meðala væri almennt gripið þegar her- stöðvar væru lagðar niður. „Fljótlega kom í ljós að það var í raun flugvöllurinn sem skilgreindi svæðið frekar en niðurlagning her- stöðvarinnar sem slíkrar,“ segir Kjartan en í framhaldi af ráðgjöf frá PWC í Belgíu var horft meira í þá átt að þróa svæðið út frá staðsetningu sinni við Keflavíkurflugvöll og al- mennt að velheppnuðum þróunar- svæðum frekar en að yfirgefnum herstöðvum. Laðar fyrirtæki að Segir Kjartan að Kadeco hafi í þessu tilliti litið sérstaklega til rann- sókna og hugmynda hjá Bandaríkja- manninum John D. Kasarda, sem lít- ur á flugvelli sem vaxtarsvæði, ekki bara sem flugbrautir og flugstöðvar- byggingar heldur fyrir fyrirtæki í þjónustu og framleiðslu sem vilja hagnýta sér þá möguleika sem ná- lægð við flugvelli skapar. Hug- myndafræði Kasarda nefnist Aero- tropolis. Er vísað til þeirrar þróunar sem hefur átt sér stað erlendis, þar sem flugvellir eru víða orðnir að nokkurs konar miðpunkti á land- svæði sem byggist út frá honum og þeirri borg sem hann þjónar. „Þetta eru þó ekki bara einhverjar hugmyndir heldur er þetta sá raun- veruleiki sem blasir við þegar skoð- aðir eru flugvellir erlendis sem hafa haft pláss til að vaxa á undanförnum áratugum,“ segir Kjartan og nefnir þar t.d. flugvellina á Schiphol og í Frankfurt. Þar séu þessi sjónarmið, um að nýta aðdráttarafl flugvallarins til að laða að hávirðisstarfsemi, ein- faldlega stór hluti af samkeppnis- hæfni viðkomandi svæða. Öflugur flugvöllur með öflugum tengingum styrki innlenda starfsemi og skapi tækifæri til að laða að sér erlend fyr- irtæki í hávirðisgreinum. „Lega Íslands gerir það að verk- um að stór hluti flugvéla sem ferðast um Atlantshafið flýgur um íslenska flugumferðarsvæðið. Ísland er því ekki jafn langt norður í hafi þegar lega þess er metin frá sjónarhóli flugsamgangna á milli þriggja heims- álfa, Evrópu, Norður-Ameríku og nyrðri hluta Asíu. Til framtíðar litið eru því tækifæri tengd legu landsins og mikilvægi flugvallarins út frá möguleikum í alþjóðaviðskiptum mikil.“ Segir Kjartan þessa þróun þegar farna af stað hér á landi. Efnahags- leg áhrif Keflavíkurflugvallar nái lengra en bara að flugfarþegunum. Athyglin hafi einkum beinst að ferða- mönnum en reynslan erlendis sýni að ferðaþjónustan sé aðeins einn hluti af efnahagslegum áhrifum flugvalla. „Ferskfiskútflutningur fer að stóru leyti fram í lestum farþega- flugvéla. Sú staðreynd að þau níu flugfélög sem nota völlinn árið um kring fljúga jafn oft og til jafn margra áfangastaða og raun ber vitni gerir útflutningsaðilum kleift að ná til viðskiptavina sinna á mjög skömmum tíma. Þannig er fiskurinn kominn á disk neytandans innan tveggja sólarhringa frá því að hann er veiddur á miðunum við Ísland. Þeir framleiðendur sem eru stað- settir nálægt flugvellinum geta jafn- vel sniðið framleiðsluna að pöntun kaupandans að morgni og varan er farin í flug seinni partinn,“ segir Kjartan en á nýlegum fundi Isavia og Kadeco var kynnt skýrsla frá hag- fræðingum Íslenska sjávarklasans sem sýnir að vinnsla á botnfiski sé í auknum mæli að færast á suðvest- urhorn landsins, nær Sundahöfn og Keflavíkurflugvelli. Þá séu mörg fiskvinnslufyrirtæki á Suðurnesjum byggð upp með það í huga að flytja út ferskan fisk með flugi. Þá bendir Kjartan á nýlega af- komuviðvörun Icelandair, sem olli titringi í Kauphöllinni. Þar hafi skýrt komið fram hve mikið sjómanna- verkfallið sé farið að hafa áhrif á flugfélagið, með minnkandi frakt- flutningi á ferskum fiski. Suðurnesin færast upp Kjartan nefnir annað dæmi um áhrif Keflavíkurflugvallar, þ.e. vægi hans í starfsemi þjónustufyrirtækja á alþjóðamarkaði. Samanber gagna- ver Verne sem komið var inn á hér að framanverðu. „Í þekkingardrifnum fyrirtækjum er nýting mannauðsins ofar öllu og ekki ákjósanlegt að starfsfólkið eyði meiri tíma en nauðsynlegt er í óþarfa ferðalög. Ferðalög geta þó verið nauðsynleg og mörg þessara fyrir- tækja sjá því virði í því að staðsetja sig við flugvellina sjálfa í stað þess að eyða tíma starfsmanna í ferðir inn og út úr borgunum,“ segir Kjartan og telur þetta vera verðmætustu far- þegana, hvort heldur sem er fyrir flugfélögin, hótelin, flugvöllinn eða svæðið þar í kring. Loks bendir Kjartan á að Suður- nesin hafi færst upp um þrjú sæti á lista norrænu rannsóknastofnunar- innar yfir bestu framtíðarhorfur svæða á Norðurlöndum árið 2016. Þar var fyrst og fremst horft til möguleika til uppbyggingar í kring- um flugvöllinn. „Í greiningunni kom í ljós að svæði við flugvelli njóta mikils vaxtar á Norðurlöndum sem og ann- ars staðar og að vel tengd svæði sækja á í samanburði við þau sem ekki njóta sömu samgangna við al- þjóðasamfélagið. Suðurnesin eru eina svæðið á Íslandi sem færir sig upp á listanum,“ segir hann um lista Nordregio. Vísar Kjartan einnig í aðra skýrslu sem unnin var af Inter- vistas fyrir samtök evrópskra flug- valla. Þar komi fram að störf innan flugvallargirðingar séu aðeins hluti af þeim áhrifum sem gæti í efnahags- legu tilliti. Fyrir hverja 10% aukn- ingu í flugtengingum aukist verg þjóðarframleiðsla á mann um 0,5%. „Gott dæmi um þetta er að á undanförnum árum hafa flugfélögin verið að bæta við áfangastöðum á vesturströnd Bandaríkjanna. Það hefur leitt til þess að skyndilega eru nýir markaðir orðnir aðgengilegir. Það þarf því ekki að koma á óvart að íslenskir fiskútflytjendur eru farnir að selja fisk til vesturstrandarinnar. Tækifærin fyrir íslenskan þekking- ariðnað eru þó líklega enn meiri, enda helstu vöggu tæknialdarinnar nú að finna á meðal áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli,“ segir Kjartan að endingu. Fjölmörg tækifæri við flugvöllinn  Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, vinnur að þróun og markaðssetningu á svæðinu kringum flugvöllinn  Sér mikil tækifæri til uppbyggingar fyrir ýmsa flugsækna starfsemi í kring Tölvuteikning/Isavia Framtíðin Svona gæti athafnasvæðið kringum Keflavíkurflugvöll litið út í náinni framtíð, miðað við plön Isavia og Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Morgunblaðið/Ómar Leifsstöð Farþegum sem fara um flugstöðina hefur fjölgað gríðarlega. Kjartan Þór Eiríksson Vaxtarsvæði Skýringarmynd af hugmyndafræði Kasarda, Aerotropolis. 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.