Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 79
79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
Hvað litavalið varðar segir Haf-
steinn að flestir velji að flísaleggja
gólfið með hvítum og ljósgráum
tónum enda hefur það þau áhrif að
herbergin virðast stærri. „En svo
eru margir sem eru óhræddir við
að fara óhefðbundnar leiðir og
vilja t.d. dökkar flísar sem hafa
steinsteypuáferð, og jafnvel park-
etflísar,“ útskýrir hann. „Algeng-
ast er að flísarnar séu lagðar með
hefðbundnum hætti en af og til
koma tímabil þar sem er í tísku að
flísaleggja t.d. með fiskbeina-
mynstri, eða velja flísar með þrí-
víðu yfirborði.“
Með svissneskan smekk
Hinn dæmigerði Íslendingur
virðist forðast litsterkar flísar.
„Við erum með mjög svipaðan
smekk og Svisslendingar að því
leyti. Stöku kúnnar vilja sterka
liti, t.d. túrkís, en þá er það und-
antekningalaust fólk sem hefur
búið í útlöndum í lengri tíma og
kynst þar öðruvísi flísahefðum.“
Leggur Hafsteinn áherslu á að
ekkert sé bannað í flísavalinu og
úrvalið mikið. Sölumenn Víddar
séu boðnir og búnir að veita leið-
sögn og hjálpa þá viðskiptavin-
inum t.d. að meta hvernig lögun
og stærð rýmisins og lýsingin spil-
ar inn í.
En hvað um þægindin? Sumir
eru ekki hrifnir af flísum því þær
geta stundum virkað kaldar undir
berum táslunum. „Flísar eru þó
mjög góður kostur á heimilum þar
sem hiti er í gólfum, því flísarnar
leiða hitann betur en t.d. parket.
Ef ekki er hægt að leggja hita-
lögn í gólfið má nota þar til gerðar
mottur sem flísarnar eru lagðar
ofan á. „Þetta eru þunnar mottur
með rafmagnshita, en hafa þann
ókost að geta truflað eða takmark-
að fjarskiptasamband á heimilinu,
og þarf því stundum að gera
ákveðnar ráðstafanir.“
Hlýleiki parketsins
en styrkur flísanna
Hafsteinn segir líka vert að gefa
parketflísunum gaum, vilji fólk
skapa það hlýlega útlit sem parket
gefur heimilinu. „Oft er vandasamt
að velja rétta gólfefnið á heimilum
þar sem eldhús og stofa eru í einu
opnu rými. Hefðbundið parket lít-
ur kannski vel út í stofuhlutanum
en hentar ekki í eldhúsinu þar sem
hætt er við að vökvar hellist niður
og skemmi parketið og eldhús-
stólar slíti yfirborðinu. Park-
etflísar leysa vandann, gefa útlitið
sem sóst er eftir en eru sterkt efni
sem þolir eldhússtörfin.“
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hefðir Íslendingar sem hafa búið erlendis virðast oft vera djarfari þegar þeir velja lit á flísarnar, að sögn Hafsteins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lausn Leggja má rafmagsnmottur undir flísar ef ekki er hiti í gólfum.
Hlífar og undirf
Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á
þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu
og hlýjum án þess að valda kláða.
Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki
Nýtt í Lyfju
Y L F A
ANGÓRA
Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is
öt
n þess að
m þurrum