Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 84

Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 84
84 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Eiður Svanberg Guðnason vinna þar sem við gátum beint kröftum okkar að sameiginlegum áhugamálum til hagsbóta fyrir land og þjóð. Þótt við værum að ýmsu ólíkir náðum við vel saman, ræddumst oft við í síma og hittumst af og til, einkum eftir að hinum opinberu störfum okkar lauk. Skyldulesning hjá mér var að lesa „Molana“ hans á Morgun- blaðsblogginu. Hann hafði óvenjulegan áhuga á íslensku máli og næma tilfinningu fyrir réttri notkun þess. Oft var hann argur yfir því hversu „frétta- börnin“ tóku lítið tillit til ábend- inga hans. Þó er ég viss um að hann hafði mikil áhrif til góðs með þessum skrifum sínum. Að leiðarlokum þakka ég Eiði fyrir samferðina og samvinnuna á hinum ýmsu sviðum sem við skiptum okkur af á langri veg- ferð. Hann var góður drengur sem gott var að eiga að vini. Innilegar samúðarkveðjur flyt ég afkomendum hans og fjöl- skyldu allri. Ólafur G. Einarsson. Aðalsmerki Eiðs Guðnasonar var réttlætiskenndin. Fyrir henni hlaut annað að þoka. Gagnvart ranglæti eða mismunun hafði Eiður hvorki þolinmæði né um- burðarlyndi. Sérdrægni og mont fengu sama viðmót, ekki hlýtt. Undirritaður naut leiðsagnar hans dagstund um Gerðar í Garði. Áheyrandi skynjaði hug- takið „heima“ í orðunum. Áralag, sjólag og veðrabrigði, átök hafs og alþýðu manna, kynslóðanna undir árum. Samtaka komst fólk af og ekki öðru vísi. Það var hans fólk. Leiðir okkar lágu fyrst saman upp úr miðri síðustu öld. Mínar að vestan og hans spor voru þá um mölina í Reykjavík. Þeir bekkjarbræður mínir höfðu dálít- ið gaman af þessum sveitadreng sem þekkti ekki Dodge frá Chevrolet-drossíum og hafði að- eins einu sinni séð alvöru bíó, Síð- asta bæinn í dalnum. Hann og þeir tóku staulann upp á arma sína og gættu þess að hann færi sér ekki að voða. Skiluðu honum þannig síðast af sér í Faunu með túttu í munni. Við vorum oft samferða upp Skólavörðuholt. Það var gaman fannst mér strax, seinna sá ég að það hafði einnig verið menntandi. Við Skólavörðustíg var sjoppa og þar fékkst kók og prins. Þar var rökrætt. Við vorum komnir í reikning, traustir menn. Hans leið lá yfir og niður í Norðurmýri, mín sveigði til vinstri til Dísu frænku á Bergþórugötu.Við ráð- gerðum að hlusta á plötur sem hann átti með Louis Armstrong. Það dróst reyndar. Varð ekki fyrr en 50 árum seinna. Við átt- uðum okkur ekki á því að ein kveðjan við Hallgrímskirkju- grunn var sú síðasta um mörg ár. Síðasta úttekt í sjoppunni var víst aldrei borguð, orðið of seint þeg- ar það rifjaðist upp. Eiður rataði víðar en flestir. Hvergi „varð hann að auga- bragði“, ekki meðal kjósenda, ekki meðal þingmanna, þá ekki ráðherra eða diplómata, hvorki keisarahalla í Kína eða með frændum í Færeyjum. Sjór sagna af þessu fólki með góðlát- legri glettni, ótrúlega minnugur á fólk. Þegar árin færðust yfir tók hann upp þráð gamalla kynna. Það var líkt honum. Ræktarsemi og áhugi á fólki, kjörum og arf- leifð tímans var óslökkvandi. Hann lá í bókum. Hann hlustaði og horfði til allra átta, annt um sinn gamla vinnustað Sjónvarpið, gagnrýninn og leiðbeinandi, væntumþykjandi, lifandi þátttak- andi. Engum datt í hug að hann færi á undan okkur hinum. Mað- ur er aldeilis gáttaður, harmi lostinn. Við höfum verið að hittast reglulega, skólasystkinin. Víst vel á annað hundrað sinnum, samkvæmt tali Gísla Ólafs. Ekki man ég hvernig það byrjaði en hitt vitum við öll að hann var kjöl- festan í þessum samskiptum. Eigum við ekki að ganga líka? Það er hollara. Ég er hérna með bók um 25 gönguleiðir og enn fleiri utan bókar. Og síðan höfum við gengið þegar viðrar. Hvor yrði fyrri til að hringja eftir veð- urfréttir á mánudagskvöldum? Hvernig líst þér á hann? Hún er nú heldur betri norska spáin, sagði hann stundum. Og hvað verður nú? spyr hver annan. Oft var upphaf göngu við Hallgrímskirkjudyr. Þar kvödd- umst við fyrst. Þar kveðjumst við síðast. Veri Eiður „vinarlega“ kvaddur af okkur öllum. Aðalsteinn Eiríksson. Þetta byrjaði ekki vel. Hvað varstu að gera þarna niðri, spurði hann með þjósti. Við höfðum aldrei hist fyrr en þarna á gang- inum og ég gat varla ímyndað mér, að hann vissi hver ég væri. Eflaust sá hann þó að ég var bara ómerkur sveinstauli, sem vissi lít- ið í minn haus og allra síst vissi ég nokkuð um sjónvarp. Sjálfur var hann eitt þekktasta andlit í ís- lensku sjónvarpi og reynslubolti mikill. Langflottastur. Árið var 1971. Hvað varstu að gera, endurtók hann. Ég var nú bara svona að forvitnast, sagði ég. Langaði að sjá hvernig filmusafnið liti út. Þú átt ekkert með að hnýsast í safnið okkar. Það er fréttastofan sem á þetta safn, og með það var hann rokinn. Það var ekki þarna sem við urðum félagar. Það gerðist síðar. Næst þegar fundum okkar bar saman vonaðist ég til að njóta ögn meiri virðingar enda búinn að stjórna fyrsta sjónvarpsþætt- inum mínum. Þetta var tónlistar- þáttur þar sem stútungs kallar og kellingar hentust uppábúin um sveitt dansgólfið undir dillandi harmonikkutónlist. Við mættumst aftur á sama gangi, ögn innar. Gerðir þú harmonikkuþáttinn í gærkvöldi, spurði hann. Já, svaraði ég. Kannski líkaði honum þátturinn. Það voru allt of miklar klippingar í honum, sagði hann. Það á ekki að klippa svona oft í sjónvarpi. Og svo var hann aftur rokinn. Enn voru engin merki þess að við ættum eftir að verða mestu mátar. Það kom síðar. Ég bar óttablandna virðingu fyrir þessum snaggaralega manni, sem þusti um ganga stofnunarinnar þannig að hvein í. Sat hins vegar þess á milli pollró- legur inni í sjónvarpstækjum landsmanna og tók helstu ráð- menn tali, sýndi þeim kurteisi en vék hvergi frá ágengum spurn- ingum sem þurfti að fá skýr svör við og það strax og vörðuðu þjóð- arhag. En svo kom að því. Þetta er að koma, sagði hann yfir soðinni ýsu og kartöflum í matsalnum einn daginn. Ashkenazy er engum lík- ur. Frábær tónlistarmaður. Þekki hann. Já, hann gat stundum verið hálf hryssingslegur og afundinn þessi góði vinnufélagi, sem mátti ekki af neinu misjöfnu vita. Helst þurfti þetta allt að vera sam- kvæmt bókinni. Það var langbest. En smám saman áttu þessi sam- skipti okkar eftir að breytast til hins betra. Við urðum vel mál- kunnugir, síðan góðir kunningj- ar, svo vinir og síðast töluvert löngu síðar… miklir vinir. Síð- ustu árin var gjarnan tekist á um menningu og listir, reyndar heimsmálin öll eins og þau lögðu sig, yfir rótsterku kaffi í Bjark- arási… já, öll helstu dægurmál voru þar uppi á borðum og þau leyst með snörpum sviptingum auk þess sem minnst var gamalla tíma og genginna vina. Síðustu vikuna í nóvember hittumst við svo síðast í Ey- mundsson, Kringlunni, hann að skipta bókum og ég á leið til Ind- lands. Lofar að koma í kaffi strax og þú kemur til landsins, sagði hann. Ég þarf að segja þér margt um Indland. Og með það var hann rokinn. Takk fyrir vináttuna, félagi Eiður. Helli upp á rótsterkt kaffi heima í Löngulínu á eftir. Búinn að fara í bakaríið. Býst svo við þér, því við áttum eftir að ræða svo margt. Svo ótal, ótal margt. Þinn vinur, Egill Eðvarðsson Eiður Svanberg Guðnason gekk til liðs við okkur sem stóð- um að sameiningu Samtaka um vestræna samvinnu og Varð- bergs undir lok árs 2010 og stofn- uðum Varðberg, samtök um vest- ræna samvinnu og alþjóðamál. Hann sat í stjórn Varðbergs í fjögur ár og sýndi mikinn og ein- lægan áhuga á að öryggis lands og þjóðar yrði jafnan gætt í sam- vinnu við vinveittar nágranna- þjóðir og á þann hátt sem nauð- synlegt væri í samræmi við þróun öryggismála. Það var ómetanlegt að njóta liðsinnis Eiðs vegna mikillar reynslu hans og þekkingar eftir farsæl störf hans sem fréttamað- ur, alþingismaður, ráðherra og sendiherra. Hann var hreinskipt- inn í öllu samstarfi og aldrei ríkti neinn vafi um afstöðu hans. Varðberg var ekki eini vett- vangurinn þar sem við Eiður átt- um samleið síðari ár. Hann var virkur félagi í Aflinu, félagi qi gong-iðkenda, og hittumst við þar oft snemma morguns við Gunnarsæfingar, kerfi kínversku lífsorkuæfinganna sem kennt er við Gunnar heitinn Eyjólfsson leikara. Söknum við félagar Eiðs þar vinar í stað. Loks minnist ég samskipta okkar í netheimum. Þau voru mikil og góð. Þótt við værum ekki alltaf sammála skiptumst við jafnan á skoðunum af gagn- kvæmri vinsemd og virðingu. Haldi einhverjir að ekki sé unnt að gera athugasemdir við orð manna á Facebook af kurteisi, málefnalega eða með gamansemi er það misskilningur. Vona ég að orðaskipti okkar Eiðs á þeim vettvangi sýni það. Eiður skrifaði alls 2.103 pistla á vefsíðu sína undir heitinu Molar um málfar og miðla, þar sem hann vakti máls á því sem hann taldi mega betur fara í málnotk- un fjölmiðlamanna. Sýndi þetta elju hans og þolgæði í þágu ís- lenskrar tungu og góðs valds blaða- og fréttamanna á henni. Hann vék einnig að misheppnuð- um efnistökum og gaf góð ráð til höfunda. Átaldi hann oft skort á yfirlestri og minntist þá hve nostrað var við texta á hans tíð sem blaða- og fréttamaður. Eiður hlaut verðlaun úr Móðurmáls- sjóði Björns Jónssonar ritstjóra 1974, en þau voru veitt blaða- mönnum fyrir gott vald á ís- lenskri tungu. Ég votta ástvinum Eiðs Svan- bergs Guðnasonar innilega sam- úð. Blessuð sé minning Eiðs Svan- bergs. Björn Bjarnason. Við Eiður Guðnason áttum samleið um langt árabil, fyrst á ritstjórn Alþýðublaðsins, síðan á Ríkisútvarpinu og á Alþingi. Nú síðustu árin sátum við í stjórn Bókmenntafélags jafnaðar- manna, sem stóð myndarlega að 100 ára afmæli Alþýðuflokksins snemma á síðasta ári með bók- arútgáfu, hátíðarsamkomu og er- indaflutningi. Jafnaðarstefnan sameinaði okkar áhugamál og um leið minningin um baráttuflokk íslenskrar alþýðu, Alþýðuflokk- inn, sem var okkur einkar kær. Eiður var góður vinur og fé- lagi. Hann stóð fast á skoðunum sínum, var traustur og áreiðan- legur. Hann gat verið ákaflyndur og kappsamur, sem stundum olli tímabundnum ágreiningi. Gat verið hvassyrtur ef eitthvað var honum öndvert eða mótdrægt og skýr í tali. Honum lét hins vegar vel að vera sanngjarn, hugulsam- ur og hlýr og að sinna vinum sín- um af alúð. Eiður var þjóðþekktur baráttumaður íslenskrar tungu. Hann lét sig máli skipta tungutak fjölmiðlamanna og orðanotkun á veraldarvefnum. Þar deildi hann þekkingu sinni með ábendingum um betra málfar og hefur efa- laust haft umtalsverð áhrif ís- lenskunni til ávinnings. Í fjölbreyttum störfum sem al- þingismaður, ráðherra og sendi- herra var Eiður dugnaðarforkur og naut góðs álits. Eygló Har- aldsdóttir, eiginkona hans, var honum traustur ráðgjafi og stóð við hlið hans í blíðu og stríðu. Það var Eiði mikið áfall þegar hún lést eftir langvinn veikindi. Tómarúmið varð ekki fyllt. Ég sakna Eiðs og þeirra góðu stunda sem við áttum og voru flestar tengdar hugleiðingum um jafnaðarstefnuna og hvernig efla mætti áhrif hennar í íslensku samfélagi. Andlát hans kom mjög á óvart. Nokkru áður höfðum við rætt vilja okkar og löngun til að ganga Jakobsveginn á vori komanda, báðir sannfærðir um góða heilsu og getu til langrar göngu. En Eiður fór í aðra ferð og spor okk- ar um Jakobsveg verða ekki merkjanleg í bráð. Á mínum aldri fækkar nokkuð ört í hópi jafnaldra og samferða- manna. Þá koma góðar minning- ar að notum, minningar um trausta vini og félaga, sem gerðu lífið betra og litríkara og áttu sér hugsjónir um frelsi, jafnrétti og samstöðu þegnanna í anda orða Jóns Vídalíns: „Mennirnir eru skapaðir hver öðrum til aðstoðar og hafa Guðs boð um það að styrkja hver annan innbyrðis.“ Ég kveð Eið Guðnason með virktum og þökk fyrir vináttu og samstarf. Börnum hans, barna- börnum og ættingjum öllum sendi ég hlýjar samúðarkveðjur. Árni Gunnarsson. Sorg og söknuður eru fyrstu orðin sem koma upp í hugann. Þó að Eiður hafi verið að nálgast átt- rætt var hann á engan hátt gam- all maður, ekki í hugsun, tali, hátterni eða líkamsburðum. Hann lét sér alltaf umhugað um vandaða fjölmiðlun, sagði okkur til og benti á það sem betur hefði mátt fara, til hinsta dags. Við hittumst fyrst fyrir 40 ár- um þegar hann tók á móti ungum fréttamanni á vakt á fréttastofu Sjónvarps. Stundum velti ég því fyrir mér hvað Eiður hugsaði um kornungan, reynslulausan há- skólanema sem orðinn var einn þriggja fréttamanna á vaktinni sem hann stjórnaði af röggsemi og ákveðni. Fréttastofan hafði starfað í áratug og Eiður átt mik- inn þátt í að móta starfið. Braut- ryðjendunum hafði tekist að færa fréttastofuna í öndvegi íslenskra fjölmiðla með vönduðum vinnu- brögðum og metnaði. Mikil áhersla var lögð á að fréttir væru skrifaðar og fluttar á lýtalausri íslensku. Allt var þetta Eiði mjög að skapi, hann var sjálfur kröfu- harður, bæði til sjálfs sín og ann- arra, en ætíð réttsýnn. Hann var góður lærimeistari, miðlaði rausnarlega af reynslu sinni, stundum óþolinmóður og alltaf ómyrkur í máli; Eiður leyndi ekki skoðunum sínum. Þess vegna kom það ekki á óvart að hann valdi að yfirgefa fréttamennsk- una og hefja þátttöku í stjórnmál- um. Þaðan lá svo leiðin í utanrík- isþjónustuna. Við hittumst alloft eftir að hann sagði skilið við stjórnmálin og á síðustu árum skrifuðumst við oft á og ræddum saman í síma. Hann miðlaði hiklaust og hispurslaust af þekkingu sinni en hlustaði þegar ég var ekki á sama máli. Ég sakna þess að fá ekki leng- ur að njóta þessara samskipta; ég þakka Eiði fyrir hollu ráðin, lær- dóminn, sem ég nam af honum, vináttuna og traustið sem hann sýndi mér. Fjölskyldu hans, börnum og barnabörnum votta ég innilega samúð. Bogi Ágústsson. Utanríkisþjónustan sér nú á bak öflugum sendiherra, sterk- um og kappsfullum persónuleika, sem helgaði sig hverju því verk- efni sem honum var falið. Eiður Guðnason náði hvarvetna að marka spor og ávinna sér virð- ingu og traust á þeim tæpu tveimur áratugum sem hann starfaði í utanríkisþjónustunni. Þegar að starfslokum kom hélt hann áfram eins og ekkert hefði í skorist, vinnusemin söm, vett- vangurinn nýr. En það var hon- um léttur leikur, enda hafði hann skipt um starfsvettvang oftar en einu sinni. Eiður naut sín aldrei betur en við að leggja netin á nýjum stað, byggja upp og móta nýja starf- semi. Þannig er einföldun að segja að hann hafi verið fjöl- miðlamaður, stjórnmálamaður og diplómat. Hann var sífellt að end- urskapa sjálfan sig á öllum þess- um sviðum, nýta reynsluna og sá fræjum með nýjum verkefnum. Eiður var löngu orðinn þjóð- areign, einn af frumkvöðlum sjónvarps á Íslandi og einn þekktasti fjölmiðlamaður lands- ins. Þó að ekki færi jafnmikið fyr- ir persónu hans við heimildar- myndagerð var sú skapandi iðja dýrmæt reynsla fyrir þau verk- efni sem biðu hans í utanríkis- þjónustunni. Á vettvangi stjórn- málanna var hann margreyndur, þekktastur sem umhverfisráð- herra. Umhverfismálin voru honum alla tíð kær, en sem ráðherra var hann lykilmaður í að móta stefnu Íslands á Kyoto-ráðstefnunni. Síðar átti hann eftir að þjóna sem fyrsti sendiherra utanríkisráðu- neytisins í auðlinda- og umhverf- ismálun. Alla sína þekkingu og reynslu frá fyrri störfum átti hann eftir að nýta síðar. Norrænu tengslin sem hann hafði myndað sem stjórnmálamaður komu að góð- um notum í Ósló og Þórshöfn, áratuga áhugi á erlendum frétt- um gaf honum forskot í Peking og menningaráhuginn, íslensku- metnaðurinn og þekkingin á ís- lenskri sagnfræði er hann starf- aði sem ræðismaður í Winnipeg og að menningarmálunum í utan- ríkisráðuneytinu. Vinnan og áhugamálin voru eitt, hann sótti fyrirlestra og ráð- stefnur um utanríkismál eftir starfslok og hélt góðu sambandi við fyrrverandi starfsfélaga. Mörg okkar sáu hann hraustleg- an að vanda í móttöku kínverska sendiráðsins nokkrum dögum fyrir andlátið. Hér að ofan er brugðið upp mynd af góðum diplómat, öflug- um hugsjónamanni um sterka stöðu Íslands í alþjóðasamfélag- inu, margreyndum á vettvangi utanríkismála. Eiður var alltaf tilbúinn að stíga fram á nýju sviði og ekki dró hans einstaka kona, Eygló Helga Haraldsdóttir, úr honum. Aldrei spurðu þau um þægileg- ustu leiðina, heldur brýnasta hagsmunamálið á hverjum tíma. Þau voru mjög samhent, höfð- ingjar heim að sækja, ræktar- söm, músíkölsk og næm á um- hverfið. Samstarfsmenn þakka góða samfylgd og leiðsögn, en marga áttu þau hjónin vinina eftir far- sælt samstarf. Við kveðjum þau saman á þessum vettvangi, dvelj- um við ljúfar minningar og sökn- um þeirra sárt. Fyrir hönd utanríkisþjónust- unnar votta ég öllum aðstandend- um dýpstu samúð. Stefán Haukur Jóhann- esson, ráðuneytisstjóri. Skjótt hefur sól brugðið sumri, því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri; (J. H.) Það er sárt að sjá eftir vinum. Eiður Guðnason var traustur vin- ur vina sinna og hann var einnig vinur þeirra sem hann ekki þekkti. Hann hafði ríka réttlæt- iskennd, íhaldssamur sósíal- demókrati, sem vildi auðga mannlíf og honum var sérlega annt um þá sem stóðu höllum fæti. Það er ég viss um að föð- urmissir á viðkvæmum aldri lagði grunn að lífsskoðun hans. Þeirri reynslu deildi hann eitt sinn með mér. Og aftur varð hann fyrir bit- urri reynslu þegar æskuástin veiktist og dó. En ástin dó aldrei. Hvert mannsbarn þekkti fréttamanninn, alþingismanninn, ráðherrann, sendiherrann og Ís- lendinginn Eið Guðnason. Hann átti mikið af meðfæddum og ásköpuðum hæfileikum, sem hann jók á með tamningu og sjálfsögun. Hljómmikil rödd hans hæfði vel útvarpi og sjónvarpi. Skrúðmælgi var honum fjarri skapi, greining hans á málefnum var skörp. Því kom hann til skila í frá- sögnum, viðtölum og ræðum. Þekking hans og smekkur við miðlun efnis á móðurmálinu öfl- uðu honum viðurkenningar. Þrátt fyrir góða íslenskukunn- áttu og jafnvel vegna hennar var hann mikill málamaður. Enska varð honum snemma sem annað móðurmál. Nokkur var aldursmunur á okkur. Annar að loknum starfs- ferli en hinn að hefja nýjan starfsferil. Og stundum skoðana- munur. Þá reyndi ég Eið að víð- sýni. Það var ljúft að sitja með Eiði á kirkjubekkjum í Skálholti við guðsþjónustu eða á tónleikum. Skálholt var í bakgarðinum við sumarbústað hans. Og ekki síður í huga hans. Aldrei ræddum við um djúpa afstöðu til guðkristni, sem þó á sér dýpstar rætur á Ís- landi í Skálholti. En virðing hans fyrir Skálholtsdómkirkju bar það með sér Eiður Guðnason var ein- lægur trúmaður. Að leiðarlokum vil ég þakka Eiði Guðnasyni ágæta vinsemd, tryggð og aðstoð. Börnum hans og fjölskyldum þeirra færi samúðarkveðjur. Þeirra er miss- irinn mestur en minningin um góða foreldra lifir í hugum þeirra. Áður sat ítur með glöðum og orðum vel skipti. Nú reikar harmur í húsum og hryggð á þjóðbrautum. (J. H) Vilhjálmur Bjarnason. Alþjóð hefur þekkt Eið Svan- berg Guðnason af störfum hans í rúmlega hálfa öld. Svo var einnig um mig. En fyrir rúmlega 10 ár- um kynntist ég honum persónu- lega fyrir tilstilli sameiginlegs vinar okkar, Jóns Hákonar Magnússonar, og fékk að njóta ómetanlegrar ráðgjafar hans við verkefni, sem ég hafði með hönd- um. Þá var hann ræðismaður í Færeyjum og kynntist ég vel áhuga hans og elju í því starfi, sem ég síðar við nánari kynni gerði mér enn betri grein fyrir, að var hans aðalsmerki við hvað- eina, sem hann hafði tekist á hendur í þágu lands og þjóðar á merkri starfsævi. Á þessum liðna áratug færð- umst við Eiður sífellt nær hvor öðrum og stóðum saman af ein- lægni í ýmsum málum, sem rak á fjörur okkar persónulega. Við hittumst og ræddum saman í síma oft í viku. Nálgun okkar á ýmis málefni í samfélaginu var oft með ólíkum hætti, en ætíð skildum við úr samræðum í sátt og samlyndi með góðum undir- tóni um sameiginleg grundvallar- viðhorf til lífsins og tilverunnar. Að þessum góða vini mínum er
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.